Emmanuel Macron sakar Rússa um hakkárás á framboðshreyfingu hans

Skv. fréttum virðist að 9-gígum af gögnum hafa verið stolið af vef framboðs herra Macron og dempt inn á vefinn Pastebin af aðila sem hafi skráð sig á þá síðu undir nafninu EMLEAKS.
--Að sögn Macron séu þetta e-mailar sem starfsmenn framboðsins og samstarfsmenn herra Macron hafi verið að senda sín á milli.
--Engar frekari upplýsingar liggja fyrir.

French candidate Macron claims massive hack as emails leaked

France enters ‘quiet period’ after ‘massive’ email hack

Emmanuel Macron hacked emails: French media ordered by electoral commission not to publish content of messages

 

Engin leið að vita hvort þetta hefur nokkur hin minnstu áhrif

En skv. frönskum lögum -- geta opinberir embættismenn, og frambjóðendur nú ekki tjáð sig.
Að auki virðist -- haltu kjaftu gilda á fjölmiðla!

"France's electoral commission has ordered media not to publish contents of Emmanuel Macron's leaked campaign emails to avoid influencing the election."

T.d. neituðu franskir embættismenn að tjá sig um málið -- til þess að lenda ekki í hugsanlegri ákæru um að reyna að hafa áhrif á kosningarnar.
Hvorki Macron né Le Pen má þá skv. því -- tjá sig um málið!
--Kosningabaráttunni sé opinberlega lokið frá og með föstudag.
--Og það virðist auk þessa, að öll kosningatengd-umfjöllun sé bönnuð nú fram að kjöri á sunnudag.
--Sem sé sennilega hvers vegna, kosningaráð Frakklands hefur bannað formlega fjölmiðla umfjöllun um lekamálið!

Það komi líklega þó ekki í veg fyrir að margvíslegir -- netmiðlar taki málið fyrir.
--En geti hindrað dagblöð, sjónvarpsstöðvar og útvarpsstöðvar.
--Sem geti orðið að fjalla mjög gætilega um það!

  1. Haltu kjaftu lögin --> Geta þar með hugsanlega hindrað að lekinn hafi nokkur umtalsverð áhrif.
  2. Síðan er hann einungis að koma fram --> 2-dögum fyrir kjördag.

Það vekur samt athygli að Emmanuel Macron sakar rússneska aðila um að standa að baki!
Vegna algers skorts á upplýsingum, er ekkert hægt segja frekar um málið!
Það minni þó að einhverju leiti á e-mail leka mál sem varð vegna hakkárásar á framboð Hillary Clonton, þegar leki varð úr höfuðstöðvum Demókrataflokksins.

  • Ég hef þó ekki enn séð umræðu um -- meint hneyksli innan raða framboðs herra Macron.

Þó segir framboð Macrons -- "A spokesperson said the communications only showed the normal functioning of a presidential campaign, but that authentic documents had been mixed on social media with fake ones to sow “doubt and misinformation”."

M.ö.o. sagt að -- fölskum upplýsingum hafi verið blandað saman við - ekta netpósta.
--Engar frekari upplýsingar liggja fyrir!

--Það geti verið að tíminn sé einfaldlega runninn út.
--Fyrir nokkra slíka umræðu til þess að hafa nokkur umtalsverð áhrif.

Poll boost for Macron as French campaign enters final kilometre

  1. Skv. síðustu skoðanakönnunum birt á vikunni -- mælist herra Macron með 62% fylgi -- flokkur hans "En Marche" gæti fengið milli 249-286 þingsæti, en 290 þarf fyrir þingmeirihluta.
  2. Það væri virkilega óvæntur stórsigur -- ef algerlega út úr blámanum, flokkur sem ekki var til fyrir kosningar, allt í einu --> Nær hreinum þingmeirihluta.

Það væru sennilega óvæntustu úrslit í sögu franskra kosninga.
En Macron yrði valdamikill forseti, með því að flokkur hans réði öllu á þingi.
--Nú, ef hann vantar einungis fáein þingsæti upp á meirihluta, væri flokkur hans samt afar ráðandi á þingi --> Þó það þyrfti samstarfs við einn annan flokk --> Sem gerði Macron samt sem áður, valdamikinn --> Ef ekki fullkomlega einráðan!

 

Niðurstaða

Óvænt stefnir í þann möguleika að flokkur sem ekki var til áður en Emmanuel Macron lýsti yfir framboði, þ.e. flokkur Macrons "En Marche" verði annað af tvennu, langsamlega stærsti þingflokkurinn -- eða að sá flokkur nái meirihluta jafnvel.
Ef það fer með þeim hætti, að "En Marche" verður langsamlega stærstur - þannig að samstarf við lítinn flokk dugar - eða endar jafnvel með hreinan meirihluta.
--Þá yrði Emmanuel Macron valdamikill forseti!
--Og væri þá í aðstöðu til að standa við stóru orðin um --> Breytingar!

Eins og staðan í könnunum er loka dagana fyrir kjördag.
Virðist Marine Le Pen, ólíkleg til sigurs!

  1. Hinn bóginn, óvæntur leki á miklu magni E-maila frá "En Marche" flokki Macron.
  2. Sem Emmanuel Macron sakar rússneska aðila um að standa fyrir.
  3. Sá leki minnir að einhverju leiti á -- hakkárásir á framboð Hillary Clinton.
  • Ekkert liggur þó enn fyrir, að hneyksli sé að rísa!
    --En fullyrðingar framboðs Macron -- geti bent til þess að í gögnunum séu upplýsingar, falsaðar eða ófalsaðar, er geti orkað tvímælis.

En máliðþyrfti að verða afar hávært væntanlega í fjölmiðlum.
Til þess að eiga möguleika til þess, að hafa nokkur umtalsverð áhrif á fylgi frambjóðendanna þetta örskömmu fyrir kosningar.

--Mig grunar að tíminn sé runninn út.
--Og að, haltu kjaftu lög, í Frakklandi á helstu fjölmiðla -- sem takmarki möguleika þeirra til að fjalla um málið, frá og með föstudag til sunnudags, líklega takmarki möguleika fjölmiðla til þess að taka málið fyrir -- fyrir kjördag ----> Nema hugsanlega, netmiðlar!

Hugsanlega rís eitthvað upp á nemiðlum -- héf hef a.m.k. ekki heyrt nokkra umfjöllun enn um meint eða raunveruleg hneyksli - úr röðum framboðs Emmanuel Macron.

Nema eitthvað stórt breytist á svo skömmum tíma -- virðist stefna í sigur Macrons.
--Kosningakerfið í Frakklandi virki allt öðruvísi en það bandaríska --> Í Frakklandi geti ekki orðið sambærileg niðurstaða, að frambjóðandi hafi sigur --> Með minnihluta heildaratkvæða.

  • Ef hneyksli rís nú snögglega -- væru sennilega áhrif þess, einna helst til að draga úr kjörsókn --> En það þyrfti væntanlega að ná því að verða hávært.
  • Nú svo afar skömmu fyrir kosningar virðast líkur á verulegum áhrifum slíks hneykslis - lítil!

 

Kv.


Bloggfærslur 6. maí 2017

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 845414

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband