Saudi Arabía hótar að auka olíuframleiðslu um 2-milljónir tunna á dag

Olíumálaráðherra Rússlands brást við þeim ummælum kollega síns frá Saudi Arabíu - með því að fullyrða að Rússlandi væri einnig mögulegt að bæta við sína framleiðslu:

"He said Russia was "in theory" able to raise production to 12 million or even 13 million bpd from current record levels of close to 11 million bpd."

Það virðist þó óljóst hvort að Saudar láta verða af hótun sinni, eða að hvaða marki Rússlandi er tæknilega mögulegt að bregðast við með líkum hætti.

Moscow sceptical of oil production freeze after Doha failure

In riposte to Riyadh, Russia says ready to ramp up oil output

 

Óljóst er hvað vakir fyrir stjórnvöldum í Riyadh!

En Saudar snöggventu um kúrs á fundi olíuframleiðsluríkja í Doha sl. sunnudag -- og höfnuðu óvænt því að frysta olíuframleiðslu sína; nema að Íran taki þátt!
Þetta bersýnilega kom í opna skjöldu!

We learnt about Saudi Arabia’s change of position half an hour before the start of the meeting,” --- Sagði olíumálaráðherra Rússlands í viðtali.

  1. En Íranar hafa ítrekað áður hafnað slíku samstarfi við önnur olíuríki -- vegna þess að olíuframleiðsla Írana er enn í því sögulega lágmarki sem hún komst í, af völdum tjóns frá stríði Írana við Írak Saddams Hussains 1980-1989 og refsiaðgerða vesturvelda sem lauk einungis á upphafsmánuðum þessa árs.
  2. Íranar hafa ekki tekið í mál, að samþykkja frystingu, án þess að Íran fái að auka sína framleiðslu upp í það hvað hún var áður en Saddam Hussain réðst á Íran - og Íran síðan lenti í refsiaðgerðum Vesturvelda.
  3. Á sama tíma hafa Rússar og Saudar -- ætlast til þess að Íranar sætti sig við það að Rússland og Saudi Arabía - frysti við framleiðslu í sögulegu hámarki hjá þeim löndum.

Saudi Arabía hafði fyrr á þessu ári - sætt sig við að fá Íran ekki sem aðila samkomulags.
Ekki virðist vitað - hvað veldur þessum snöggu sinnaskiptum í Riyadh.

 

En yfirlýsingar olíumálaráðherra Rússa og Sauda, ættu rökrétt að stuðla að nýrri lækkun heims markaðsverð á olíu!

Í allra síðustu tíð, hefur olía á heimsmörkuðum sveiflast í rúmlega 40 dollurum fatið. Sem er umtalsverð hækkun miðað við lágmark þessa árs -- ca. 27 dollarar fatið.
Þetta hefur gerst þrátt fyrir að enn sé til staðar framleiðsla umfram eftirspurn!
Og að á sama tíma séu birgðir í sögulegu hámarki!

Margir virðast því vera að bíða með að setja olíu á markað - ef til vill í von um hagstæðari verð síðar!
Það auðvitað gæti verið að hafa -- tímabundin áhrif á verðlag.

  • Enn fullyrða Íranar að það standi til að auka framleiðslu um 50% í ár.
  1. Ef Saudar og Rússar auka framleiðslu sína!
  2. Og Íran síðan gerir það einnig.

Þá ætti rökrétt verðlag á olíumörkuðum að lækka -- umtalsvert!
Spurning hvort að Riyadh hafi allt í einu ákveðið -- að lækka olíutekjur Írana!

Það auðvitað samtímis eykur hallarekstur ríkissjóðs Sauda!
Skv. fréttum hafa Saudar hafið erlendar lántökur: Saudi Arabia takes out $10bn in loans.

Hvort þær séu í einhverju samhengi við þetta, veit ég ekki.

Lægra olíuverð rökrétt séð einnig þrengir að fjárhag Rússlands!

Skv. fréttinni um lánveitinguna -- "...fiscal deficit is set to widen to 19 per cent of gross domestic product this year."  -- stefnir í hressilegan hallarekstur á ríkisreikningi Saudi Arabíu, og umtalvert fé hefur horfið úr sjóðum Sauda nú þegar - "... has burnt through $150bn in financial reserves since late 2014..."

Vandi Rússa er svipuðu tagi -- skv. frétt fyrr á árinu stóð hallinn á ríkisreikningi Rússland í ca. 11% til samanburðar.

  • Saudi Arabía getur hafa ákveðið að hefja þráðbeint "game of chicken" við stjórnvöld í Teheran.

Ég sé samt ekki að Íran vendi um kúrs!

 

Niðurstaða

Miðað við nýjustu vendingar á stefnu Saudi Arabíu og Rússlands, varðandi olíuframleiðslu. Og skyndi ákvörðun Saudi Arabíu - að hætta við fyrirhugað samkomulag Rússlands og OPEC landa annarra en Írans -- um frystingu á framleiðslu. Samtímis því að Íran segist enn stefna að því að auka sína framleiðslu í ár.
Bætum auk þess við að olíubirgðir eru í sögulegu hámarki. Og án þess að Saudar og Rússar eða Íran - auki sína framleiðslu, er enn til staðar framleiðsla umfram heims eftirspurn.
Þá ætti þróun olíuverð að venda aftur um kúrs - en það hefur verið í hækkunarferli í rúman mánuð.

Hversu mikið það getur lækkað kemur í ljós.
En ég efa að Íran blikki þó Saudar hefji "game of chicken" við Íran!

Það verður forvitnilegt að sjá hversu langt niður heimsmarkaðsverð á olíu fer!

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Borgþór Jónsson

Ég held að það stefni í einvígi milli Sauda og Rússlands

Bæði ríkin geta nokkuð auðveldlega aukið framleiðsluna ef olíuverðið er um 50 dollara.

Á næstu árum munum við sjá olíuframleiðslu margra ríkja dragast saman og verðinu verður hleyft í 50 Dollara rúmlega.

Saudar og Rússar munu skifta með sér slakanum sem myndast á mörkuðunum.

Þegar verðið er orðið stöðugt í 55 dollurum eða svo og ekki stafar mikil ógn af háverðs olíuríkjum byrjar baráttan á milli Sauda og Rússa.

Rússar eru ágætlega sáttir við 50 til 60 dollara ,sem dugar til að halda háverðsframleiðsluríkunum úti og ásættanlegum tekjum fyrir Rússneska ríkið. Saudar geta aftur á móti  ekki lifað við það verð án þess að gera róttækar samfélagsbreytingar sem líklega mundu þýða endalok Prinsanna.

Við komum ekki til með að sjá hátt olíuverð um langan tíma,nema að það komi til borgarastyrjaldar í Saudi Arabiu.

.

Staðan virðist vera sú að offramleiðslan er um 1,5 milljón tunnur á dag og olíuiðnaður bandaríkjanna og fleiri ríkja er á síðustu metrunum ,gefum þeim tvö ár.

Þegar framleiðslan er komin niður í eftirspurn hafa svo stóru olíuríkin tvö möguleika á að auka framleiðslu sína um ca 4 milljónir tunna og jafnframnt sumir minni framleiðendanna í miðausturlöndum.

Þarna virðist vera að minnsta kosti 6 milljón tunna bil.

Þesssi ríki verða því í engum vandræðum með að innbyrða þann samdrátt sem verður í framleiðslu í Bandaríjunum og víðar.

.

Ég held að hvorki Saudar eða Rússar muni auka framleiðsluna á næstunni.Saudum er væntanlega orðið ljóst að þeir geta ekki bitið Rússa af sér og munu reina að lágmarka tjónið með að halda framleiðslunni óbreittri.

Rússar eru aftur á móti frekar sáttir með stöðuna eins og hún er og bíða rólegir átekta.

Þeir þurfa að bíða af sér aukninguna hjá Írönum og sem kemur væntanlega til með að fylla nokkurn veginnn upp í samdráttinn sem verður í Fracking olíuramleiðslunni og dýrustu Off shore framleiðslunni.

Þegar það er afstaðið koma þeir sterkar inn og halda verðinu á milli 50 og 60 dollara eins lengi og þeir geta aukið framleiðsluna.

Rússum liggur ekkert á ,en Saudar eru þegar í vandræðum.

.

Ég held að flestir séu nú búnir að átta sig á hvað það var misráðið að halda upp í þennan efnahagslega hernað gegn Rússlandi.

Þeir eru miklu öflugri heldur en menn héldu og eru að snúa aftur í hagvöxt eftir minniháttar samdrátt á síðustu theimur árum.

Sérlega er þatta að koma illa við Evrópuríkin að sjálfsögðu ,það er aðeins tímasprsmál eins og við vitum ,þangað til Frakkland fylgir í fótspor suður Evrópuríkjanna.

Rússar geta með einu pennastriki steyft Fraklandi og frakkar vita það og eru núna að breyta stefnu sinni gagnvart Rússllandi.

Borgþór Jónsson, 21.4.2016 kl. 15:14

2 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Boggi, ef verðið fer í 50-60 Dollara, fer aukning framleiðslu í Bandar. aftur í fullan gang.
Rússland getur ekki -eins og þú heldur fram- stöðugt aukið framleiðslu.
Nema að hefja vinnslu á nýjum svæðum.
Og þá þarf hærri verð en milli 50-60.

En þó að 50-60 dollarar tryggi rekstur núverandi svæða ágætlega, þá eru þau svæði í Rússlandi sem þarf að hefja vinnslu á -- til að halda í horfinu, hvað þá til að auka framleiðslu, miklu mun dýrari til vinnslu -- en þau svæði sem rekin eru í dag.

En eins og olíumálaráðherra Rússl. -- einnig sagði, þá hefur Rússland ekki hafið vinnslu á neinu nýju svæði -- síðan verðið fór niður fyrir 100 dollara.

    • Ef verðið helst í 50-60 Dollurum.

    • Þá eru það Bandar. sem aftur fara á flugerð.

    Og aukning þar verður mun sennilegri skýring þess, af hverju verð haldast á því bili, en aukning Rússlands --- sem verður mjög takmörkun háð meðan verð haldast á því bili.

    Saudi Arabía getur aukið framleiðslu e-h meir kannski en 2 milljón tunnur.

      • En það eru nær engin takmörk á því, hve mikið er unnt að dæla með "fracking" aðferð.

      • Vegna þess að "oil shale" svæði eru til mjög víða um heim.

      Bandar. fyrirtækin hefja einfaldlega hringferð um heiminn - um leið og ekki er unnt að auka frekar nýtingu innan Bandar.
      Vegna þess hve "oil shale" er víða að finna.
      Geta verð tæknilega haldist á þessu bili nk. 100 ár.

      ____________
      Þetta þíðir að olíuvinnsla Rússa hlýtur að fara í langvarandi hnignun.
      Því ef svæðin þeirra í N-Síberíu geta ekki borið sig við 50-60 Dollara.
      Þá er olían þar, einskis virði -- því ekki er þá efnahagslegur grundvöllur fyrir nýtingu.

      Rússar sjálfir nýlega bentu á þennan vanda!
      Eins og ég sagði frá fyrir nokkrum vikum.

        • Langtíma vandi Rússa er mjög alvarlegur - ef þetta er svo að svæðin í N-Síberíu geta ekki borið sig við 50-60 Dollara, því þá þíðir það að efnahags hnignun Rússland er rétt að hefjast og á eftir að standa mjög mjög lengi.

        Rússn. almenningur að sjálfsögðu mun á einhverjum punkti gera uppreisn - ef þetta er útkoman.
        Sennilega hvers vegna Pútín hefur startað þessu "þjóðvarðaliði" undir persónulegri stjórn hans ráðuneytis. Að hann hafi fulla vitneskju um málið!

        Kv.

        Einar Björn Bjarnason, 22.4.2016 kl. 00:51

        Bæta við athugasemd

        Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

        Um bloggið

        Einar Björn Bjarnason

        Höfundur

        Einar Björn Bjarnason
        Einar Björn Bjarnason
        Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
        Apríl 2024
        S M Þ M F F L
          1 2 3 4 5 6
        7 8 9 10 11 12 13
        14 15 16 17 18 19 20
        21 22 23 24 25 26 27
        28 29 30        

        Eldri færslur

        2024

        2023

        2022

        2021

        2020

        2019

        2018

        2017

        2016

        2015

        2014

        2013

        2012

        2011

        2010

        2009

        2008

        Nýjustu myndir

        • Mynd Trump Fylgi
        • Kína mynd 2
        • Kína mynd 1

        Heimsóknir

        Flettingar

        • Í dag (19.4.): 0
        • Sl. sólarhring: 6
        • Sl. viku: 757
        • Frá upphafi: 0

        Annað

        • Innlit í dag: 0
        • Innlit sl. viku: 693
        • Gestir í dag: 0
        • IP-tölur í dag: 0

        Uppfært á 3 mín. fresti.
        Skýringar

        Innskráning

        Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

        Hafðu samband