Getum við, aflagt gjaldeyrishöftin, strax? Tekið lánskjaravísitöluna á sama tíma, tímabundið, úr sambandi?

Þetta er ekki ný hugmynd. Hefur heyrst áður. Og, sjálfur hef ég einnig velt henni upp, á mínu bloggi.

  • En, gjaldeyrishöftin búa til svo mörg vandamál, þ.e. krónan er ógjaldgeng fyrir vikið erlendis, og því einungis hægt að greiða af skuldum með erlendum gjaldeyri.
  • Hægt er að gera hana gjaldgenga á ný, með því að afnema höftin. Meira þarf ekki til.

Á hinn bóginn, voru þau nauðsynleg vegna cirka 600 milljarða af krónubréfum, sem föst eru hér á landi. En, ef höftunum er sleppt, verða þau sennilega öll innleyst sem mun kosta Seðlabankann gjaldeyri. 

  • Grunn vandinn, er að það þarf að vera nægur gjaldeyrir til staðar, til að landið verði ekki þá þegar greiðsluþrota.
  • En gjaldeyrishöftunum var einmitt skellt á, þegar leit út að erlendur gjaldeyrir væri að klárast, landið yrði strax greiðsluþrota og við ættum jafnvel ekki gjaldeyri fyrir grunnþörfum eins og eldsneyti, lifjum og matvælum.

Sjá á vef Seðlabanka Íslands: Gjaldeyrisforði

Gjaldeyrisforðinn"Desember 2009: Gjaldeyrisforði Seðlabankans nam 490,1 ma.kr. í lok desember og hækkaði um 87,3 ma.kr. milli mánaða. Hækkunin stafar að mestu af láni frá Norðurlöndunum sem er veitt í tengslum við efnahagsáætlun stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins."

 

 

 

 

 

 

Vilhjálmur Þorsteinsson: Erlendar skuldir - stóra myndin

Til upprifjunar, þá eru næstu gjalddagar erlendra lána ríkissjóðs (sem öll voru tekin fyrir hrun) eftirfarandi:

EUR 300m þann 22. september 2011

EUR 1.000m þann 1. desember 2011

EUR 250m þann 10. apríl 2012

Vilhjálmur Þorsteinsson, 25.1.2010 kl. 02:00

 

Skuggaleg staða:

Ég held, að hið augljósa svar, þegar magn forðans er haft í huga, vs. það fjármagn er þarf að flæða út cirka 600 ma.kr. að verðmæti, vs. þær svimandi háu afborganir í erlendum gjaldeyri, sem eru framundan á næsta ári - sé "NEI."

Það er einnig ljóst, að Ísland stefnir í greiðsluþrot á næsta ári, að öllu óbreyttu.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 757
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 693
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband