Það hefur orðið verulegt gengisfall rússnesku rúblunnar á árinu, seðlabanki Rússlands hefur nú hækkað vexti í 9,5%

Skv. frétt FT hefur gengi rúblunnar alls fallið um 23% á árinu. Lækkun olíuverðs í seinni tíð. Skiptir alveg örugglega verulegu máli - - í nýlegum gengishreyfingum:

Russia acts to steady rouble by raising rates to 9.5%

Að sumu leiti má líkja Íslandi og Rússlandi saman, bæði löndin eru svokölluð "auðlindahagkerfi" þ.e. hagkerfi þ.s. meir en 20% útflutningstekna koma frá "hráefna-auðlindum."

Eins og sjá má af mynd að neðan, þá hegðar Rúblan sér töluvert svipað krónunni, að hækka þegar útflutningstekjur aukast - en að lækka þegar þær skreppa saman.

Hlekkur á mynd

http://einarbb.blog.is/users/72/einarbb/img/rubble.jpg

  • Eins og sjá má, þá hefur rúblan verið sterk rétt fyrir upphaf kreppunnar 2008, eins og var með krónuna. Síðan bersýnilega varð töluvert sig á rúblunni, auðvitað varð sig krónunnar verulega stærra.
  • Þeir sem hafa áhuga, geta farið á síðuna þaðan sem myndin er tekin, og sett krónuna í stað rúblunnar. Þá má sjá að töluverðar sveiflur upp og niður hafa verið á krónunni eftir 2008. Mjög sambærilega öldutoppa vs. dali má sjá á myndinni yfir þróun rúblunnar sömu ár.

En það er bersýnilegt á myndinni - að ný dramatísk lækkun rúblunnar hefur verið í gangi sl. 12 mánuði, sem virðist hefjast ca. þegar deilur Vesturvelda og Rússlands verða að alvarlegri krísu í samskiptum.

Þessi lækkun - - mun hafa neikvæð áhrif á kjör Rússa, eins og lækkun krónunnar skaðar kjör okkar á klakanum.

Höfum að auki í huga, að mér skilst að verðbólga sé á bilinu 8-9% - - sem auðvitað er gott að hafa í samhengi við hina nýju vexti "seðlabanka Rússlands" upp á 9,5%.

Þá eru vextirnir ívið hærri en verðbólgan - - sem virðist algeng lenska hjá seðlabönkum.

Þessi verðbólga er að sjálfsögðu - - að éta upp launakjör almennings í Rússlandi, að skapa ástand fallandi kjara þessa mánuði.

Það verður auðvitað forvitnilegt að fylgjast með framhaldinu, miðað við það að staðan í Úkraínudeilunni hefur verið stöðug nú um hríð - - > Þá getur alveg hugsast að nýr gengisstöðugleiki rúblunnar muni skapast, þ.e. hún falli ekki frekar.

Nema auðvitað að það komi frekari neikvæðar fréttir af heimshagkerfinu, er stuðli að frekari verðlækkunum olíu.

 

Niðurstaða

Einn vandi á samanburðir gjaldmiðlar landa - - er sú lenska að bera saman lönd með mjög ólík hagkerfi. Að mörgu leiti er t.d. hagkerfi Íslands - líkara hagkerfi Rússlands. Þá meina ég í þeim skilningi að Rússland eins og Ísland, hefur sínar megin útflutningstekjur af sölu - - hrávöru. Þó sú hrávara sem Rússar selja sé önnur en sú er Íslendinga selja. Þá sé meginmálið að bæði löndin séu "hrávöruhagkerfi" eða með öðrum orðum, auðlindahagkerfi.

Flr. lönd má nefna, ekki síst - Ástralíu. Sem býr að mjög miklum hráefnaauðlindum í formi málma, mjög mikill útflutningur þaðan á málmgrýti og að einhverju leiti á unnum málmi. Námuvinnsla virðist ein megin atvinnugrein Ástrala.

  • Punkturinn er sá, að gjaldmiðlar hráefnahagkerfa - sveiflast með öðrum hætti, en gjaldmiðlar hagkerfa sem eru t.d. með framleiðslu-iðnað sem megingrundvöll.
  • Fyrir Ísland væri það töluvert "challenge" að lifa við gjaldmiðil, sem væri meginhluta grundvallaður á hagkerfum - - er væru með mjög ólíkan hrynjanda.

Það hefur verið ein ábending, að Ísland sennilega þarf að kúpla yfir í aukna áherslu á "full framleiðslu" varnings - - ef það ætlar að losna úr sínum sögulega hrynjanda.

Það er auðvitað ekki gert á einni nóttu - - en ég er þá að tala um "iðnvæðingu." Búa til framleiðslu-iðnað sem gerði meiri verðmæti úr þeim hráefnum sem við höfum aðgang að.

------------------------------------

Varðandi Rússland, ef það koma ekki frekari slæmar fréttir frá heimshagkerfinu, og staðan í Úkraínu færist smám saman nær stöðugleika - - þá ætti verðbólgan í Rússlandi smá saman að deyja út, gengi rúblunnar hætta að síga frekar. 

Nokkurt lífskjarahrap sé þó orðin staðreynd í Rússlandi.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 44
  • Sl. sólarhring: 68
  • Sl. viku: 863
  • Frá upphafi: 846619

Annað

  • Innlit í dag: 38
  • Innlit sl. viku: 798
  • Gestir í dag: 37
  • IP-tölur í dag: 36

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband