Verðfall á markaði í Kína vekur ugg og athygli - stefnir í kreppu, eða mun þetta rugg markaða engu máli skipta?

Kína er áhugavert fyrir einn þátt, nefnilega að Kína hefur enn sem komið er, tekist að komast hjá kreppuvandræðum. Á hinn bóginn, veit ég ekki til þess, að nokkurt land í heiminum hafi gengið í gegnum efnahagsþróun - og sloppið alfarið við kreppu eða kreppur.

Manni hefur virst allra síðustu ár, vera margvíslegt til staðar í Kína, sem skapi - hættu á kreppu.

  1. Sbr. gríðarlega hraðan vöxt skulda einka-aðila, en síðan 2008 skilst mér að þær hafi aukist um meir en 100% af landsframleiðslu. Það er gríðarlega hraður vöxtur skulda, og sögulega séð þegar svo hröð aukning er í gangi; þá hefur jafnan komið í ljós - að hlutfall fjárfestinga voru hæpnar eða lélegar.
  2. Það hefur frést af því, að fjármálastofnanir hafa verið að lána mikið fé í gegnum, nokkurs konar - útboð á lánum, þ.s. fólk hefur getað lagt fé í púkk - sem síðan er lánað. En lítið eftirlit virðist hafa verið haft með slíkum lánum. Og tap í þeim, getur dreifst afar víða um hagkerfið, vegna þess að mikill fjöldi fjárfesta geti lent í tapi. Þannig gætu slík lán - haft svipuð áhrif innan kínv. hagkerfisins, og svokölluð -undirmálslán- í Bandaríkjunum höfðu, eftir að búið var að -vefja þau í afleiður- eða "derivatives" og selja til fjárfesta. Heyrst hefur að meirihluti lána í Kína til fyrirtækja, hafi verið á þessu formi, allra síðustu ár.
  3. Gríðarlega mikið er byggt í Kína, og langt í frá allt af því er - nýtt. Þó verið geti að það nýtist síðar, ef vöxtur Kína heldur áfram.
  4. Verðbréfamarkaðir í Kína, hafa 2-faldast að verðmæti, sl. 18 mánuði. Það hefur virst vera algerlega augljós - verðbóla.
  • Í samanburði við þá 2-földun meðalverðs hluta, þá virðist ef til vill lækkun nú um 30% á nokkrum vikum - - ekki svo agaleg.
  1. Á hinn bóginn, hafa kínv. stjv. nú gripið til afar harkalegra inngripa, þ.e. sölubanns verðbréfa fyrirtækja sem eru 6% af markaðinum eða meir, það bann gildi í 6 mánuði. Að auki mega forstjórar - framkvæmdastjórar og stjórnarmenn þeirra - sömu fyrirtækja. Ekki selja nein bréf í sinni eigu í sínum fyrirtækjum yfir sama tímabil. Og kínv. stjv. hafa látið vita, að brot á þessu banni muni mæta hörðum refsingum.
  2. Áður voru 940 fyrirtæki eða um 1/3 fyrirtækja á skrá á markaði í Shensen og Sjanghæ, búin að loka á viðskipti með sína hluti.
  3. Andvirði fyrirtækja á skrá á þeim mörkuðum, hefur lækkað um litla 3000 milljarða.$.
  • Augljóst er af viðbrögðum kínverskra stjórnvalda - - að það ríkir nokkur paník.
  • En áframhaldandi verðfall mun klárlega valda fjölda manns verulegu fjárhagslegu tjóni.
  • Höfum að auki í huga, að Kínverjar eru ekki vanir - - stórum verðföllum á markaði, og því tjóni sem slíkir atburðir geta valdið.
  • Þannig, að fyrir bragðið, má vera að sá skortur á lífsreynslu, skapi aukna hættu á -ofsahræðsluviðbrögðum.

Enginn í reynd veit, hversu alvarlegt áfall fyrir kínverska hagkerfið það verður - - ef þetta verðfall heldur áfram.

Lex hjá Financial Times: Telur að bannið við viðskiptum með hlutabréf stórfyrirtækja í 6 mánuði, muni hafa mjög skaðleg áhrif á kínverska markaðinn. Ekki síður, að stjórnarmönnum og æðstu yfirmönnum þeirra sé alfarið bannað að versla með bréf þeirra, á sama tíma.

En Lex telur, að þó verið geti að sú aðgerð, hjálpi við að stöðva núverandi verðfall - - muni það sennilega valda auknum boðaföllum næst. Því að þá muni aðilar sem grunar að kínv. stjv. endurtaki leikinn sennilega aftur, sennilega kjósa að selja sín bréf - fyrr í ferlinu en nú.

Þannig gæti bannið aukið líkur á að næsta verðfall, verði enn alvarlegra.

 

En ef um er að ræða atburð í líkingu við Wallstreet 1929

Þá má vera að stórt verðfall, geti verið upphafs atburður á þeirri kreppu, sem margir hafa reiknað með að verði í Kína. En þá væntanlega mundi verðfallið gera marga aðila er hafa átt í viðskiptum með verðbréf - gjaldþrota. Síðan mundi lækkandi verðmæti fyrirtækja, geta fært verðmæti a.m.k. hluta þeirra, undir verðmæti skulda þeirra.

Það heyrist, að margir almennir sparifjáreigendur í Kína - - hafi verið að fjárfesta í verðbréfum í seinni tíð. Það bendi til þess, að verðfallið geti bitnað sérdeilis harkalega á kínverskum fjölskyldum, þ.e. að margir tapi sínu sparifé að a.m.k. hluta, eða verulegu leiti.

  • Þetta gæti leitt af stað hrinu gjaldþrota aðila í viðskiptum á markaði.
  • Einnig orðið áfall fyrir fjölda einstaklinga, sem hafa verið að fjárfesta sitt sparifé í hlutabréfum - - því skapað högg fyrir neyslu.
  • Og hugsanlega gert nokkurn fj. fyrirtækja gjaldþrota, þegar virði þeirra fer undir andvirði skulda þeirra.

Þá mundi það verða áhugavert - - hver áhrif slíka gjaldþrota, yrðu þegar einnig mundi verða tap á þeim lánasamningum sem þau sennilega hafa tekið þátt í - - sbr. þá aðferð að bjóða út lán á markaði, sem gæti dreift tapi af lánum yfir verulegan hóp kínv. fjárfesta.

Það mundi þá koma í ljós - - hvort slík röð högga mundi duga til að skapa snögga kreppu í Kína.

 

Niðurstaða

Ef það mundi verða kreppa í Kína. Þá vegna þess hve Kína er nú gríðarlega mikilvægur kaupandi hráefna af mörgum svokölluðum - ný-iðnvæðandi löndum. Þá má vera að um Kína gildi það sama er oft hefur verið sagt um Bandaríkin. Að ef Bandaríkin hnerra þá fái heimurinn kvef. Í tilviki Kína gæti þetta gilt um hin svokölluðu ný-iðnvæddu lönd. Að mörg þeirra mundu sennilega skella beint í kreppu - - um leið og kreppa mundi hefjast í kínverska hagkerfinu.

Þó svo að slík kreppa mundi einungis standa í t.d. 2 ár. Gæti hún orðið mun erfiðari og langdrægari fyrir löndin sem hafa verið að byggja sig upp - - sem hráefnasala til Kína.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég er á því að Kínverska hagkerfið sé við það að springa, margir voru búnir að spá því fyrir löngu og eru flestir undrandi á því hversu lengi þetta hefur gengið.

Jóhann Elíasson, 9.7.2015 kl. 07:14

2 Smámynd: Hörður Þórðarson

Þetta er einfaldlega "blipp". Markaðurinn er allt of hátt skráður og þarf að leiðrétta sig. Auðvitað fylgir því einhver sársauki. Því miður verður hann að öllum líkindum meiri og tekur legnri tíma vegna þess að stjórnvöld eru að skipta sér af þessu með óeðlilegum og ábyrgðarlausum hætti að því er mér finnst.

Það er kominn tími til að Kínverjar ákveði hvort þeir vilja frjálst hagkerfi með öllu sem því fylgir eða ekki. Ef þeir halda að þeir geti stöðugt grætt á markaðnum og síðan bannað tap, þá eru þeir í draumalandi.

Hörður Þórðarson, 9.7.2015 kl. 19:14

3 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Getur land sem þrælkar börn og konur með litlum sem engum launum- orðið gjaldþrota  ? Ættu Íslendingar kannsi að skoða í egin koppa ???

Erla Magna Alexandersdóttir, 9.7.2015 kl. 19:54

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband