John Major óttast að Bretland yfirgefi ESB

Þetta kemur fram á vef Financial Times: John Major warns EU over ‘serious possibility’ of UK quitting. Ef marka má FT þá metur Major helmingslíkur á brotthvarfi Bretlands úr ESB, eins og hann metur stöðuna í dag. En að hans mati, ef samningaviðræður þær sem David Cameron ætlar að hefja við aðildarríkin ganga illa - - þá telur hann líkur á "BREXIT" munu aukast.

http://i2.mirror.co.uk/incoming/article192065.ece/alternates/s2197/john-major-557250059.jpg

Skv. FT eru þetta bútar úr ræðu sem Major ætlar að flytja í Berlín á næstunni.

------------------------------------

For the first time, there is a serious possibility that our electorate could vote to leave,” - “I put the chance of exit at just under 50 per cent.” 

"Sir John will urge EU states to be flexible on two points: the bloc’s commitment to “ever-closer union” and free movement of people."

“Matching migrants to the size of host countries, the UK has accepted one of – if not the – largest population movement in peacetime European history. That is our problem.”

The sheer scale of the influx has put strains on our health, welfare, housing and education services that we struggle to meet – and has held down wages for many of the poorest members of our society.

------------------------------------

Vandamálið fyrir breska Íhaldsflokkinn er auðvitað gríðarlegt fylgi "UKIP" sem mælist í dag stærri en "Frjálslyndi flokkurinn." Það virðist sérstaklega vera "innflytjendamálin" sem styrr stendur um í Bretlandi.

Á sama tíma, hefur hugmyndum Breta um reglubreytingar - verið tekið afar fálega af ríkisstjórnum meðlimalanda ESB. Ekki einu sinnig Norðurlönd hafa ljáð máls á því.

Haft var eftir Merkel nýlega - að ef Bretar héldu þeim hugmyndum til streitu, þá væri hún í fyrsta sinn til í að íhuga "BREXIT."

Þannig að samningaleið lítur ekki sérlega vel út - - þó að vera má að yfirlísingar leiðtoga sé dæmi um svokallað "positioning" þ.e. setja fram ýtrustu afstöðu, áður en samningar hefjast.

  • Á sama tíma eru efnahagshorfur á meginlandi Evrópu - slakar. Það er, þ.s. margir spáðu virðist vera að rætast, að meginland Evrópu sé statt í efnahags stöðnun. Sem fátt líti út fyrir að taki endi á næstunni - jafnvel ekki næstu árum.
  • Þær efnahagshorfur gera það hugsanlega síður áhugavert fyrir Breta, að halda í aðildina.
  • Á sama tíma, að ef fer sem horfir - - að hagvöxtur verður verulega betri í Bretlandi en á meginlandinu. Þá gæti það stuðlað að enn frekari straum innflytjenda til Bretlands frá meginlandinu.

Við þetta má bæta, að vegna efnahagsstöðnunar, grunar mig að framundan sé hægri sinnuð pópúlisma bylgja í stjórnmálum meginlandsins - - sem er alveg hugsanlegt að hrysti upp í málum þar.

En stöðnunin þíðir að atvinnuleysi helst þá mikið áfram, svo að óþolinmæði kjósenda heldur þá áfram að magnast - - þar með pyrringur þeirra út í svokölluð "hefðbundin stjórnmál."

En það eru vísbendingar þegar um fylgisbylgju til hægri sinnaðra jaðarflokka, sem hafa að mörgu leiti verulega aðra efnahagsstefnu en flokkar þeir sem ráða í dag.

Þetta getur þítt, að aðstæður í meginlandsríkjum ESB - - geti undirgengist fremur óvæntar breytingar. Á meðan gæti Bretland litið tiltölulega séð, enn betur.

Til hvers sú bylgja leiðir - - er ómögulegt um að spá. En hún a.m.k. gæti valdið því, að næsta kjörtímabil í evrópskum stjórnmálum verði áhugavert.

Það þíðir væntanlega einnig, að það sé ill mögulegt að spá því einnig, hvaða áhrif sú bylgja mun hafa á afstöðu Breta til veru í ESB.

Hver veit - - en kannski mundi hún valda því, að þróun ESB yrði nær því sem Bretar óska, og þar með minkað líkur á BREXIT. Hún gæti einnig haft öfugt áhrif, að sannfæra Breta um það að þeir vilji ekkert með ESB að hafa.

 

Niðurstaða

Ég efa að Major sé að fara með fleipur. Þegar fylgi UKIP er haft í huga. Þá sé það svo sannarlega að umtalsverðar líkur séu á BREXIT. Áhugamenn um ESB gjarnan koma með mjög dökkar spár um framtíð Bretlands utan ESB.

Það fer auðvitað eftir því hvað gerist á meginlandi Evrópu. En sem dæmi, ef efnahagsstöðnun væri langvarandi á meginlandinu. Þá er það langt í frá augljóst að Bretum mundi vegna verr utan - en innan.

Ef aftur á móti sú pópúlisma bylgja á hægri vængnum sem virðist vera að rísa á meginlandi Evrópu, nær völdum í einhverjum mikilvægum löndum, þá væri búið að opna "Pandórubox" og engin leið væri að spá hvaða áhrif það mundi hafa.

Það gætu þá orðið óvæntar breytingar á sambandinu. Breytingar sem eru ófyrirséðar í dag. Ég þori ekki einu sinni að gera tilraun til að spá - hverjar þær gætu líklega orðið.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Snorri Hansson

Nigel Farage formaður UKIP  er algjör snillingur við að útskíra út fyrir Bretum hvílíkt fen  þeir eru búnir að koma sér í með veru þeirra í ESB og hvaða blekkingar voru notaðar fyrir inngönguna .

Hann útskírir hlutina á mannamáli og þannig að jafnvel  þeir sem hafa ekkert hugsað um stjórnmál

skilja fullkomlega alvöru málssins.

 Annað sem gerir hann erfiðan andstæðing er rök hans eru rakin af þvílíkri þekkingu að það er afar erfitt að mæta honum í opinberri umræðu t.d. í sjónvarpi .

Það er rétt að innflytjandamálin vega þungt hjá Breskum  almenningi . En mikill kosnaður sem er af veru í ESB er hrikalegur  og þessi endalausu spor  til þess að veikja stjórn aðildar ríkjanna  á eigin málum . Það er skref fyrir skref verð að bræða löndin saman í eitt á öllum sviðum.

Þá er það þessi hrikalegi mismunur á afkomu aðildarlandana og hrein kúgun sem sum þeirra verða að þola.

Engin getur útskýrt vankanta ESB betur en Nigel Farage .

Þá er UKIP að fínpússa sína stefnuskrá í landsmálum og eru þegar búnir að koma upp sínu Skuggamálaráðuneyti.

Fjármál flokkssins eru þrælsterk eftir að fjársterkir stuðningsmenn Íhaldsflokksinns hafa flutt  sig og styrkveitingar sínar til UKIP.  

Það verður engin leið lengur að tala um UKIP sem „ populistaflokk“ eða ´“öfgafokk“ .

Hér er einfaldlega kominn nýr stjórnmálaflokkur sem er að gjörbreyta stjórnmálum Bretlands og væntanlega Evrópu .

Snorri Hansson, 14.11.2014 kl. 04:04

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Takk, Einar Björn, og gott er innleggið hér frá Snorra!

Jón Valur Jensson, 14.11.2014 kl. 11:27

3 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Full sterkt að tala um blekkingar, þ.e. fullt að fólki sem trúir í fullri einlægni að aðild sé til góðs fyrir öll Evrópulönd. Að hún feli í sér betri framtíð, að skortur á aðild feli sjálfvirkt í sér lakari.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 14.11.2014 kl. 14:55

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Orð þín hrekja ekki setningu Snorra: 

Smámynd: Snorri Hansson

 

Nigel Farage formaður UKIP er algjör snillingur við að útskýra út fyrir Bretum hvílíkt fen  þeir eru búnir að koma sér í með veru þeirra í ESB og hvaða blekkingar voru notaðar fyrir inngönguna.

Jón Valur Jensson, 14.11.2014 kl. 17:49

5 Smámynd: Snorri Hansson

Einar. Auðvitað er "fullt af fólki" sem trúir á sambandið, enn ekki hvað?

Þeim fer samt fjölgandi sem eru farnir að efast stórlega, eins og þú veist mæta vel.

Almenningi í Bretlandi var sagt , bæði við inngöngu og þegar Lissabon sáttmálinn var samþykktur að um venjulegan viðskiptasamning væri að ræða og ekki kæmi til framkvæmda neitt valdaafsal.

Um nærstu helgi verða aukakosninga á litlu svæði í Bretlandi og þá kemur sýnishorn af því sem koma skal

Snorri Hansson, 15.11.2014 kl. 01:59

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 757
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 693
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband