Efa við næðum nokkru sinni inn í evrun þó við reyndum okkar ítrasta!

Það er eiginlega sprenghlægilegt hve margir aðildarsinnar stórfellt vanmeta hve erfitt það er að komast inn í evruna. Sannarlega náði nokkur fjöldi ríkja inn í hana á sl. áratug. En þá voru hagkerfisaðstæður í umhverfinu sérdeilis hagstæðar. Það er - stöðugur uppgangur, sem einfaldaði hagstjórn, flýtti fyrir lækkun skulda, gerði mun auðveldar að ná þeim markmiðum sem krafa er um gerð.

------------------------------------------------------------

Convergence Criteria:

1. Inflation rates: No more than 1.5 percentage points higher than the average of the three best performing member states of the EU.

2. Government finance:

Annual government deficit:
The ratio of the annual government deficit to gross domestic product (GDP) must not exceed 3% at the end of the preceding fiscal year. If not it is at least required to reach a level close to 3%. Only exceptional and temporary excesses would be granted for exceptional cases.
Government debt:
The ratio of gross government debt to GDP must not exceed 60% at the end of the preceding fiscal year. Even if the target cannot be achieved due to the specific conditions, the ratio must have sufficiently diminished and must be approaching the reference value at a satisfactory pace.

3. Exchange rate: Applicant countries should have joined the exchange-rate mechanism (ERM II) under the European Monetary System (EMS) for two consecutive years and should not have devalued its currency during the period.

4. Long-term interest rates: The nominal long-term interest rate must not be more than 2 percentage points higher than in the three lowest inflation member states.

------------------------------------------------------------

Ísland á sl. áratug nokkrum sinnum uppfyllti nokkur ofangreindra skilyrða, þ.e. ríkisskuldir voru komnar niður í milli 20-30%, ríkið var rekið með afgang í góðærinu, og ríkið var með hagstæð lánskjör.

Erfiðasta skilyrðið er án vafa nr. 3, að halda gengi gjaldmiðils föstu, þá meina ég algerlega föstu - engar hreyfingar, í 2 ár.

En ekki skal vanmeta heldur skuldastöðu ríkisins upp á tæp 100%. Enn er halli.

Það verður einnig vandi að koma verðbólgu niður í það stöðuga ástand sem krafið er - ekki útilokað krefst mjög stífs aðhalds, þ.e. engar verulegar launahækkanir en alltaf hluti af þeim fer í verðlag, má ekki vera of mikill hagvöxtur - ekki of mikil eftirspurn, því hvort tveggja eykur verðbólgu.

  • Ástæða að gengisfestu skilyrðið er erfitt, er að íslenska hagkerfið er stöðugt að sveiflast af mörgum ástæðum:
  1. Það veiðist meir eitt árið, minna það næsta.
  2. Verðlag á afurðum er gott eitt árið, verra það næsta. Þessi atriði geta farið saman eða á misvíxl.
  3. Ef stéttarfélögin neyða fram verulegar launahækkanir, hækkar það alltaf verðbólgu.
  4. Ef þ.e. öflugur hagvöxtur, þá skapar aukning eftirspurnar verðbólgu.
  5. Síðan getur verðbólga komið að utan, ef það t.d. hækkar olía, eða matvörur.
  6. Að lokum, eru það blessuðu gengissveiflurnar - en margir láta sem það sé eina ástæðan.
  • Allir þessir þættir þurfa að hitta vel á samtímis. Heppni þarf að spila inn í.
  • Að auki þarf þá krónan að vera fljótandi, þ.e. búið að losa um höftin áður en Ísland fær aðild að ERM II. Þannig, að þá er nauðsynlegt að hafa stórann gjaldeyrisvarasjóð til að verjast - öllum tilraunum markaðarins til að sveifla genginu.
  • Það skapar sennilega stærstu hættuna - nefnilega þá, að krónan verði skotmark óprúttinna. En mér sýnist sérstakt tækifæri vera til að veðja gegn krónunni, þegar Ísland er að leitast við að halda genginu algerlega föstu í 2 ár.
  • Þá neyðist Seðlabanki Íslands, til að beita uppsöfnuðum gjaldeyrisvarasjóð, til að verjast öllum slíkum atlögum, og í því felst einmitt hættan - að óprúttnir aðilar veðji gegn henni, til að ná til sín akkúrat þeim sjóði.
  • Það er nefnilega afskaplega ólíklegt að unnt verði að safna svo digrum sjóð, að Ísland algerlega pottþétt varist öllum atlögum - - en fræðilega, getur það fengið lánsfé frá Seðlabanka Evrópu, í því skini að verjast slíku.
  • Þá bætist það við sem hætta, að menn freistist til að ekki einungis verja öllum gjaldeyrisvarasjóðnum til að ná takmarkinu, heldur einnig til að skuldsetja ríkið - til að ná því.
  • Og ef það bregst samt, óprúttnir ná af okkur hvoru tveggja lánsfénu og uppsöfnuðum sjóð. Og síðan félli krónan atlagan gegn henni tækist fyrir rétt. Þá sætum við eftir með sárt ennið - málið tapað a.m.k. í bili, landið aftur skuldsett.
  • (Ath. Seðlabanki Evrópu ver einungis +/-15% vikmörk, ríkin sjálf verða að standa í kostnaðinum við að halda genginu algerlega föstu.)

Þörf á að endurtaka margra ára baráttu, þ.e. safna nýjum sjóð, og greiða að nýju niður skuldir.

Þess fyrir utan, að í annað sinn getur farið með sama hætti.

Svo má ekki gleyma, að til stendur að herða skilyrðin um inngöngu í evru!

 

Niðurstaða

Ég skrifaði þetta vegna þess að ég fékk eina af þessum "heiladauðu athugasemdum" sem var eittvað á þá leið "Göngum í ESB og málið er dautt." Mjög margir virðast halda að evran nánast fylgi með í pakkanum um aðild. Enda er umræðan þannig - ganga inn, taka upp evru. Fjöldi fólks virðist hafa tekið upp þá ranghugmynd. Að stóra skrefið sé aðild, hitt komi einhvern veginn af sjálfu sér.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmsteinn Jónasson

Jamm - en til hvers að taka upp evru ? Hér er fín grein: http://www.economonitor.com/lrwray/2012/08/29/minsky-and-mmt-in-the-news/

Hólmsteinn Jónasson, 29.8.2012 kl. 15:53

2 identicon

Yrðum við ekki óttaleg hornkerling í þessu Esbéi hvernig sem á það er litið?

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 29.8.2012 kl. 17:08

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 845416

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband