Trump gagnrýndi yfir helgina hægri sinnaða Repúblikana - harkalega, hótaði að vinna að lagabreytingum í framtíðinni með Demókrötum

Greinilegt er að Trump sl. sunnudag, var bálreiður svokölluðum "Freedom Caucus" þ.e. hópi harðlínu hægrimanna meðal þingmanna Repúblikana -- sem neituðu að greiða atkvæði sl. föstudag með frumvarpi Trumps um breytingar á lögum um sjúkratryggingar.

Trump attacks fellow Republicans for wrecking healthcare plans

White House looks past conservatives on tax reform - to Democrats

Trump:Democrats are smiling in D.C. that the Freedom Caucus, with the help of Club For Growth and Heritage, have saved Planned Parenthood & Ocare!,”

Priepus: “Perhaps it’s time for us to start talking to some moderate Democrats,” - “ . . . This president’s not a partisan president.” - "If we can come up with a bill that accomplishes the goals of the president with Republicans alone, we'll take it and we'll move forward with it,"

 

Ég velti þó fyrir mér hvaða alvara geti verið að baki þeirri hótun - að stjórn Trumps semji við hluta þingmanna Demókrataflokksins!

Senate minority leader Charles Schumer:It’s virtually impossible for us to work with him,

En það virðist töluverð gjá milli afstöðu Demókrata og ríkisstjórnar Trumps - varðandi fyrirhugaðar skattalagabreytingar.
--Sem Demókratar hafa harðlega gagnrýnt - sem gjöf til auðugra.

Demókratar eru fyrir utan það - ósáttir með marga þætti stefnu stjórnar Trumps.
--Ekki síst fyrirhugaðar aðgerðir í þá átt - að snúa við stefnumörkunum ríkisstjórnar Obama, er beinast að því að -- draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda.
--Trump hefur kallað -Parísarsamkomulagið- slæmt fyrir Bandaríkin, og störf innan Bandaríkjanna.

Fleiri mál má nefna -- sbr. umdeild olíuleiðsla sem til stendur að klára að leggja um landsvæði Indíána -- gegnt harðri andstöðu þeirra, framkvæmdir sem Obama fyrir rest ákvað að stöðva.
--Og ákvarðanir um að veita heimildir til olíuleitar -- á verndarsvæðum í Alaska.

  1. Þannig að mér virðist Trump milli steins og sleggju.
  2. Þ.e. hann fylgi stefnu sem sé í svo mörgum atriðum -- þvert á vilja Demókrata.
  3. Að það virðist -- fremur ósennilegt að hann geti leitað til þingmanna Demókrataflokksins, til að redda í gegn; það sem á eftir að verða -- vægt sagt umdeildar skattalagabreytingar.
    --Ef af verða, þ.e. að segja.
  • Þannig að þ.e. útlit fyrir, að hann neyðist til að --> Beygja sig fyrir stefnu "Freedom Caucus."

En þeir vilja ganga mun lengra í niðurskurði ríkisútgjalda, en Trump hefur fram að þessu virst tilbúinn til.
Þar sem hugmyndir "Freedom Caucus" fela í sér, mun harkalegri niðurskurð velferðarútgjalda, en Trump hefur fram að þessu - tekið í mál.

En niðurskurður sá sem harðlínu hægrimenn í Repúblikanaflokknum vilja.
--Mundi líklega alls ekki falla í kramið hjá kjósendum Trumps sjálfs.

  1. En töluvert af hvítum karlmönnum í eldri kanntinum.
  2. Og hvítum verkamönnum.
  • Kusu Trump.

Og á þeim hópum mundu niðurskurðarhugmyndir harðlínu hægri manna meðal Repúblikana -- einkum bitna.
--Samtímis er ósennilegt að "Freedom Caucus" taki í mál, að Trump verji auknum fjármunum til opinberra framkvæmda.

  • Þannig að þeir mundu nokkurn veginn fullkomlega -- setja á steikingarpott, mikilvæg kosningaloforð Trumps gagnvart sínum kjósendum.

Ég held að þessi hópur hægri manna <--> Séu ekki vinir Trumps.

 

Niðurstaða

Trump getur verið lentur í mjög erfiðri stöðu - þ.e. í annan stað hefur hann undanfarið hrint af stað stefnumótandi atriðum sem reita í mörgum atriðum þingmenn Demókrataflokksins til reiði.
Á sama tíma, er að koma í ljós -- að harður kjarni hægri sinnaðra þingmanna meðal Repúblikana flokksins, hafa engan sérstakan áhuga á að fylgja stefnu Trumps. Heldur sinni eigin stefnu.
--Þeim virðist einfaldlega slétt sama, þó að þeirra stefna muni sennilega ganga á svig við nokkur mikilvæg kosningaloforð Trumps gagnvart eigin kjósendum.
--Virðast samt sem áður - ætla að gera tilraun til þess, að þvinga fram sína stefnu.

Þetta var leikur sem þeir endurtekið léku í forsetatíð Obama.
Það sé áhugavert, að þeir virðast ætla að halda því áfram, í tíð Trumps.
--Ef það reynist rétt skilið, að "Freedom Caucus" ætli sér ekki að gefa sitt eftir.

  1. Þá geti svo farið, að Trump lendi milli 2-ja veggja á þinginu.
  2. Þ.e. harðlínu þinghóps hægri manna í Repúblikanaflokknum - og Demókrata.

Ef þetta reynist svo vera - þá getur Trump staðið fyrir erfiðum valkostum.
Ef hann ætlar sér að geta komið nokkru fram á Bandaríkjaþingi.

  • En vart semja Demókratar heldur við hann.
    --Nema Trump gefi eitthvað mikilvægt eftir af sínum stefnumálum.

Trump gæti þá orðið að velja!
--Hvaða kosningaloforð hann svíkur.

En það geti verið að stefni í, að hann hafi einungis val milli þess að hörfa undan Demókrötum - eða harðlínu hægri mönnum innan Repúblikana flokksins.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 6
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 844896

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband