Mér finnst óskiljanleg þessi þrjóska sem til staðar er í afstöðu aðila til Grikklands

En þ.e. auðvelt að sjá, að land með skuldir -megni til í eigu aðila utan Grikklands- upp á 177% af þjóðarframleiðslu, eða þar um bil. Samtímis að útflutningur Grikklands á vörum og þjónustu hefur verið í kringum 23% af þjóðarframleiðslu sl. 10 ár eða svo - - mun aldrei nokkur sinni verða fært um að greiða þær upp. Það sé fantasía að halda öðru fram!

CIA world Factbook: Greece

$36.6 billion (2013 est.)
$35.48 billion (2012 est.)
 
$284.3 billion (2014 est.)
$282.6 billion (2013 est.)
$294 billion (2012 est.)
  • Skv. þessu, var vöru-útflutningur einungis 13% af þjóðarframleiðslu 2013.
  • 23% talan tekur tillit til útflutnings á þjónustu!
http://multiplier-effect.org/files/2014/03/ch02.jpg
"Greece had an average 22.3% exports to GDP ratio in 1995-2012 compared with Ireland at 90% and Bulgaria at 58% while Denmark, Sweden and Austria were at about 50%."
 
Eins og kemur fram í -Europe's Worst Exporter- er Grikkland lokaðasta hagkerfi Evrópu
Það er sérstaklega - hlutfallsleg smæð utanríkisverslunar Grikklands, sem gerir það svo afskaplega fjarstæðukennt - að Grikkland geti staðið undir hinni óskaplegu erlendu skuldastöðu, sem landið hefur sannarlega komið sér í.
 
Augljóst er að mikið er að í hagkerfi, sem er þetta lokað.
 
Meira að segja - Portúgal og Spánn. Eru í allt - allt öðrum klassa.
 
Þetta er ekki spurning um - nokkurra ára prógramm.
 
Ég sé ekki að land með svo litla utanríkisverslun - - hafi möguleika til að standa undir skuldum nándar nærri 170% mestu í eigu erlendra aðila.
 
Að skera þær niður um helming - - sé líklega ekki einu sinni nóg.
 
Frekar 2/3. 3/4 væri jafnvel ekki úr korti, ef maður eingöngu miðar út frá líklegri getu Grikklands.
 
 
Ráðandi pólitíkusar í Evrópu hafa keyrt upp reiði í fjölmiðlum og meðal almennings, vegna þess að Grikkland sé ekki að standa við skuldbindingar sínar
En það virðist augljós fantasía að Grikkland geti - - staðið við þær, þegar kemur að uppgreiðslu þess skuldaskafls sem Grikkland stendur frammi fyrir.
 
Sannarlega komu Grikkir sér í þetta, eða nánar tiltekið, grískir pólitíkusar. Það hefur verið óstjórn lengi í Grikklandi. Það efast ekki nokkur maður um það!
  1. En ég er alveg viss um að - - að Evrópa er að beita Grikkland rangri aðferðafræði.
  2. Sú núverandi, skapi eingöngu vonleysi og depurð í Grikklandi, sem kalli einmitt fram að grískir kjósendur velji fífl til valda - því kjósendurnir eru fullir örvæntingar. Sjá enga von um að Grikkland geti rétt við sér. Sjá fram á endlausa skulda-ánauð sinna barna, barna barna - þess vegna án nokkurs enda.
  • Þ.e. vel unnt að rjúfa þann vítahring, með því að taka upp aðra stefnu, sem virði þá grunnstaðreynd að Grikkland mun aldre borga. Sama hve mikið er reynt að kreysta blóð úr steini.
  • Betri nálgun en sú -refsi gleðis nálgun- sem hefur verið tíðkuð, sé að bjóða verðlaun!
  1. Menn tönnslast stöðugt á - að ekki megi verðlauna slæma hegðan.
  2. En ef menn treysta ekki Grikkjum, getur skuldalækkun verið sett ínn í ferli, þ.s. tiltekin skuldalækkun sé framkvæmd á móti tilteknum umbótum innan gríska hagkerfisins. Og þá sé lækkunin framkvæmd um leið og sannreynt hafi verið að þær tilteknu umbætur hafi virkilega farið fram.
  3. Þannig -með því að verðlauna Grikki fyrir umbætur- skref fyrir skref, í stað þess að hóta þeim stöðugt harðari refsingum - - > Væri unnt að leiða Grikki út úr örvæntingarvítinu sem þeir eru í - þessa dagana. Yfir í nýtt tímabil vonar um framtíðina.
  • Þá mundi einnig - fylgi öfgaflokka hverfa eins og dögg fyrir sólu.
  • En ekki síst, fjárfestar hugsanlega fá áhuga á Grikklandi - - en þeir að sjálfsögðu hundsa Grikkland, ekki bara vegna óstjórnar, heldur einnig svo lengi sem þeir trúa ekki á að Grikkland hafi framtíð. Um leið og framtíð sem þeir geta trúað á er sköpuð, skapist um leið forsendur þess að Griklland geti fengið þær fjárfestingar sem Grikkland sannarlega þarf á að halda. Ef gríska hagkerfið á virkilega verða nútímalegt.
Niðurstaða
Menn láta eins og að engin leið sé til að koma Grikklandi út úr kviksyndinu, nema að hafa refsivöndinn á lofti. En vandinn er sá, að refsivöndur á sama tíma og haldið er að Grikkjum því sem ekki getur gengið upp - - er fullkomin uppskrift að vaxandi fylgi öfgaflokka í Grikklandi.
 
Sú vegferð getur endað með alvarlegu upplausnarástandi á Grikklandi, sem geti á endanum skaðað Evrópu og það verulega. En það þarf að muna eftir því að Grikkland gekk í gegnum tímabil herforingjastjórnar á 8. áratugnum fram á þann 9. Og að auki að Grikkland gekk í gegnum mjög harkelegt borgarastríð á 6. áratugnum.
 
Það er unnt að nálgast mál Grikkland með miklu mun meiri skynsemi en gert er.
 
 
Kv.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Evrópusambandið er að rústa Evrópu og tundrið er Evran.  Sem þú bendir réttilega á þá hafa Grikkir gengið í gegnum ýmsar hremmingar  og lifað þær af lengi eða þangað til Þjóðverjar tóku til við að blóðmjólka svo jaðar ríki Evrópu með gengismun.  Þegar fullsogið er þá er þeim bara hent í fanga Rússa eða Kínverja eins og uppþornuðum flugna hræjum og köngulóin er í Berlín og spinnur sin vef. 

Hrólfur Þ Hraundal, 16.4.2015 kl. 07:43

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 176
  • Sl. sólarhring: 237
  • Sl. viku: 259
  • Frá upphafi: 846897

Annað

  • Innlit í dag: 165
  • Innlit sl. viku: 247
  • Gestir í dag: 160
  • IP-tölur í dag: 160

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband