Það má reikna með verðhjöðnun í Sviss, eftir ca. 17% gengishækkun Frankans gagnvart Evru

Sá atburður sem vakti mesta athygli í efnahagstíðindum fimmtudagsins, var án efa ákvörðun Seðlabanka Sviss - að hætta að tengja svissneska frankann við evruna.

Eins og sjá á myndinni að neðan, varð töluvert dugleg gengishreyfing á frankanum þá þegar í kjölfarið að tíðindin spurðust út.

Mér skilst að frankinn hafi hækkað um tíma allt að 40% miðað við evruna, en síðan fljótlega á eftir - seig hann aftur, og endaði ca. tæp 17% ofar gengi dagsins á undan á móti evru.

http://einarbb.blog.is/users/72/einarbb/img/evra_vs_franki.jpg

Af hverju ætli að seðlabanki Sviss hafi hætt við tengingu frankans við evru?

Flestir virðast þeirrar skoðunar, að Seðlabanki Sviss hafi séð sæng sína út breidda. Nú þegar við virðist blasa, að Seðlabanki Evrópu - - er við það að hefja fulla seðlaprentun.

Reyndar vilja sumir meina að Seðlabanki Sviss, hafi verið varaður við - af einhverjum innanbúðar í Seðlabanka Evrópu.

Að ákvörðun liggi með öðrum orðum þegar fyrir innan veggja "ECB."

Surprise Move by Swiss Central Bank Underscores Global Uncertainty

Market confidence in Swiss monetary policy has been dealt a blow

  • Til þess að verja gengi frankans á móti evru sl. 3-ár. Hefur Seðlabanki Sviss, orðið að kaupa ógrynni af evrum.
  • Það þíðir auðvitað að hann verður fyrir nokkru gengistapi.
  • Á hinn bóginn, þegar prentun "ECB" hefst, mundi Seðlabanki Sviss hafa orðið að bæta ríflega í þessi kaup, ef hann hefði ætlað að verja tenginguna áfram.

Það þíðir auðvitað að evrufjallið - - ca. 75% af þjóðarframleiðslu Sviss nú þegar. Hefði áfram stækkað, og þá töluvert af meiri hraða en áður.

Punkturinn er auðvitað sá, að Seðlabanki Sviss ætlaði aldrei aðgerðinni, að vera varanleg.

Og að tapið hefði augljóslega orðið - - mun stærra seinna!

En um leið og "ECB" hefur prentun - - má reikna með frekara gengisrisi frankans við evruna.

Ef Svissneski Seðlabankinn hefði haldið kaupum áfram - - hefði hann tapað ekki einungis meira fé vegna þess að evrueignin hefði verið stærri, heldur einnig vegna þess að þá hefði gengissveiflan einnig orðið stærri.

  • Það er kannski hinn punkturinn á að losa þetta núna.

Að hann vilji frekar að gengissveifla Frankans við evruna - - dreifist yfir tímabil.

En að sú sveifla komi öll á einum degi.

 

Af hverju verðhjöðnun í Sviss?

  1. Sviss flytur mikið inn af varningi frá evrulöndum, og sá varningur - - mun lækka verulega í verði í verslunum í Sviss.
  2. Síðan verður framleiðsla Sviss á varningi sem seldur er til aðildarlanda evru, minna samkeppnisfær um verð - - þannig að reikna má með því að svissnesk útflutningsfyrirtæki, dragi úr fjárfestingum á næstunni - sem getur haft neikvæð áhrif á verð á vissum eignum, og að auki þau leitist við að "lækka laun."
  3. Svo má ekki gleyma því - - að áhrif olíuverðs lækkana eru enn að seitla í gegnum hagkerfið í Sviss, eins og annars staða. Bætast verðhjöðnunar áhrif af gengishækkun frankans, ofan á þau áhrif.

Sviss gæti því orðið áhugaverð tilraunastofa - - í áhrifum verðhjöðnunar innan hagkerfis.

En þeirri skoðun hefur verið haldið á lofti af sumum hópum - - að verðhjöðnun sé jákvæð ekki neikvæð.

Þá hreinlega vil ég ætla, að sú reinsluathugun fari nú fram nk. mánuði og ár í Sviss.

 

 

Niðurstaða

Sennilega á svissneski frankinn eftir að stíga mun meir gagnvart evru en einungis þau tæp 17% sem hann reis miðað við evru á fimmtudag. En um leið og Seðlabanki Evrópu hefur prentun. Þá ætti frekara gengissig evrunnar við svissneska frankanna að ega sér stað.

Þá eins og ég sagði, gæti Sviss orðið áhugaverð tilraunastofa í rauntíma, um áhrif verðhjöðnunar innan hagkerfis.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristinn Geir Briem

svisslendíngar eru ekki þektir fyrir tilraunamensku, það verður fróðlegt að sjá hverig þeir vinna úr þessu

Kristinn Geir Briem, 16.1.2015 kl. 19:24

2 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Sannarlega, en ég efa að þeir hafi áður lent í akkúrat sambærilegu ástandi. Þannig að -að a.m.k. einhverju leiti- eru þeir að feta ótroðna slóð. Þannig sé þetta að einhverju leiti, tilraun.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 17.1.2015 kl. 01:43

3 Smámynd: Kristinn Geir Briem

ef ég skil svisslenska gjaldmiðilin rétt eru í raun þrjár myntir í gangi   1. fyrir erlend viðskupti                                                  2.fyrir inlend viðskipti

man ekki í augnablikinuu hvert það þriðja er. en svisslendinhar eru ekki venjuleg þjóð. síðan eru það þjóðir sem eru með mikkið af sínum lánum í svusslenskum frönkum. skilst að mikið að húsnæðislánum polverja séu í frönkum. eins verður gaman að sjá viðbrögð braskara sem feingu ávísun í posti með reglulegu millibili frá svissneska ríkinu, þettað er tilraun vonandi hafa svisslendíngar nógu sterk bein til að þola þettað  

Kristinn Geir Briem, 17.1.2015 kl. 09:48

4 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Það er sjálfsagt svipað og hér, að þeir sem selja til evrulanda séu fyrst og fremst að notast við evrur í sínum viðskiptum, og geri upp í evrum.

Það getur verið að fyrirtæki sem selja til Japans noti þá jen, þau sem selja til Bandar. noti þá dollara - ef þeir eru ríkjandi í þeirra viðskiptum.

Þ.e. rétt varðandi Pólverja - - heyrt að yfir helmingur húsnæðislána í Póllandi sé í frönkum - - sem ætti að gera ástandið sannarlega óþægilegt fyrir pólska húsnæðiseigendur.

Í Ungverjalandi, var víst gengið frá "skipti samningi" af hálfu stjv. nýverið þannig að lánum sé snúið í gjaldmiðil Ungverjalands - - sem ætti að verja þá sem voru með lán í svissneskum frönkum þar. A.m.k. þegar kemru að þessari gengissveiflu Frankans við evru og líklega Forintuna.

    • Akkúrat - það verður áhugavert að fylgjast með Sviss.

    • Svissneski Seðlabankinn "hækkaði mínusinn í 0,75% fyrir fé varðveitt á reikningi í Seðlabank Sviss. Þannig að erlendir aðilar eða bankar þurfa að greiða þá fyrir að fá að eiga t.d. franka í varðveislu þar.

    En það getur verið að samt græði braskarar á því að kaupa franka og varðveita þá í svissneska seðlabankanum, ef þ.e. framundan töluvrð frekari hækkun gengis hans.

      • Ég hef trú á því - að það verði töluvrður niður þrýstingur á laun í Sviss, sérstaklega í ferðaþjónustu - og verslun, einnig hjá þeim sem flytja út til evrulanda.

      Kv.

      Einar Björn Bjarnason, 17.1.2015 kl. 15:17

      Bæta við athugasemd

      Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

      Um bloggið

      Einar Björn Bjarnason

      Höfundur

      Einar Björn Bjarnason
      Einar Björn Bjarnason
      Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
      Apríl 2024
      S M Þ M F F L
        1 2 3 4 5 6
      7 8 9 10 11 12 13
      14 15 16 17 18 19 20
      21 22 23 24 25 26 27
      28 29 30        

      Eldri færslur

      2024

      2023

      2022

      2021

      2020

      2019

      2018

      2017

      2016

      2015

      2014

      2013

      2012

      2011

      2010

      2009

      2008

      Nýjustu myndir

      • Mynd Trump Fylgi
      • Kína mynd 2
      • Kína mynd 1

      Heimsóknir

      Flettingar

      • Í dag (18.4.): 6
      • Sl. sólarhring: 6
      • Sl. viku: 810
      • Frá upphafi: 846638

      Annað

      • Innlit í dag: 6
      • Innlit sl. viku: 746
      • Gestir í dag: 6
      • IP-tölur í dag: 6

      Uppfært á 3 mín. fresti.
      Skýringar

      Innskráning

      Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

      Hafðu samband