Væru Mið-austurlönd virkilega stöðugri með Saddam Hussain og Gaddhafi enn við völd?

Það virðist töluvert vinsæl söguskýring í dag - og fjöldi fólks sem vill trúa því a.m.k. sjálft að það hafi þekkingu á málum; gjarnan tekur þessa tilteknu afstöðu.

  1. Á hinn bóginn, held ég að þeir sem viðhafi þá afstöðu.
  2. Séu að taka afskaplega - þrönga afstöðu til fortíðarinnar.
  • M.ö.o., á ég við, að þeir séu að velja að muna hvað hentar sinni skýringu.

Trump, Sanders say U.S. should not try to topple dictators

 

Spurning --> ERU ISIS ÞAÐ HÆTTULEG SAMTÖK, AÐ BETRA VÆRI AÐ SADDAM HUSSAIN HEFÐI ALDREI VERIÐ STEYPT?

Stjórnartíð Saddams Hussain:

Það þarf að setja málið í samhengi við það, hversu gersamlega hræðilegur stjórnandi Saddam Hussain var.
Síðan, ofmeta margir þeir sem -segja betra að halda einræðisherrum við völd- meintan stöðugleika þannig stjórna.

  • En í stjórnartíð Saddam Hussain - voru nær stöðugar uppreisnir í gangi, það var ekki langur sá tími er hann sat á valdastóli, þegar hvort tveggja í senn var friður innan Íraks og friður milli Íraks og annarra landa í næsta nágrenni.
  • Megnið af tímanum, var annað af tvennu - innanlands stríð, eða, að Írak átti í stríði við annað land.

Það er því afskaplega áhugavert - að muna eftir þessu, þegar menn sakna meints stöðugleika valdatíðar Saddams Hussains.

  • Sennilega varð Saddam Hussain, allt að 1,7 milljón manns að fjörtjóni, þau ár sem hann stjórnaði Írak.
  • Þó ISIS séu hræðileg samtök - eiga þau langt í land, að komast nokkurs staðar nærri því að drepa slíkan mannfjölda sem Saddam Hussain drap, beint eða óbeint.

Ég virkilega stundum velti því fyrir mér - hvað fólk á við þegar það talar um stöðugleika, er það virðist í ummælum - sakna valdatíðar Saddams Hussains.

  1. Það er náttúrulega Íran/Íraks stríðið 1980-1988, er hann réðst á Íran - markmið hans voru landvinningar. Hann ætlaði sér að færa tiltekin olíu-auðug svæði sem tilheyrðu Íran, inn fyrir landamæri Íraks. Þessi átök -sem Saddam Hussain ber einn ábyrgð á- kostaði samanlagt Íran og Írak nærri milljón manns.
  2. Undir lok Írans/Íraks stríðsins, framkvæmdi her Saddams Hussain - gríðarlega blóðugar árásir á Kúrda héröð Íraks, til að kveða niður uppreisn Kúrda - sem höfðu notfært sér átök Íraks og Írans. Engar nákvæmar tölur eru til - t.d. fræg gasárás á Halabaja sem varð þúsundum að fjörtjóni. En miklu mun fleiri voru drepnir af - morðsveitum Saddams Hussain, skipulögð hrannmorð, 180þ. Kúrdar í allt eru áætlaðir að hafi verið drepnir eða myrtir. Raunverulegt - þjóðarmorðs tilraun.
  3. Síðan má ekki gleyma innrás Saddams Hussain í Kúvæt - 1990. Eins og frægt er, þá safnaði Bush forseti, faðir síðari tíma - Bush forseta, her gegn Saddam Hussain. Og hrakti Saddam frá Kúvæt 1991.
  4. 1991, í kjölfar ósigurs Saddams Hussains í Kúvæt, risu Shítar upp í S-hluta Íraks í mjög fjölmennri uppreisn. Saddam Hussain, svaraði með sambærilegu morðæði og í átökum við Kúrda. Lauslega áætlað - hálf milljón Shíta lét lífið.

Iraq NO FLY ZONES.PNG

  • Vegna víðtækrar samúðar sem Kúrdar fengu, og einnig shítar.
  • Var sett upp mjög víðtækt - flugbanns svæði innan Íraks, 1991.

Eftir þessi átök - og óskapleg fjöldamorð.
Var Saddam Hussain - restina af valdatíð sinni, í umsátri.
Með algert viðskiptabann + þau öryggis svæði sem sett voru upp, til að vernda fjölmenna hópa innan Íraks, er höfðu sætt - óskaplega blóðugum ofsóknum.

 

Gaddhafi - var aldrei þetta hrikalega grimmur

Flesti virðast hafa algerlega - gleymt stríðunum sem Gaddhafi háði.
Líklega vegna þess, að þau átök - voru í hinu afskaplega fátæka og einangraða, Chad.

Þessi átök stóðu með hléum frá 1978-1987.
Og enduði með - algerum ósigri Gaddhafi.

Þarna voru um að ræða - endurteknar tilraunir Gaddhafi, til að ná Chad undir sig a.m.k. að hluta. Sbr. 1978, 1983, 1986.

Mótherji Gaddhafi - voru Frakkar, er studdu hvern þann sem barðist gegn tilraunum Gaddhafi, til að deila og drottna innan Chad.

Á endanum, tókst þeim að sameina alla ættbálka Chad - gegn Gaddhafi, sem þá beið herfilegan ósigur 1987. Þegar mestur völlur var á Ghaddhafi í þessum átökum, réð hann um helmingi landsins. Á endanum, samdi Gaddhafi frið 1994 við Chad.

  • Tölur yfir mannfall, virðast eingöngu til um - þá heri sem voru að kljást.
  • Virðist vanta alveg tölur um mannfall borgara landsins.

Það sé þó ljóst - að þessi átök voru ekkert í líkingu við að vera mannskæð á við þau átök sem Saddam Hussain stóð í, hvort sem við nefnum utanlands átök hans - eða, innanlands átök hans.

Fyrir utan þetta - þá studdi Gaddhafi skæruliðastríð í mörgum Afríkulöndum, langt fram eftir 9. áratugnum.
En í kjölfar átaka við Vesturlönd, sem fylgdu nokkrar sprengju-árásir á Líbýu, þar af ein er virtist tilraun til að ráða Gaddhafi af dögum.

  1. Þá virðist að Gaddhafi hafi söðlað um, og hann hóf - efnahags umbætur, einkavæðingu og verulega dróg úr lögregluríkinu, mikill fjöldi sem sat í fangabúðum var látinn laus.
  2. Það sem líklega réð miklu um uppreisnina 2011, má vera að hafi verið - umtalsverð misskipting í efnahags uppbyggingu milli svæða í Líbýu. En uppreisn hefst í Cyrenaica svæðinu í A-hluta landsins, þ.s. ekki eru neinar olíulyndir.
  • Það var líka sennilega óánægja með það, hvernig fámennir hópar tengdir Gaddhafi - áttu stórum hluta helstu efnahagslegu auðæfi landsins.

Gaddhafi --> ákvað að brjóta þá uppreisn niður með hörku.
Eins og þekkt er --> Þá ákváðu tilteknar Evrópuþjóðir, með Frakkland og Ítalíu í broddi fylkingar - að styðja uppreisnina til sigurs.

  1. Sjálfsagt hefur ráðið miklu um afstöðu Frakka.
  2. Hið langa stríð, sem Frakkar háðu í reynd við Gaddhafi, með óbeinum hætti - í Chad.

 

Niðurstaða

Þegar menn tala um - stöðugleika einræðisstjórna.
Þá þurfa menn að muna eftir því - að Saddam Hussain, gerði 2-innrásir í önnur lönd. Síðan barðist hann tvisvar við mjög fjölmennar uppreisnir, þ.e. Kúrda annars vegar og Shíta hins vegar. Þær báðar barði hann niður með óskaplegri grimmd - þ.e. ca. 180þ. Kúrdar myrtir eða drepnir, og, mjög líklega yfir 500þ. Shítar. Fyrir utan nærri milljón manns er létu lífið í átökum Saddams Hussain við Íran.
Síðan hafði Gaddhafi afskipti af innanlands átökum víða um Afríku, frá seinni hluta 8. áratugarins - þar til undir lok þess 9.
Enginn hefur tekið saman tölur um - heildar mannfall. En það getur vart verið nokkur vafi um, að Gaddhafi stóð fyrir því að útbreiða -> Óstöðugleika innan fjölda landa á því tímabili.
Síðan hætti hann því alfarið á 10. áratugnum, og söðlaði yfir í fókus á efnahags uppbyggingu innan Líbýu. Hann slakaði nokkuð verulega á harðstjórn - en viðhélt öllum völdum innan sinnar fjölskyldu og aðila er voru í valdabandalagi við hann innan Líbýu.

  • En það verður að muna að stór uppreisn hófst gegn honum 2011.
  • Engin leið er að vita, hvort að þeim átökum hefði lokið með einhverjum lokasigri Gaddhafis, ef enginn utanaðkomandi hefði skipt sér af.
  • En rétt er að muna, að annar einræðisherra - Assad, fékk einnig yfir sig uppreisn um svipað leiti, og hann virkilega hefur gert sitt besta til að brjóta þá uppreisn á bak aftur, og hefur ekki tekist - og þau átök hafa valdið flótta milljóna bæði út fyrir landið, og innan þess. Og ekki síst - veittu ISIS hreyfingunni þá aðstöðu sem hún þurfti, til að rísa upp og verða að raunverulegri ógn.

M.ö.o. - er engin leið að vita, að ástandið væri skárra í Líbýu, ef enginn utanaðkomandi hefði haft afskipti.
En þ.e. vel unnt að sjá fyrir sér þann möguleika, að í stað sigurs - hefðu þess í stað tekið við langframa skærustríð í Líbýu gegn stjórnvöldum, og að tengt þeim átökum - hefði orðið verulegur flóttamannastraumur til nágranalanda.
Og síðan, hefðu flóttamannabúðir, orðið hreyður stuðnings við þær hreyfingar er hefðu viðhaldið átökum við stjórnina í Tripoli.

  • Punkturinn er  sá - að í slíkri sviðsmynd, sem er algerlega hugsanleg, hefði ástandið vel getað orðið umtalsvert verra, en það ástand sem er innan Líbýu í dag.

En þrátt fyrir það að upplausn og átök séu í Líbýu.

  1. Og umtalsverður fjöldi fólks hafi flosnað frá heimkynnum innan landsins. Þá eru flóttamenn frá Líbýu ekki margir utan landsins - og mannfall í átökum, hefur ekki verið neitt í líkingu við það mannfall, er hefur orðið í Sýrlandi.
  2. Til samanburðar, þá stórfellt efa ég - að mannfall í átökum innan Íraks, eftir 2008 þegar bundinn var endir á þau borgaraátök er hófust í Írak, í kjölfar innrásar Bandaríkjanna 2003. Hafi verið nokkurs staðar nærri þaim tölum - sem sáust er Saddam Hussain var að murka lífið endurtekið úr innanlands uppreisnum þar.

Þegar menn muna söguna í heild --> Á ég erfitt með að finna ástæðu til að sakna Saddams Hussains, eða, Muammar Gaddhafi.

En þegar menn ímynda sér - skárra ástand. Þá virðast menn - kjósa að gleyma þeim mikla óstöðugleika sem þessir 2-einræðis herrar sjálfir stóðu fyrir í sinni valdatíð, og þeim sjálfs-sprottnu innanlands uppreisnum sem báðir glímdu við.

  • Ég held að margir að auki --> Stórlega ofmeti hættuna af ISIS.
  1. En þrátt fyrir allt, hefur ISIS hvergi náð völdum, þ.s. íbúar svæðis - verjast þeim af einbeitni.
  2. Það bendir til þess, að þeir geti ekki náð völdum - í löndum sem eru sæmilega skipulögð, eða þ.s. íbúar lands - eru einbeittir í andstöðu.
  • Í vissri kaldhæðni - getur verið að lönd þ.s. einræðisstjórnir ráða, séu þvert á móti - í mestri hættu. Vegna þess, að einræðis stjórnarfar, veldur alltaf því - að hluti íbúa er haldinn einbeittri heift gagnvart stjórnvöldum - vegna þess að allar einræðisstjórnir ástunda að hygla sumum hópum, sem smám saman skapar spennu og hatur milli íbúa. Og þ.e. einmitt í ástandi haturs og heiftar, sem samtök sem ISIS þrífast.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Einar Björn 

Voru þessi lönd Írak og Líbýa ekki stöðugri fyrir stríð og/eða fyrir þessar líka lyga átyllur sem stjórnvöld í Bandaríkjunum klíndu á Írak um gjöreyðingarvopn (WMD), og lyga- átyllur um nauðganir er klínt var á stjórnvöld í Líbýu, þú?  Nú vantar bara fleiri lyga átyllur til að halda áfram í Sýrlandi, ekki satt?

     

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 21.12.2015 kl. 16:36

2 identicon

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 21.12.2015 kl. 16:57

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það hélt ekkert aftur af þessum mönnum nema ógn og því gátu þeir farið sínu fram heima hjá sér og gegn þeim sem þeir töldu sig hafa í fullu tré.    

Hrólfur Þ Hraundal, 21.12.2015 kl. 17:51

4 identicon

Fleiri lyga átyllur (e. pretext) og stjórnvöld í Bandaríkjunum koma sínu fram við stjórnvöld í Sýrlandi og alla Sýrlendinga, ekki satt? 

"...Catholic Reporter confirms that the government of Bashar al Assad by combating the ISIS/Al Nusrah terrorists is committed to protecting Syria’s Christian community. It also reveals the unspoken truth: the Obama administration by bombing Syria is supporting the Islamic insurgency. "(Bashar al Assad is Protecting Christians in Syria: According to Obama, The Secular Government “Which Guarantees Religious Freedom Has to Go”

http://www.globalresearch.ca/bashar-al-assad-is-protecting-christians-in-syria-according-to-obama-the-secular-government-which-guarantees-religious-freedom-has-to-go/5497264 )

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 21.12.2015 kl. 19:50

5 identicon

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 22.12.2015 kl. 14:18

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband