Fjárlagafrumvarp Trumps gagnrýnt fyrir óraunsægi

Fyrir þá sem lesa vilja, fjárlagafrumvarp Trump stjórnarinnar: A NEW FOUNDATION FOR AMERICAN GREATNESS. Trump er greinilega hrifinn af - hástemmdum titlum!

Bendi fólki að - skruna beint niður á bls. 9.
--En allt þar fyrir ofan, flokkast undir það sem ég kalla - innantómt blaður!

Tillögur Trump stjórnarinnar, fengu strax harða gagnrýni - meðal þingmanna Repúblikana flokksins: Trump's budget is facing massive blowback in Congress — and Republicans are some of the loudest complainers.

Gagnrýni annarra var jafnvel enn harðari: Huge cuts to food stamps part of Trump's budget proposal.

Financial Times var einnig fremur gagnrýnið: Trump budget under attack over growth claims and accounting.

 

Frumvarpið er gagnrýnt fyrir fjölda atriða!

  1. "Congressional Budget Office" hefur áætlað meðalhagvöxt í Bandar. á nk. áratug - líklega ekki yfir 2%.
    --Meðan að frumvarp Trump stjórnarinnar, miðar við 3%.
    Það gerir mun upp á 2-amerískar trilljónir yfir tímabilið þ.e. 2þúsund milljarða, hvort hagvöxtur er 2% eða 3% nk. 10 ár.
  2. Síðan er reiknað með því að -- skattalækkanir auki ekki við hallarekstur ríkisins yfir spá tímabilið, þ.e. 10 ár.
    "The Budget assumes deficit neutral  tax re-form, which the Administration will work closely  with the Congress to enact."
    --Meðan að "Congressional Budget Office" hefur áætlað 5tn. amerískar eða 5.000ma. dollara í viðbótar hallarekstur yfir spátímabilið - miðað við framlagðar hugmyndir um skattalækkanir.
  3. Mörgum finnst ótrúlegt að skattalækkanir -- skapi slíka aukningu veltutekna ríkissjóðs, að það dugi hvort tveggja í senn --> Að fjármagna skattalækkanirnar sjálfar, og leiði einnig til lækkunar hallarekstrar alla leið niður í 0.
    --> Sumir saka Trump stjórnina, um "double counting" þ.e. að telja peningana tvisvar, að sami peningurinn eigi að gera tvennt.
  4. Vegna þess að -- ekki á að snerta við MedicCare og MedicAid, þó að stöðug kostnaðaraukning við þau stuðningskerfi - sé í farvatninu á nk. áratug.
    --Meta sérfræðingar, að til að skila -- hallalausum fjárlögum yfir 10 ára tímabil.
    --Þurfi að skera allt annað en - útgjöld til hermála, sem Trump við auka, og útgjöld til MedicCare og MedicAid --> Um ca. 40% yfir 10 ára tímbilið.
  5. T.d. er bent á: Huge cuts to food stamps part of Trump's budget proposal. Að skv. fjárlagafrumvarpinu -- sé stuðningur við "matarmiða" til þeirra sem ekki eiga fyrir mat. Skorin niður - stax um 25% eð 1/4.
    --En yfir 40 milljón manns treysta á það kerfi.
    Fjárlagafrumvarpið innihaldi stóra niðurskurði í fleiri þáttum, er lúta að stuðningi við fátækar fjölskyldur, og aðra er minna mega sín.

Persónulega trúi ég alls ekki kenningunni í frumvarpinu --> Að skattalækkanir muni ekki leiða til nýrrar skuldsetningar ríkissjóðs Bandaríkjanna!

En sama kenning var sett fram í tíð - Bush stjórnarinnar, eins og flestir ættu að vita þá hækkuðu ríkisskuldir Bandaríkjanna duglega á þeim 8 árum er Bush var forseti.
--Og það var alls ekki bara, stríðskostnaðurinn vegna Íraks stríðsins - sem skóp þá aukningu.

Rétt að nefna, að ríkisstjórn Ronalds Reagan - fylgdi úr hlaði við upphaf fyrra kjörtímabils Reagans - sambærilegum skattalækkunarhugmyndum til eflingar hagvaxtar, er einnig áttu ekki að skila auknum hallarekstri.
--Það gekk ekki eftir þá heldur!

  • Þannig að það virðist algerlega öruggt, að þetta frumvarp ef það næði fram að ganga -- skilaði verulegri aukningu ríkisskulda alríkissjóðs Bandaríkjanna!

--Þrátt fyrir mjög umtalsverðan niðurskurð -- fátækra aðstoðar af margvíslegu tagi.

Meðal skattalækkana má finna þætti sbr:
--Afnám "alternative minimum tax" - sem nær einungis auðugir einstaklingar lenda í.
--Og samtímis, að erfðaskattur er afnuminn, sem einungis er rukkaður inn fyir eignir yfir milljón dollara að verðmæti --> Sem bent hefur verið á, að mundi spara Trump fjölskyldunni töluverðan skattpening, ef og þegar mundi koma að því, að Trump deildi eignum með þeim sem erfa hann!

  • Það sé því alveg ljóst fyrir hverja Trump vinnur!

 

Niðurstaða

Annars virðist fátt benda til þess að þetta fjárlagafrumvarp nái fram að ganga -- en haft er eftir áhrifamiklum Repúblikana:

"Sen. John Cornyn - "Almost every president's budget proposal is basically dead on arrival, including President Obama's,"

Skv. því virðist áhrifamikill Repúblikana öldungadeildarþingmaður - segja að frumvarp Trumps fái líklega engu betri meðferð, þó Trump sé forseti kjörinn af hálfu Repúblikana flokksins -> En sambærileg frumvörp í tíða Obama!

Það sé áhugavert, ef þingmenn Repúblikana - taka ekki meira mark á Trump, en þeir tóku á Obama!

 

Kv.


Bloggfærslur 24. maí 2017

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 845416

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband