Lúxembúrg með áætlun um að hefja námurekstur í geimnum

Þetta hljómar nánast eins og brandari við fyrstu sýn - en Lúxembúrg er agnarsmátt land, með mannfjölda innan við milljón. Á hinn bóginn, þá er það langsamlega auðugasta meðlimaland ESB miðað við þjóðarframleiðslu per haus, og hefur lengi starfað með "ESA" eða "Geimferðastofnun ESB." Og þar séu fyrirtæki sem framleiða hluti í gerfihnetti, og geta smíðað gerfihnetti. Þó landið sjálft ráði ekki yfir tækjum til að skjóta hlutum upp í geim.

Luxembourg launches plan to mine asteroids for minerals

Ríkisstjórn Lúxembúrg virðist fyrirhuga að gefa út yfirlýsingu - um að starta verkefni í samstarfi við bandarísk einkafyrirtæki á sviði geimtækni, er tengist námurekstri í geimnum.

"Jean-Jacques Dordain, director-general of the European Space Agency until last June told the FT: “I am convinced there is great scientific and economic potential in Luxembourg’s vision.” - “We know how to get to asteroids, how to drill into them and how to get samples back to Earth.”"

"The Grand Duchy’s announcement, to be made by Etienne Schneider, deputy prime minister, will be attended by Deep Space Industries and Planetary Resources of the US, two of Luxembourg’s potential commercial partners which were set up with the long-term aim of mining asteroids."

Það er ágætt að rifja upp að ESA fyrir 2-árum lenti geimfari á halastjörnu: Magnað afrek hjá ESA að lenda á halastjörnunni "67P/Churyumovâ-Gerasimenko". En ESA sendi Rosetta kannann af stað 2004, og sá hafði náð að hala uppi halastjörnuna 10 árum síðar, er hann sendi Philae kannann - á stærð við þvottavél - af stað til lendingar, sem tókst.

NASA framkvæmdi svokallaða -geimryks- áætlun er fór af stað 1999, er fól í sér að lítið far elti uppi halastjörnu eins og Rosetta, nema að "Stardust" var einungis ætlað að safna ryki úr hala halastjörnunnar -- það tókst, og sneri kanninn til baka með sýnið til Jarðar 2006.

Nýjasti róbotinn sem NASA sendi til Mars - sá lenti á Mars 2012 "Curiosity", hefur færni til að bora undir yfirborðið, og ná upp litlum borkjörnum -- síðan að rannsaka sýnið. Sá er "kjarnorkuknúinn" þó ekki með kjarnaofni heldur hefur hann hágeislavirkt efni um borð sem gefur frá sér hita, sá hiti er notaður til að framleiða rafmagn -- geislavirka efnið ætti að gefa 900kg. rótbotnum næga orku í 14 ár.

  1. Það sem þetta sýnir fram á - er að Jarðarbúar ráða þegar yfir þeirri tækni sem þarf, til að senda smá róbotísk för til smærri "hluta" á sveimi í geimnum -- og lenda þeim þar.
  2. Að auki getur mannkyn látið róbotísk geimför lenda aftur á Jörðinni með sýni.
  3. Og að lokum, hefur mannkyni tekist að senda far til Mars sem fært er um að bora eftir sýnum og rannsaka þau.

Tekið saman -- virðist ekki lengur absúrd.
Að unnt sé að þróa róbóta er geta lent á loftsteini eða "asteroid."
Og borað eftir verðmætum efnum -- síðan sent þau til Jarðar.

Þau þurfa náttúrulega að vera verðmæt -- til að þetta borgi sig.

  1. Hugmyndin virðist vera að líta nánar á svokallaða "Near Earth Objects" þ.e. loftsteina eða "asteroids" sem hafa sporbauga er fara nærri braut Jarðar.
  2. Fyrsti hluti áætlunarinnar væri að senda fjölda lítilla kanna, til þess að rannsaka þá lofsteina eða "asteroids" sem vitað er að eru auðugir af málmum.
  3. Einungis eftir slíka rannsókn, væri næsta skref stigið - að senda far sem getur lent og tekið verðmæta málma - og flutt til sporbaugs Jarðar.

Eftir er að þróa þá verksmiðju sem mundi vera komið fyrir á sporbaug Jarðar - er væri róbotísk, og mundi vinna úr efnunum. Verðmætustu málmana mætti senda síðan beint niður til yfirborðs Jarðar. Minna verðmæta, mætti nota í geimnum - til að smíða hluti á sporbaug.

Ekkert af þessu virðist algerlega augljóslega óyfirstíganlegt!

 

Niðurstaða

Ég er alveg viss að það kemur að því, að mannkyn fer að vinna málma í geimnum. Mjög sennilega fer vinnslan fram á sporbaug Jarðar -- ódýr efni sem nóg er af á yfirborði Jarðar, væri unnt að nota beint til smíði hluta á sporbaug.

En verðmæt efni mundu verða send niður til yfirborðs Jarðar.
Þetta tekur þó sennilega vart minni tíma en 20-30 ár í þróun - grunar mig.


Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Róbert Björnsson

Skemmtilegt.  Það vill svo til að ég sótti fyrirlestur Rick Tumlinson´s stofnanda Deep Space Industries um nákvæmlega þetta málefni hjá uni.lu þann 19. mars í fyrra.  Eftir fyrirlesturinn var haldið kokteilboð þar sem mér gafst tækifæri til að spjalla aðeins við náungann.  Draumóramaður og ég var ekki alveg að kaupa þetta... en svo virðist sem Etienne Schneider hafi fengið sér aðeins of mikið Mósel-vín og lofað einhverju uppí ermina á sér.  Hins vegar eru Lúxarar nú þegar framarlega í gerfihnattatækni - SES.com er jú staðsett hér...og þeir eru lítið að pæla í að byggja áburðarverksmiðjur eins og sumir, en verða jú samt að finna einhverja vitleysu til að fjárfesta í. :)    Hér er linkur á mynd sem ég tók af Rick þessum Tumlinson við þetta tækifæri:   https://www.facebook.com/photo.php?fbid=10101333224664441&set=a.889612153511.2339752.56013946&type=3&theater

Róbert Björnsson, 3.2.2016 kl. 20:40

2 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Varðandi áburðaverksmiðjur, þá er auðvitað auðveldara að laða að hæfileikafólk grunar mig til lands, þaðan sem svo skammt er til fjölmennra landa í allar áttir - og þar með auðvitað í reynd nær héröð nágranna landa hluti af bæði markaði og atvinnusvæði hvers þess er starfar í Lúxembúrg.

Landfræðileg einangrun Íslands sé sennilega raunveruleg hindrun, þegar kemur að möguleikum um hvaða starfsemi er unnt að reka hér.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 4.2.2016 kl. 00:06

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 711
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 649
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband