Kreppan búin - segir Vilhjálmur Egilsson! En, er þetta virkilega, bæ - bæ kreppa?

Við skulum aðeins anda rólega, segi ég. Því ekki eru enn búið að byrta heildrænar niðurstöður fyrir hagþróun fyrra helmings þessa árs. Skoðum hvað Hagstofa Íslands sagði um 1. ársfjórðung:

Fyrsti ársfjórðungur 2010, Hagstofa Íslands

  • Einkaneysla,   - 0,6%
  • Samneysla,     - 0,5%
  • Fjárfesting,   - 15,6% (kemur á móti aukningu á síðasta fjórðungi upp á 16,6%, nettó ef til vill
  •                                    fjárfesting plús 1)
  • Útflutningur,   - 3,6%
  • Innflutningur, - 3,3%
  • Þjóðarútgj., + 1,3%
  • Hagvöxtur,  + 0,6%

Áhuga vekur ennfremur að án "árstíðabundinnar leiðréttingar" væri verið að tala um samdrátt upp á 6,9% en ekki hagvöxt upp á 0,6%.

 

  • Væntanlega tekur fólk eftir, að allir þættir dragast saman nema þjóðarútgjöld og fjárfesting - þ.e. ef maður leggur saman fjárfestingu 1. ársfjórðungs við fjárfestingu ársfjórðungsins á undan.
  • Það er að sjálfsögðu gleðilegt að kaupmáttur launa hafi hækkað nú.

En þar spilar inn í, að nokkur verðhjöðnun mældis í júní sl. af völdum lækkana á bensíni, sem að nokkru leiti hafa verið teknar síðan til baka í júlí. Ef síðan ríkisstjórnin fer eftir tillögum nýlegrar skýrslu AGS (sjá mína umfjöllun um þá skýrslu: Óháð umfjöllun um skýrslu AGS um ísl. skattakerfið og þær tillögur AGS um skattbreytingar sem þar fram koma! ) um að hækka skatta á eldsneyti og virðisauka skatt á matvæli o.flr. - þá auðvitað er þetta fljótt að ganga alveg til baka.

  • En ríkisstjórnin bað um þá skýrslu, því hún er að íhuga enn frekari skattaálögur.

Kaupmáttur eykst í fyrsta sinn frá hruni

"Launavísitala hækkaði um 2,2 prósent frá maímánuði, en rekja má þetta afgerandi launaskrið til ýmissa samningsbundinna launahækkana sem komu til framkvæmda 1. júní síðastliðinn, til dæmis hjá ASÍ, Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja og BSRB."

"Kaupmáttur í júní síðastliðnum var því 0,3 prósentum meiri en í júní á síðasta ári, og 2,6 prósentum meiri en í maímánuði."

"Þannig má rekja kaupmáttaraukninguna í júní til launahækkana annarsvegar og verðhjöðnunar hinsvegar sem átti sér stað frá fyrri mánuði."

"Kaupmáttarvísitalan stendur nú í rúmlega 106 og hálfu stigi, og hefur því rýrnað um rúm ellefu prósent frá því í ársbyrjun 2008."

 

Takið eftir, að allt og sumt sem munar í fjölda atvinnulausra milli 2. ársfjórðung 2009 og 2. ársfjórðungs 2010 er 500 manns.

Sannarlega gott, að 500 færri séu atvinnulausir - en, þetta er engin risasveifla. Þarf ekki nema, að ferðamanna verðtíðin hafi verið að ganga vel. Einnig getur e-h munað um, strandveiðar sjávarútvegs ráðherra, þó umdeildar séu þá veita þær aukna vinnu í sjávarbyggðum víða um land.

  • Ef trend fyrra ársfjórðungs er svipað að öðru leiti - þá er út-/innflutningur enn að skreppa saman, sem og samneysla.

Vinnumarkaður á 2. ársfjórðungi 2010

Atvinnuleysi 8,7%
Á öðrum ársfjórðungi 2010 voru að meðaltali 16.200 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 8,7% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 9,4% hjá körlum og 8% hjá konum. Frá öðrum ársfjórðungi 2009 til annars ársfjórðungs 2010 fækkaði atvinnulausum um 500 manns.

 

Niðurstaða

Ég held að það sé fullsnemmt að kveðja kreppuna að sinni.

  • Enn eru skuldamál mjög erfiður hemill á vöxt fyrirtækja - sbr. 40% lána séu í vandræðum.
  • Sama á við um heimili, þ.s. tugi þúsunda heimila eru á barmi örvæntingar. 
  • Þjóðfélagið vantar enn umtalsvert upp á heildartekjur til að standa undir núverandi skuldbindingum, sbr. að enn er nettó viðskiptahalli við útlönd.
Heildartölur yfir efnahagslegar hreyfingar 2. ársfjórðungs hafa ekki enn verið byrtar.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 804
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 740
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband