Fögnum ekki of snemma!!

Eins og Alþjóð veit, hefur fjármálanefnd Alþingis, samþykkt fyrirvara við Icesave samninginn.

Áhugavert hefur verið að verða vitni að viðbrögðum ráðamanna.

Forsætisráðherra "segist ákaflega ánægð með að þessi áfangi skyldi nást í nótt og segist einnig ákaflega þakklát þeim þingmönnum sem stuðluðu henni. Niðurstaðan sé mjög mikilvæg. Hún segir fyrirvarana fyrst og fremst snerta fullveldi þjóðarinnar og efnahagslega framtíð hennar og telur að hvert einasta þjóðþing í Evrópu hefði talið sig í fullum rétti til að setja slík öryggisákvæði."..."Jóhanna segist ekki telja að hægt sé að tala um að fyrirvararnir feli í sér samningsrof. Hún telur fullkomlega hægt að útskýra málið fyrir Bretum og Hollendingum þannig að hægt sé að ná sátt við þjóðirnar. Þær hafi enda hagsmuni af því að Íslendingar geti staðið við skuldbindingar sínar."

Fjármálaráðherra "Steingrímur segist ákaflega feginn að nefndin hafi lokið störfum. Hann fagnar því jafnframt að þetta breið samstaða náist í nefndinni og líst jafnframt vel á þá efnislegu umgjörð sem þarna er dregin utan um afgreiðslu málsins. Hann segir visst samband verið haft við Hollendinga og Breta á bak við tjöldin til að halda þeim upplýstum um gang mála þó engar formlegar viðræður hafi átt sér stað."

 

Hvers vegna, eru viðbrögð þeirra svo áhugaverð?

  • Samningurinn var sagður, það besta sem hægt hefði verið að ná, og það ítrekað af fjármálaráðherra, aðstoðarmanni hans, og forsætisráðherra.
  • Að ekki væri von, að fá Hollendinga og Breta aftur að samningaborði. Bæði fjármálaráðherra og aðstoðarmaður hans, sögðu margítrekað eitthvað í þá átt - ekki endilega akkúrat í þessum orðum, að vonlaust væri að semja á ný við Hollendinga og Breta, að samningarnir væru endanlegir, og við yrðum að lifa við það. Annað væri ábyrgðalaust.

Nú, verða menn að skýra grunnafstöðu sína.

Allt í einu, hefur náðst samkomulag, meirihluta fjármálanefndar, um að senda Hollendingum og Bretum nýtt samingstilboð, og ráðamenn mæra þá útkomu, þrátt fyrir ítrekaðar fyrri yfirlísingar, og að hafa statt og stöðugt, vikum saman, barist um hæl og hnakka gegn því, að samið væri á ný við Hollendinga og Breta.

Spurningar:

  • Taldi fólk samninginn góðann, eða slæmann.
  • Taldi það sama fólk, að samninganefndin hefði gert mistök eða ekki.
  • Hvernig mat það, líkur til þess, eða ekki, að hægt væri að semja á ný við Hollendinga og Breta?

Ég er sammála, formanni Sjálfstæðisflokksins, að í fyrirvörunum, felist nýtt samningstilboð til Breta og Hollendinga. Flestir lögfræðingar, og aðrir fræðingar, virðast einnig sama sinnis.

Einhliða fyrirvarar, geta ekki gilt nema mótaðilarnir samþykki. Þá mótast líkur þess að þeir gerir það, af líkum þess að hægt sé að ná fram betri samingum við Breta og Hollendinga.

  • Ef menn telja líklegt, að þeir samþykki þessa fyrirvara, þá hafði aðstoðarmaður fjármálaráðherra, rangt fyrir sér, þegar hann hélt því fram, að Icesave hefði verið það besta sem hægt hafi verið að ná fram, og einnig um það, að ekki væri hægt að endursemja við Hollendinga og Breta.
  • Ef menn telja líklegt, að þeir hafni þessum fyrirvörum, þá hafði aðstoðarmaður Fjármálaráðherra rétt fyrir sér í öllum höfuðatriðum.

Þ.e. ekki "concistent" að hafa verið ósammála því, að hægt væri að semja á ný við Hollendinga og Breta, og telja nú líklegt að þeir samþykki fyrirvarana.

Þess vegna, er afstaða Fjármálaráðherra og Forsætisráðherra, frá því í gær, "inconsistent".

 

Þ.e. allt of snemmt að fagna, eins og sumir gera.

Kálið verður ekki sopið þó í ausuna sé komið.

Þ.e. allt eins líklegt, að þetta sé einungis byrjun að nýjum kafla Icesave deilunnar, eins og að þetta sé upphafið að endi hennar.

Möguleg viðbrögð:

  1. Bretar og Hollendingar, samþykkja fyrirvarana, án athugasemda.
  2. Bretar og Hollendingar, hafna ekki fyrirvörunum, en vilja ræða nánari útfærslu og samninganefnd er send út.
  3. Bretar og Hollendingar, hafna sumum fyrirvörum alfarið, en ekki öðrum. Samninganefnd er send, og við tekur nýtt langt samingaþóf.
  4. Bretar og Hollendingar, hafna fyrirvörunum alfarið, og setja okkur úrslitakosti, annars sé samkomulagið hrunið. 
Ég treysti mér alls ekki, til að slá upp líkum þess, hvaða viðbrögð eru líklegri en önnur hjá Hollendingum og Bretum.

-------------------------------------------

Fyrir neðan, texti breytingartillögu Fjármálanefndar Alþings:

Ríkisábyrgð á Icesave-lánasamningunum

Fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, er heimilt að veita Tryggingarsjóði innstæðueigenda og fjárfesta ríkisábyrgð vegna lána sjóðsins frá breska og hollenska ríkinu samkvæmt samningum dags. 5. júní 2009 til að standa straum af lágmarksgreiðslum, sbr. 10. gr. laga um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta, nr. 98/1999, til innstæðueigenda hjá Landsbanka Íslands hf. í Bretlandi og Hollandi. Ábyrgðin tekur til höfuðstóls lánanna eins og hvor um sig mun standa að sjö árum liðnum frá undirritun samninganna, 5. júní 2016, auk vaxta af lánsfjárhæðinni.

Ríkisábyrgðin afmarkast að öðru leyti af ákvæðum samninganna og fyrirvörum þeim sem koma fram í lögum þessum. Fyrirvararnir eru óaðskiljanlegur hluti ríkisábyrgðarinnar.

  1. Við 2. gr. Greinin orðist svo ásamt fyrirsögn:

Forsendur fyrir veitingu ríkisábyrgðar

Forsendur fyrir veitingu ríkisábyrgðar samkvæmt lögum þessum eru:

1.  Að lánasamningarnir verði túlkaðir í samræmi við hin umsömdu viðmið, sem samþykkt voru 14. nóvember 2008 á milli Íslands, Evrópusambandsins og hlutaðeigandi aðildarríkja, þannig að tekið verði tillit til hinna erfiðu og fordæmislausu aðstæðna sem Ísland er í og nauðsynjar þess að ákveða ráðstafanir sem gera Íslandi kleift að endurreisa fjármála- og efnahagskerfi sitt. Í þessu felst meðal annars að samningsaðilar verði við rökstuddri og málefnalegri beiðni Íslands um endurskoðun samninganna samkvæmt ákvæðum þeirra.

2. Að staða Íslands sem fullvalda ríkis komi í veg fyrir að gerð sé aðför í eignum þess sem það þarf nauðsynlega á að halda til starfrækja hlutverk sitt sem fullvalda ríki með viðunandi hætti. Sama á við um eignir íslenska ríkisins erlendis, þar á meðal eignir Seðlabanka Íslands, sem njóta verndar samkvæmt almennum reglum þjóðaréttar.

3. Að hvergi sé haggað við óskoruðum yfirráðum Íslands yfir náttúruauðlindum landsins og rétti handhafa íslensks ríkisvalds til að kveða á um nýtingu og skipan eignarhalds á þeim.

 

2.      Bætt verði við nýrri grein, 3. gr., svohljóðandi ásamt fyrirsögn:

Efnahagsleg viðmið

Ríkisábyrgð samkvæmt lögum þessum er grundvölluð á að fjárhagsleg byrði vegna hennar verði innan viðráðanlegra marka þannig að Íslandi sé gert kleift að endurreisa fjármála- og efnahagskerfi sitt. Til að fylgjast með og meta forsendur fyrir endurskoðun á samningunum skal ríkisstjórnin gera ráðstafanir til þess að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn geri í síðasta lagi fyrir 5. júní 2015 IV. greinar úttekt á stöðu þjóðarbúsins, einkum með tilliti til skuldastöðu og skuldaþols. Að auki verði í úttektinni lagt mat á þær breytingar sem orðið hafa miðað við mat sjóðsins frá 19. nóvember 2008.

 

Við mat á forsendum til endurskoðunar á samningunum skal einnig tekið tillit til stöðu í þjóðarbúskapnum og ríkisfjármálum á hverjum tíma og mats á horfum í þeim efnum þar sem m.a. verði sérstaklega litið til gjaldeyrismála, gengisþróunar og viðskiptajöfnuðar, hagvaxtar og breytinga á landsframleiðslu svo og þróunar fólksfjölda og atvinnuþátttöku. 

 

Ríkisábyrgð samkvæmt lögum þessum er miðuð við hámark á greiðslum úr ríkissjóði. Þetta hámark miðast á árabilinu 2017-2023 við 4% af vexti vergrar landsframleiðslu, sbr. 4. mgr., mældri í pundum vegna lánasamningsins við breska ríkið og 2% af vexti vergrar landsframleiðslu mældri í evru vegna lánasamningsins við hollenska ríkið. Hlutföll þessi verða helmingi lægri árin 2016 og 2024. Greiðslur skulu endurskoðaðar um leið og endanlegar tölur um verga landsframleiðslu liggja fyrir.

 

Vöxtur á vergri landsframleiðslu Íslands samkvæmt 3. mgr. skal mældur frá 2008 til greiðsluárs á árabilinu 2016-2024 annars vegar í pundum vegna lánasamningsins við breska ríkið og hins vegar í evrum vegna lánasamningsins við hollenska ríkið. Útreikningur á greiðslum samkvæmt 3. mgr. skal byggjast á meðalgengi miðgengis Seðlabanka Íslands á pundi og evru gagnvart krónu á ársgrundvelli og mati á vergri landsframleiðslu mældri samkvæmt skilgreiningu Eurostat.

 

Verði greiðslubyrði lánasamninganna meiri en nemur hámarki samkvæmt 3. mgr. skulu teknar upp viðræður við aðila lánasamninganna um áhrif þess á samningana og skuldbindingar Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.  Fari slíkar viðræður ekki fram eða leiði þær ekki til niðurstöðu, takmarkast ríkisábyrgð í samræmi við hámark 3. mgr. nema Alþingi ákveði annað.

 

3.      Bætt verði við nýrri grein, 4. gr., svohljóðandi ásamt fyrirsögn:

Lagaleg viðmið

Ekki hefur fengist leyst úr því álitaefni hvort aðildarríki EES-samningsins beri ábyrgð gagnvart innstæðueigendum vegna lágmarkstryggingar, þar á meðal við kerfishrun á fjármálamarkaði. Allt að einu hefur Ísland gengið til samninga við Bretland og Holland þótt það hafi ekki fallið frá rétti sínum til að fá úr þessu álitaefni skorið. Fáist síðar úr því skorið, fyrir þar til bærum úrlausnaraðila, að slík ábyrgð hvíli ekki á Íslandi eða öðrum ríkjum EES-samningsins skal ríkisábyrgð samkvæmt lögum þessum bundin þeim fyrirvara að fram fari viðræður milli Íslands og viðsemjenda þess um áhrif þeirrar niðurstöðu á lánasamningana og skuldbindingar ríkisins.

 

Ríkisábyrgð samkvæmt lögum þessum miðast við það að við úthlutun eigna við uppgjör Landsbanka Íslands hf., eða þrotabús hans, fari eftir íslenskum lögum eins og þau voru 5. júní 2009, þar með töldum lögum nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið. Ábyrgðin takmarkast við að Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta láti á það reyna fyrir þar til bærum úrlausnaraðilum hvort kröfur hans gangi við úthlutun framar öðrum hluta krafna vegna sömu innstæðu. Verði niðurstaðan á þann veg skulu teknar upp viðræður við aðila lánasamninganna um áhrif þess á samningana og skuldbindingu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.

 

Fari ekki fram viðræður samkvæmt 1. eða 2. mgr. eða leiði þær ekki til niðurstöðu, getur Alþingi takmarkað ríkisábyrgð samkvæmt lögum þessum í eðlilegu samræmi við tilefnið. 

 

4.      Bætt verði við nýrri grein, 5. gr., svohljóðandi ásamt fyrirsögn:

Endurskoðun lánasamninganna

Ákvörðun um að óska eftir viðræðum um breytingar á lánasamningunum samkvæmt endur­skoðunarákvæðum þeirra, skal tekin með samþykki Alþingis.  Við þá ákvörðun skal m.a. byggt á forsendum ríkisábyrgðarinnar og viðmiðum samkvæmt lögum þessum. Meta skal hvort óska skuli endurskoðunar eigi síðar en 5. október 2015 og skal niðurstaða þess mats lögð fyrir Alþingi fyrir lok þess árs.

 

5.      Bætt verði við nýrri grein, 6. gr., svohljóðandi ásamt fyrirsögn:

Eftirlit Alþingis

Fjármálaráðuneytið, viðskiptaráðuneytið og Seðlabanki Íslands skulu reglubundið meta þróun heildar­skulda, greiðslubyrði og skuldaþol íslenska ríkisins og þjóðarbúsins, þ.m.t. vegna ábyrgðar ríkisins skv. lögum þessum.

Fjármálaráðherra skal árlega, í fyrsta sinn fyrir 1. mars 2010, upplýsa Alþingi um framkvæmd samninganna og mat skv. 1. mgr. þessarar greinar.  Í skýrslu ráðherra skal m.a. gera grein fyrir því hvort endurheimtur eigna í búi Landsbanka Íslands hafi að marki orðið aðrar en gert var ráð fyrir við gerð samninganna (75%) og mat lagt á greiðslubyrði sem hlutfall af vergri landsframleiðslu.

Við eftirlit fjárlaganefndar með framkvæmd fjárlaga skal m.a. meta hvernig skuldbindingar skv. lánasamningunum og lögum þessum þróast.  Nefndin skal hafa náið samstarf við Ríkis­endurskoðanda sem skal eiga rétt á öllum nauðsynlegum upplýsingum frá fjármála­ráðuneyti, Seðlabanka Íslands og Tryggingarsjóði innstæðueigenda og fjárfesta.

 

Fjárlaganefnd hefur heimild til að leita ráðgjafar frá innlendum og erlendum sérfræðingum vegna eftirlits hennar skv. lögum þessum.  Kostnaður vegna þess greiðist úr ríkissjóði.

 

6.      Bætt verði við nýrri grein, 7. gr., svohljóðandi ásamt fyrirsögn:

Skilmálar ríkisábyrgðar gagnvart Tryggingarsjóði innstæðueigenda og fjárfesta

Fjármálaráðherra setur Tryggingarsjóði innstæðueigenda og fjárfesta frekari skilyrði vegna ábyrgðarinnar í sérstökum samningi við sjóðinn, einkum varðandi upplýsingagjöf til Alþingis, eftirlit með fjárhag sjóðsins og endurheimtu eigna úr búi Landsbanka Íslands.

 

7.      Bætt verði við nýrri grein, 8. gr., svohljóðandi ásamt fyrirsögn:

Endurheimtur á innstæðum

Ríkisstjórnin skal þegar í stað grípa til allra þeirra nauðsynlegu ráðstafana sem þarf til að endurheimta það fé sem safnaðist inn á Icesave reikningana. Í þeim tilgangi skal ríkisstjórnin fyrir 15. október 2009 hafa frumkvæði að samstarfi við þar til bæra aðila, m.a. yfirvöld í Bretlandi, Hollandi og Evrópusambandinu, og óska aðstoðar þeirra við að rekja hvert innstæðurnar af Icesave reikningunum fóru. Ríkisstjórnin skal fyrir árslok 2009 semja áætlun um hvernig reynt verður að endurheimta það fé sem kann að finnast.

Í því skyni að lágmarka ríkisábyrgð samkvæmt lögum þessum skal ríkisstjórnin einnig gera ráðstafanir, í samráði við þar til bæra aðila, til þess þeir sem kunna að bera fjárhagsábyrgð á þeim skuldbindingum sem stofnast hafa vegna Icesave reikninganna, verði látnir greiða það tjón.

 

8.      Bætt verði við nýrri grein, 9. gr., svohljóðandi ásamt fyrirsögn:

Gildistaka ofl.


Lög þessi öðlast þegar gildi. Ákvæði laga nr. 121/1997, um ríkisábyrgðir, að undanskilinni 5. gr. þeirra laga, gilda ekki varðandi þá ábyrgð sem lög þessi taka til.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 845414

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband