Norður Kóreönsk eldflaug flýgur yfir Japan! Verður stríð milli Norður Kóreu og Bandaríkjanna?

Sá þessa frétt á Reuters þá nýkomna í loftið: North Korea fires missile over Japan.

Skv. fréttinni flaug eldflaugin yfir Hokkaido eyju - lenti 2.000km. austan Japans í Kyrrahafi.
--Þetta virðist hafa verið langdræg eldflaug!

Þessi mynd er frá sl. sumri en gefur vísbendingu um fjarlægðir!

http://www.channelnewsasia.com/image/9166242/0x0/1536/924/4066cd38b8077b4acca1f8e66a58576c/PQ/north-korea-missile-launch.jpg

  1. "The unidentified missile reached an altitude of about 770 km (480 miles) and flew 3,700 km (2,300 miles), according to South Korea’s military..."
  2. "The missile flew over Japan, landing in the Pacific about 2,000 km (1,240 miles) east of Hokkaido, Japan Chief Cabinet Secretary Yoshihide Suga told reporters in a hastily organized media conference."

Strangt til tekið veldur þetta tilraunaskot engum tjóni!

Flaugin féll eftir allt saman í hafið þ.s. mesta lagi hún hefur drepið einhverja fiska.

En í þessu felast auðvitað skýr skilaboð frá -- Kim Jon Un, einræðisherra Norður Kóreu.
Að hann sé algerlega staðráðinn í því að halda áfram kjarnorkuvopnauppbyggingu ríkisstjórnar hans.
Þrátt fyrir nýjar og verulega hertar refsiaðgerðir sem Öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna samþykkti um daginn, sjá mína umfjöllun: Hertar refsiaðgerðir á Norður Kóreu samþykktar í Öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna.

Eldflaugaskotið ætti ekki endilega koma á óvart, hafandi í huga hvernig ríkisstjórn NK - tjáði sig í fjölmiðla í kjölfar þess að Öryggisráðið samþykkti hinar hertu refsiaðgerðir, sbr:

The world will witness how the DPRK tames the U.S. gangsters by taking a series of actions..” >causing< “...the greatest pain and suffering it has ever gone through in its entire history...

Þetta er þá kannski þáttur í þeirri áætlun -- að koma taumhaldi á stjórnina í Washington.
Greinilega ætlar Kim Jong Un að halda kjarnorkuáætlun sinni til streitu.

 

Spurning hvernig Washington bregst við?

Trump virtist kominn inn á þá línu að svara með hertum refsiaðgerðum - hann kallaði aðgerðir þær sem Bandaríkin fengu Öryggisráðið til að samþykkja, góða byrjun.
--M.ö.o. er Trump þá að íhuga frekari aðgerðir af því tagi.

Hinn bóginn getur Trump alltaf skipt um skoðun.
--Ekki liggja viðbrögð Washington enn fyrir er ég rita þessar línu!

 

Niðurstaða

Rétt að muna að þrátt fyrir allt eru aðgerðir Kim Jong Un - ekki endilega algert brjálæði. Eftir allt saman ef hann væri brjálaður - hefði hann getað þess í stað ákveðið að hefja stríð. Eldflaugin í mesta falli drap einhverja fiska. Ekkert eiginlegt tjón m.ö.o.

En hann náttúrulega er með þessu skömmu eftir nýjar refsiaðgerðir Öryggisráðsins og umtal Trumps um enn harðari sjálfstæðar aðgerðir Bandaríkjanna í býgerð -- að reka upp fingurinn til Trumps.
--Það verður áhugavert að frétta hver viðbrögð Washington verða.

Enn gildir að mér virðist stríð alltof áhættusöm aðgerð.
Manntjón klárlega óskaplegt - bæði löndin NK og SK gætu endað í rústum, milljónir látnar.
--Svo þrátt fyrir þetta, á ég ekki von á ákvörðun frá Washington um að hefja stríð.

En einhver viðbrögð klárlega verða!

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ætli þeir hafi efni á fleirum?          En verst er að hertar aðgerðir bitna á almenningi sem líða skort.

Helga Kristjánsdóttir, 15.9.2017 kl. 02:36

2 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Þannig er alltaf með refsiaðgerðir.
Kv.

Einar Björn Bjarnason, 15.9.2017 kl. 11:11

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Var þetta ekki "tilraunaskot"?  Hvað ef það hefði lent á einhverri borginni á Hokkaido?  Ef nokkuð, myndi ég halda að Japan yrði USA fyrri til að grípa til mótaðgerða.

Kolbrún Hilmars, 15.9.2017 kl. 12:10

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Það liðu bara 10 mínútur frá skoti og þangað til að hún datt í sjóinn.Eru nokkrar varnir til við þessu?  Það eru 25 mlljónir óupplýstra saklausra manna sem búa í N-Kóreu sem eru fangar þessa brjálæðings KimJon Un 50 milljónir örskammt frá í S-Kóreu. Hvernig á að fást við Kim?

Kínverjar segja sig frá þessu.Hvað verður þá næst? Hafnbann? No-Fly? Kjarnorkusprengingar  í bakgarði Kína? 

þetta er svakaleg útlit.

Halldór Jónsson, 15.9.2017 kl. 21:48

5 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Halldór, THAAD varnarkerfi Bandaríkjanna er til staðar í Japan -- það hefur öfluga radara og má reikna með að þeir radarar geti mjög fljótt lesið í stefnu flaugar -- þetta eru langdrægar gagneldflaugar hannaðar til að skjóta niður aðrar eldflaugar, þá stórar eldflaugar er geta borið t.d. kjarnavopn.
--Þær geta þó einnig skotið niður flugvélar.
Ég efa ekki að THAAD hefði strax verið beitt ef stefna flaugar hefði verið á byggðalag á Hokkaido.

"Hvað verður þá næst? Hafnbann? No-Fly? Kjarnorkusprengingar  í bakgarði Kína? "
Það eru þegar kjarnasprengjur í þeirra bakgarði, enda NK sprengt nokkrar slíkar sl. ár - a.m.k. tvær á þessu ári.
--Efa stórlega að "no fly zone" sé praktískt þarna.
Of mikil hætta á að starta Kóreustríðinu aftur.

Það eiginlega blasir ekki margt við sem unnt er að gera.
--Meðan að Kína og Rússland skrúfa ekki alveg fyrir NK.
--Getur NK haldið áfram.


Kv.

Einar Björn Bjarnason, 16.9.2017 kl. 01:45

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 34
  • Sl. sólarhring: 97
  • Sl. viku: 117
  • Frá upphafi: 846755

Annað

  • Innlit í dag: 31
  • Innlit sl. viku: 113
  • Gestir í dag: 31
  • IP-tölur í dag: 31

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband