Islamic State - virđist notfćra sér frelsiđ í Túnis, til ađ útbreiđa bođskap sinn og afla sér fylgismanna

Rakst á ţessa áhugaverđu grein í NYTimes: New Freedoms in Tunisia Drive Support for ISIS. En í ţeirri grein eru birt viđtöl viđ nokkurn fjölda ungra Túnisa. Ţar gćti bersýnilega töluvert "barnalegra viđhorfa" gagnvart "IS" samtökunum - sbr. ţá trú, ađ "IS" séu baráttusamtök fyrir réttindum allra Múslima, og samtímis virđist útbreidd sú trú ađ fréttir af ógnarverkum "IS" - séu lygar erlendra fjölmiđla.

"Islamic State" - virđist takast ađ notfćra sér, útbreidda tortryggni gagnvart Vestrćnum fjölmiđlum - annars vegar og hins vegar - útbreidda tortryggni gagnvart stjórnvöldum almennt í Arabaríkjum, sem og stofnunum ţeirra landa. 

Hin almenna sýn virđist ađ stofnanirnar séu til ţess ađ vernda "spillingu" og séu óvinir fólksins.

  • Ţegar slík viđhorf tortryggni ríkja - ţá virđist mörgum "Islamic State" sem segist vilja sópa í burtu núverandi arabalöndum, skipta ţeim út fyrir eitt - - - íslamskt ríki.
  • Vera bođberi framtíđar - sem ţess sé verđ ađ berjast fyrir.
Skv. fréttinni hefur ekkert -erlent- land aflađ "IS" fleiri fylgismanna, heldur en einmitt Túnis.
  1. Mér finnst ţetta dálítiđ minna á ţá útbreiddu trú á kommúnismann, sem áđur var til stađar í Vestrćnum samfélögum.
  2. En kommúnismi -ađ einhverju leiti eins og Islamic State gerir- setti fram framtíđarsýn, sem var einmitt ţ.s. lađađi ađ flesta fylgismenn.
  3. Ţegar Kalda Stríđiđ var í gangi, ţá naut Kommúnismi alltaf stöđugt umtalsverđs fylgis međal V-evrópskra landa. Ungir róttćkir menn og konur, sem voru óánćgđ međ eigin samfélög. Gjarnan leituđu í marxisma síđan Kommúnisma.
  4. Ţeir Túnisar sem leita til "IS" - virđast leita til ţeirra samtaka af nokkuđ sambćrilegum ástćđum. Ţ.e. "almenn óánćgja međ eigin samfélög" - "međ ţćr stofnanir sem eru til stađar" og "vantrú á ţví ađ venjuleg pólitík megni ađ skapa betra ástand."

Trú ungra V-evr. kommúnista var mjög oft ákaflega "naív." Eins og skv. viđtölum trú margra ungra Túnisa á "Islamic State" virđist vera.

 

Túnis er samt sem áđur merkileg tilraun

Túnis var vagga svokallađ "vors" í Miđ-Austurlöndum, ţegar ungt fólk reis upp í nokkrum fjölda landa og bylti ţeim ríkisstjórnum er fyrir voru. Síđan hefur herforingja gagnbylting í Egyptalandi snúiđ málum aftur til baka til fyrri vegar - ţ.e. til baka í lögregluríkisástand. Í Líbýu geisar nú borgarastríđ milli tveggja megin fylkinga - - en ţađ má vera ţó, ađ önnur ţeirra sé ađ nálgast sigur. 

  • Einungis í Túnis - - virđist lýđrćđistilraunin enn í fullum gangi.
  • Á nćstunni verđur kosiđ til ţings, í annađ sinn frá ţví ađ byltingin varđ.
  • Og ţađ skv. nýrri stjórnarskrá, sem sćmilega víđtćk sátt virđist um.

Punkturinn viđ ţađ ađ gera samanburđ á "Islamic State" og "kommúnisma" er sá ađ benda á ţađ, ađ ungir Túnisar hafa fulla ástćđu til ađ vera óánćgđir.

Ég er ţá einnig ađ meina, ađ Kommúnismi hafi í engu veriđ "vitrćnni stefna" heldur en sú, er "Islamic State" rekur. 

Ţannig ţví, ađ sú stađreynd ađ "Islamic State" í Túnis sé sennilega međ nćrri ţví eins mikiđ fylgi og t.d. Alţýđubandalagiđ á Íslandi hafđi á sínum tíma á Íslandi.

Sanni ekki ađ Túnisar séu vitlausari heldur en Íslendingar á árum áđur, ţar sem merkilega margir - - flykktust um stefnu heims kommúnismans.

Muniđ einnig, ađ sennilega drap engin stefna í sögu mannkyns fleira fólk, heldur en heims kommúnisminn. Ţannig ađ samanburđurinn viđ "Islamic State" er alls ekki út úr korti.

  • Ţessi samanburđur getur líka gefiđ ákveđna vísbendingu um líklegt fylgi "Islamic State" međal ungs óánćgđs róttćks fólks í Miđ-Austurlöndum.

Róttćk samtök hafa afskaplega sjaldan - - meirihlutafylgi. En í ástandi ţ.s. fátćkt er útbreidd, atvinnuleysi er mikiđ - - er ţekkt ađ róttćk samtök geta náđ fjöldafylgi.

Upprisa nasista á 4. áratugnum var full sönnun ţess.

Túnis er fátćkt land, ţar er atvinnuleysi mjög mikiđ - - ţó ađ í dag sé lýđfrelsi ţar. Hefur efnahagsástand ekki a.m.k. enn batnađ ađ neinu ráđi, ţađ sé ţó vaxandi skilningur međal nýrra stjórnenda landsins. Ađ ţörf sé virkilega á ţví ađ efla efnahag landsins.

Viđ skulum vona ađ Túnis verđi ekki "öfgamönnum" ađ bráđ, eins og Ţýskaland 4. áratugarins.

Ađ samfélaginu takist ađ skapa sér framtíđar farveg, ţ.s. lýđfrelsi ríkir.

  • Ţađ sem getur hafa bjargađ Túnis hingađ til. Er ef til vill ţađ. Ađ Túnis sé ekki nćgilega mikilvćgt í augum utanađkomandi landa. Ađ ástćđa sé til ađ búa ţar til "enn eitt proxy stríđiđ."

 

Niđurstađa

Ég held ađ sama gildi um baráttuna gegn kommúnismanum og um baráttuna gegn "Islamic State" - ađ einn megin lykillinn í ţeirri baráttu. Verđi uppbygging ţeirra samfélaga ţ.s. "IS" hefur vaxandi fylgi. Ţó ţađ ráđi ţar ekki a.m.k. enn.

Ţ.s. styrki "IS" sé ekki síst, hve mörgum landanna sé stjórnađ af spilltum og lítt hćfum stjórnendum.

Og samtímis ađ efnahags uppbygging í Miđ-Austurlöndum ţegar olíulöndum er sleppt, hefur hingađ til veriđ meira eđa minna í skötulíki.

Gríđarleg spilling hafi ekki síst, stađiđ henni fyrir ţrifum.

Ţađ sést á viđhorfum ţeirra stuđningsmanna "IS" sem blađamenn rćđa viđ. Ađ baki stuđningi ţeirra viđ "IS" stendur einmitt "vantrú á eigiđ samfélag" - "vantrú á stofnanir ţess" og "vantrú á eigin stjórnendur."

Fólk ţarf ađ öđlast trúa á framtíđina. Annars sé ţessi hćtta til stađar. Ađ fólk lađist ađ öfgasamtökum, tja - - eins og gerđist í Ţýskalandi á 4. áratugnum.

 

Kv.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Nauđsynlegt er ađ skrá sig inn til ađ setja inn athugasemd.

Um bloggiđ

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri fćrslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 759
  • Frá upphafi: 846640

Annađ

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 695
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband