Sérkennileg frétt á RÚV af grískum harmleik!

Sérkennilegi hlutinn kemur bersýnilega til fyrir handvömm fréttamanns. En fréttin var lesin í kvöldfréttum RÚV á laugardag. Síðan má sjá hana og orðalagið sem vakti furðu á vef RÚV: Neyðarástand vegna mengunar í Grikklandi.

"Magn koltvísýrings er langt yfir hættumörkum og nú þegar hefur unglingsstúlka látið lífið vegna koltvísýringseitrunar."

Þetta varð til þess að ég framkvæmdi netleit, þar til ég fann líklegan uppruna þessarar fréttar, þ.e. eftirfarandi frétt frá 2. des sl.: Girl dies in Greece after inhaling makeshift heater fumes.

"A 13-year-old Serbian girl died after inhaling carbon monoxide fumes from a stove used to heat the home she shared with her unemployed mother in northern Greece, a police source said."

Þetta passar einnig við mína grunn þekkingu á lífeðlisfræði - - nefnilega, að þ.e. aldrei talað um CO2 eitrun. 

Heldur ef það gerist, t.d. að einhver sofnar út frá gas loga í lokuðu rými og lætur lífið, en gas brennur yfirleitt án þess að kolmónoxíð myndist, þá er talað um að viðkomandi látist af súrefnisskorti.

Aftur á móti þegar um ófullkominn bruna er að ræða, sem getur vel átt sér stað, þegar verið er að brenna viði inni í vistaverum, og samtímis eru gluggar lokaðir til að halda hita á þeim sem eru innan veggja - - þá getur CO eða komlónoxíð hlaðist upp í loftinu.

Og eins og þekkt er, þá binst CO sterkar við blóðrauða en súrefni - - þannig að í reynd þarf ekki mjög mikið magn af CO í hlutfalli heildarmagns af lofti í lokuðu rými, til þess að kolmónoxíðið hindri súrefnisupptöku.

Þá er að sjálfsögðu ávallt talað um, að viðkomandi hafi látist af kolmónoxíðeitrun.

Það kemur skýrt fram í fréttinni frá Grikklandi að aumingja stúlkan lést af þannig eitrun.

--------------------------------

Síðan fann ég aðra frétt frá Grikklandi: Emergency measures unveiled to combat smog over Greek cities.

" A set of emergency measures were announced on Thursday by the government to combat the smog from fireplaces that appeared over a number of Greek cities over the past few days and poses a threat to public health."

"Health warnings from numerous experts prompted the government to issue a new set of guidelines, which were published in the Government Gazette yesterday, for days when the concentration of particulate matter suspended in the air exceeds 150 micrograms per cubic meter."

  • Ég hef nefnilega einnig grun um að fréttamaður RÚV hafi haft þessa frétt til hliðsjónar.

En þar er rætt um mengunarský sbr. "smog" og vaxandi svifryksmengun "particulates" - - > einhvern veginn hefur þá fréttamaðurinn, sem líklega var að vinna að fréttinni í nokkrum flýti.

Og að auki einungis mátt hafa hana af tiltekinni lengd, bögglað saman hugtökunum "carbon monoxide" þannig að það varð að kolmónoxíði, og "smog" ásamt heilsuviðvörun grískra yfirvalda til sinna borgara þannig að úr varð setningin í frétt RÚV: "Magn koltvísýrings er langt yfir hættumörkum."

 

Það sem fréttamaðurinn var að bögglast við að koma til skila er raunverulegur harmleikur!

Það er mikið af fólki í Grikklandi, sem ekki hefur efni á "rafmagni." Þannig að lokað hefur verið fyrir af rafmagnsveitunni á staðnum.

Þ.s. ekki er heitt vatn, þíðir það að samtímis hafa íbúar ekki rafmagnslýsingu og hitun.

Þ.s. þ.e. vetur í Grikklandi, og það getur verið kalt meira að segja í Aþenu. Þá er fólk að berjast við að halda á sér hita veikum mætti, hvernig sem það getur.

Og eins og litla fréttin að ofan lýsir - - þá geta harmleikir gerst.

  • Ein beisk staðreynd er sú, að loftmengun í grískum borgum hefur aukist mikið, bæði mistur sbr. "smog" og mæld svifryksmengun.

Greek economic crisis leads to air pollution crisis

"The researchers, led by Constantinos Sioutas of the USC Viterbi School of Engineering, show that the concentration of fine air particles in one of Greece's economically hardest hit areas has risen 30 percent since the financial crisis began, leading to potential long-term health effects."

Þetta sést úr gervihnöttum að auki. 

Af öðrum fréttum sem ég hef séð, þá hefur ólöglegt skógarhögg aukist mikið - - en fátækir sem hafa ekki efni á rafmagni líklega hafa ekki efni á að kaupa eldivið. Svo þeir sækja sér hann, hvert sem þeir geta.

Líklega verður Grikkland í lok kreppunnar, mun berangurslegra en það var fyrir kreppu.

Þetta þíðir auðvitað aukna hættu á uppblæstri! Vandamál sem við þekkjum hérlendis. Og skriðuföllum, þegar jarðvegur í hlíðum verður lausari í sér - og það mun einhvertíma rigna.

Það eiga eftir að verða margar tragedíur reikna ég með í framtíðinni, vegna aukinnar hættu á skriðum úr hlíðum í Grikklandi á næstu árum.

 

Niðurstaða

Lestur um ástandið á Grikklandi er eitt af því sem sannfærir mann enn betur um það. Hvað við eigum gott. Að búa á Íslandi eftir allt saman. Þar sem rafmagn kostar almennt séð tugum prósentum minna en í Evrópu - til heimilisnota. Þannig að mun flr. hafa efni á rafmagni. Og að auki, að húshitun treystir ekki víðast hvar hérlendis á rafmagn. Og húshitun er enn - enn, hlutfallslega ódýrari hérlendis en víðast hvar í Evrópu.

Þetta tvennt eru óskapleg hlunnyndi fyrir Íslendinga.

Og merkilegt hve margir taka lítið eftir því.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Björnsson

Hitaveitan hér ennþá minnkar, víða á Íslandi,  eftirpurn einstaklinga eftir rafmagni sem er ekkert sérlega ódýrt  í samanburði við laust ráðstöfunar reiðufé 80% ríkisborgara hér og víða erlendis. Hér er framfærsla miðuð við hituveitukostnað og rafmagnsveitu kostnað , þannig að margir taka vel eftir því hvað er hægt að skammta lítið reiðufé til lámarks framfærslu.  

Júlíus Björnsson, 29.12.2013 kl. 16:08

2 Smámynd: Magnús Jónsson

Smá athugasemd: án rafmagns kemur ekkert heitt vatn, heitu vatni þarf að dæla og rafmagn er notað til þess, svo ef rafmagn hækkar í verði þá hækkar heita vatnið óumflýjanlega einnig.

Frekar neyðarlegt hjá RUV að kanna ekki til hlítar það sem sett er í fréttir, og fátækt fólks þarna er vaxandi vandamál, ég óttast að þú verðir sannspár um framhaldið þarna hjá Grikkjum.

Magnús Jónsson, 29.12.2013 kl. 19:56

3 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Magnús - "svo ef rafmagn hækkar í verði þá hækkar heita vatnið óumflýjanlega einnig" - í einhverju lágu hlutfalli við rafmagnsverðshækkunina, þ.s. dælur eru skilvirkar.

Já, þetta á örugglega eftir að vera erfitt hjá Grikkjum í mörg ár á eftir.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 30.12.2013 kl. 01:47

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 845417

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband