Trump vs. Clinton nk. haust sennilegasta útkoman

Sigur frú Clinton í South Carolina getur reynst vera vendipunktur - vegna þess hversu afgerandi hann var -annars vegar- og -hins vegar- að Clinton fékk algerlega yfirgnæfandi atkvæði meðal minnihlutahópa!
En, ef Clinton nk. haust fær drjúgan meirihluta atkvæða minnihlutahópa - þá dugar það til sigurs á landsvísu, svo fremi sem hún stapar ekki stórt meðal hvítra.
Trump virðist sérstaklega sterkur meðal hvítra karlmanna - sem virðast óánægðasti hópurinn; en rökrétt er að ætla að harðar yfirlýsingar hans gagnvart innflytjendum, auðveldi Clinton mjög að afla sér fylgi Bandaríkjamanna af spænskumælandi ætterni - og Clintonunum hefur sögulega séð, gengið vel meðal svartra.
Það sé eina undantekningin -- þegar Obama fékk algeran meirihluta svartra gegn Hillary Clinton í prófkjöri.
En nú sé Obama augljóslega ekki í framboði.

Hillary Clinton Wins South Carolina Primary

Inside the Republican Party’s Desperate Mission to Stop Donald Trump

 

Sigur Donald Trumps virðist nú yfirgnæfandi líklegur - meðan að Hillary Clinton er ekki alveg enn komin með sambærilegt forskot, virðist hún samt þó líklegri en Sanders

Það virðist þó mega eiga von á -plottum- gegn Trump á landsfundinum er verður haldinn nk. sumar, þegar forkosningunum er lokið og fulltrúarnir sem kosið hefur verið um koma saman til að velja með formlegum hætti hver verður í framboði.
Vonir andstæðinga Trumps virðast á þá leið <--> Að Trump hafi ekki náð meirihluta kjörmanna, þannig að síðasta sekúndu plott á landsfundinum, geti hrifað af honum - útnefninguna.

  • Áhættan sem Repúblikanar þá taka er hugsanlegt - sérframboð Trumps. Sem við slíkar aðstæður, er hann gæti sagt -"the establisment is trying to bring me down"- gæti fengið mjög umtalsvert fylgi -- og algerlega hindrað möguleika hvers þess sem yrðu útnefndur ef sá væri ekki Trump, til sigurs gegn Clinton.

Clinton við slíkan klofning meðal Repúblikana mundi sennilega sigla til svokallaðs "landslide."

Clinton á sennilega ekkert slíkt á hættu -- ef hún vinnur sæmilega öruggan sigur, þá verður landsfundur Demókrata án vafa nokkurn veginn án stórra pólitískra drama.

  • Hún gæti meira að segja boðið Bernie Sanders sæti í stjórninni - til að lækna sárin.
  1. Clinton virðist hafa haft góða áætlun til að nálgast svarta kjósendur - þ.e. hún dásamaði forsetatíð Obama, sagðist bera mikla virðingu fyrir hans forsetatíð - og sagðir mundu halda áfram hans góðu verkum.
  2. Meðan að Sanders, sem er með "anti establisment campaign" kom að sem gagnrýnandi - sem virðist ekki hafa fallið í kramið meðal svartra kjósenda í South Carolina - enda virðast þeir hafa stutt Obama í bæði skiptin af umtalsverðri eindrægni.

    Að auki skaðar það hann líklega - að hann er ekki nærri eins landsþekktur og frú Clinton - margir kjósendur þekki hann ekki, sem vita hver Clinton er.
  • Sanders virðist einungis hafa unnið meðal hvítra karlmanna - meðan að Clinton náði naumum sigri heilt yfir meðal hvítra.

"With 99 percent of the vote counted, Mrs. Clinton won 73.5 percent, to 26 percent for Mr. Sanders."

"Turnout was about 370,000, according to Edison Research — modest compared with the 532,000 ballots cast in the Clinton-Obama primary race here in 2008, and well below the record 743,000 votes cast in South Carolina’s Republican primary last Saturday, which Mr. Trump won."

Áhugavert hve þátttaka var lítil í prófkjöri Demókrata í þetta sinn.
Sem hefur örugglega hjálpað Clinton frekar en Sanders.

 

Niðurstaða

Ég er á því að Clinton hljóti að hafa Trump nk. haust af fjórum ástæðum - A)Trump vegna stefnu sinnar gegn innflytjendum, hrekji spænsk ættaða Bandaríkjamenn til Clinton - B)Clinton hjónin hafi alla tíð, gætt þess að vera vel kynnt meðal svartra Bandaríkjamanna, í bæði skiptin fékk Clinton forseti öruggan meirihluta hvort tveggja svartra sem og meðal spænsk ættaðra - N-Carolina bendi til þess að Hillary Clinton eigi góðar líkur á að taka meirihluta atkvæða svartra - C)Mjög margir Repúblikanar eru hundóánægðir með Trump - þó svo þeir séu ekki líklegir til að kjósa Clinton, þá sé ekki ólíklegt að þeir sitji af sér nk. forsetakosningar heima fyrir þ.e. mæti ekki á kjörtstað. D)Clinton geti grætt atkvæði á því að vera ekki Trump - þ.e. að hópur muni kjósa hana ekki út á hennar verðleika, heldur til þess að tryggja að Trump vinni ekki, t.d. meðal þeirra Bandaríkjamanna sem ekki eru flokkstengdir.

  • Helsti möguleiki Trumps til sigurs -- geti verið að ná til þeirra sem voru að hugsa um að kjósa Berni Sanders, en það sé ekki endilega algerlega út í hött að Trump geti a.m.k. halað nokkurn fjölda þeirra inn.
  • Hann muni síðan keyra á óánægju kjósenda - tala sig upp sem utanaðkomandi, ekki hluti af kerfinu --> Þó hann sé milljarðamæringur, og án vafa þar af leiðandi - sérkennilegur byltingamaður svo vægt sé til orða tekið.

Enginn vafi sé á að kosningabaráttan verði óvægin - hvorki Clinton né Trump muni gefa nokkuð eftir í því að gagnrýna mótaðilann. Verði þá sennilega virkilega ekki neitt heilagt.
Þetta gæti orðið subbulegasti slagurinn í forsetakosningum til þessa - er þá miklu við jafnað.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 260
  • Sl. sólarhring: 283
  • Sl. viku: 343
  • Frá upphafi: 846981

Annað

  • Innlit í dag: 246
  • Innlit sl. viku: 328
  • Gestir í dag: 237
  • IP-tölur í dag: 237

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband