Rannsókn á flaki farþegavélarinnar sem skotin var niður yfir Úkraínu - segir að hún hafi farist vegna skemmda í kjölfar þess að fjöldi smárra málmhluta fór í gegnum byrðinginn

Þetta getur vel passað við þá sviðsmynd að B777 vélin hafi verið skotin niður með loftvarnareldflaug. Því hefur reyndar verið haldið fram, sem skýringu B - einkum af netverjum sem styðja uppreisnarmenn í A-Úkraínu. Að malasíska vélin hafi verið skotin niður með beinni skothríð frá orrustuvél stjv. í Kíev.

Sukhoi Su-25 - Frogfoot

Vandamál við þá kenningu er - "Service ceiling: 7,000 m[100] (22,965 ft) clean, 5,000 m (16,000 ft) with max weapons." - að skv. uppgefnum upplýsingum, nær þessi tegund ekki þetta hárri flughæð.

Þ.e. rúmlega 30þ.ft. Að auki er hámarks-flugæð "minni þegar vélin er vopnuð" en þegar hún flýgur án vopna. Ég árétta einnig, að flugvélar úkraínskra stjv. -- eru gamlar frá því er Sovétríkin liðuðust í sundur, það má vera að í dag séu framleiddar uppfærðar týpur sem geta flogið hærra, en það eigi ekki við þær sem eru í eigu úkraínskra stjv. - þ.s. þær séu allar gamlar vélar.

Svo er að auki vöntun á góðri skýringu á því af hverju úkraínsk stjv. mundu vísvitandi skjóta niður stóra farþegavél - - séð þá fullyrðingu, að persónuleg vél Pútíns eigi að hafa verið nærri.

Dutch report suggests MH-17 shot down from ground

En skv. skýrslu rannsóknaraðila, "voru einungis 3-vélar nærri" malasísku vélinni, allt "farþegavélar" - - > "The report finds there were only three other aircraft in the vicinity: two Boeing 777s and one Airbus A330, so both civilian, which makes the surface-to-air missile more likely."

Þess hefði pottþétt verið getið, ef opinber flugvél forseta Rússl. hefði verið ein þeirra - en þ.e. vendilega tekið fram "civilian" þ.e. flugvél í "einkaerindum." Fyrir utan að það væri stórfurðulegt ef Pútín væri svo óvarfærinn að fljúga nærri þessu svæði - ef hann það gerði mundi hann örugglega láta eigin flugher fylgja vélinni. Ég held það sé afar ólíklegt - að hans flugvél hafi verið þarna nærstödd.

Að auki er tekið fram - að engin herflugvél hefði verið nærstödd. Til þess að - svara þeirri kenningu, að hún hafi hugsanlega verið skotin niður af nærstaddri herflugvél.

  • Best að taka það vendilega fram, að þó svo að líkur séu yfirgnæfandi á að malasíska vélin hafi verið skotin niður með loftvarnarflaug frá Jörðu.
  • Þá, getur rannsóknin örugglega a.m.k. ekki enn svarað því, hver skaut henni. Það má vel vera, að rannsóknaraðilar "geti engu um það svarað."
  • Þannig, að það verði ætíð "umdeilt" hver akkúrat skaut hana niður.

""The preliminary report suggests that high energy objects penetrated the aircraft and led it to break up midair," Malaysian Prime Minister Najib Razak said in a statement. "This leads to the strong suspicion that a surface-to-air missile brought MH17 down, but further investigative work is needed before we can be certain," he added."

"Although the report did not mention a missile, impact with a large number of fragments would be consistent with a "proximity" warhead, designed to explode in the air and hurl shrapnel at its target, said Tim Ripley, a defense analyst with Jane's Defense Weekly magazine."

Ef einhver hefur gaman af að skoða myndir - þá er mikið til af myndum af malasísku vélinni, ef leitað er eftir "shrapnel damage."

Ég veit ekki um ykkur - - en mér finnst þessar skemmdir, líkjast frekar því - að eldflaug springi rétt fyrir framan vélina, síðan rigni flísunum og brotunum yfir vélina á ógnarhraða.

Frekar en að vera vísbending um "kúlugöt" - þið getið séð að götin eru mjög misjöfn að lögun, að auki er skemmdin á "vænghlutanum" -vil ég meina- "dead givaway" þ.s. hún virðist bersýnilega bera vott um árekstur vélarinnar við e-h hlut á mikilli ferð.

Sem getur mjög vel passað við þá sviðsmynd, að eldflaug með "proximity warhead" springi rétt fyrir framan, síðan fljúgi vélin í gegnum "regn af smáhlutum" á ógnarhraða - hugsanlega samanlagt um 2000km./klst.

Síðan hafi vélin orðið fyrir það miklu tjóni - að í kjölfarið hafi hún brotnað upp í loftinu á nokkrum sekúndubrotum.

  • Ef e-h er að pæla í flugmönnunum, þá líklega gerðist þetta það snöggt - - að þeir vissu aldrei hvað hitti vélina.
  • Sennilega gildir það sama um flesta farþega, að þeir létust á þeim sekúndubrotum þegar flísarnar og málmhlutirnir rákust á vélina, fóru í gegn og síðan vélin brotnaði í smátt í loftinu - - rigndi síðan í ótal pörtum á víð og dreif um svæðið þ.s. brotin úr henni komu niður.

 

Niðurstaða

Ég held að niðurstaðan komi fáum á óvart. Ég hef sjálfur ávalt virst langsamlega flest benda til þess að B777 vél malasíska flugfélagsins hafi verið skotin niður af loftvarnarflaug af jörðu niðri. Það má aftur á móti deila um það - hver akkúrat skaut hana niður. En mín skoðun er, að yfirgnæfandi líkur séu á að hún hafi óvart verið skotin niður af uppreisnarmönnum. En fyrr sömu viku skutu þeir niður Antonov flutningavél í ca. 22þ.ft. Það er sterk vísbending að dögum áður en malasíska vélin var skotin niður, hafi uppreisnarmenn haft til umráða - tæki fært um að granda henni frá Jörðu niðri. En 22þ.ft. er of mikil hæð fyrir handheldar flaugar, það þarf færanlegan skotpall sem er mun þyngri, mjög líklega á farartæki af einhverju tagi. Þó tæknilega sé unnt að setja slíkan skotpall upp, á undirstöðu á t.d. graslendi, án þess að sá sé auðfæranlegur.

Síðan er rétt að árétta flugleið vélarinnar, að hún kom yfir Úkraínu þá flaug hún yfir nágrenni Kíev borgar, sem þíðir að þegar uppreisnarmenn sáu hana - kom hún beint úr stefnu í átt að Kíev borg. Það að sjálfsögðu ýtir undir þann mögulega misskilning, að uppreisnarmenn hafi skotið hana niður - talið hana flutningavél á vegum stjv.

Ég á ekki von á að nokkur verði nokkru sinni dæmdur fyrir þennan verknað.

Því hefur verið hafnað af evr. flugyfirvöldum, að flugleið vélarinnar hafi verið önnur en sú, er kynnt var fyrir flugtak.

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erlingur Alfreð Jónsson

En skv. skýrslu rannsóknaraðila, "voru einungis 2-vélar nærri" malasísku vélinni, allt "farþegavélar" - - > "The report finds there were only three other aircraft in the vicinity: two Boeing 777s and one Airbus A330, so both civilian, which makes the surface-to-air missile more likely." 

Þess hefði pottþétt verið getið, ef opinber flugvél forseta Rússl. hefði verið önnur þeirra - en þ.e. vendilega tekið fram "civilian" þ.e. flugvél í "einkaerindum."

Í fyrsta lagi voru þrjár aðrar vélar í námunda við MH17, en ekki bara tvær, eins og réttilega segir í enskum hluta textans sem þú tekur úr frétt Reuters.

Í öðru lagi stendur hvergi í hollensku skýrslunni að vélarnar hafi verið "civilian" heldur segir að þær hafi verið "commercial airliners", tvær B777 og ein A330. Kort í skýrslunni sýnir að B777 vélarnar flugu í austurátt en A330 í vesturátt. En þó svo að minnst hefði verið á "civilian" hefði það ekki þýtt flugvél í "einkaerindum" í þessu sambandi, heldur borgaralega flugvél, þ.m.t. vöruflutninga- eða farþegavél í áætlunarflugi.

Í þriðja lagi er hvergi í skýrslunni því haldið fram að vélin hafi verið skotin niður með eldflaug af jörðu, eða með skothríð frá annarri flugvél. Einungis er bent á að vélin beri þess merki að hafa orðið fyrir fjölda utanaðkomandi aðskotahluta á miklum hraða (...the aircraft was penetrated by a large number of high-energy objects from outside the aircraft.) Skýrslan tilgreinir ekki mögulegan uppruna þessara hluta. Reuters hefur því aðeins hlaupið á sig með þeirri fullyrðingu að skýrslan segi að vélin hafi veirð skotin niður með loftvarnarflaug, hún gerir það ekki. En Reuters byggir frétt sína á mati sinna sérfræðinga hvað þennan þátt varðar.

Þá er í skýrslunni bent á að bæði þak og gólf flugstjórnarklefans beri þess merki að hafa orðið fyrir aðskotahlutum að ofan (from above), hvað svo sem það þýðir.

Svo er rétt að hafa í huga, að þó að þau ratsjárgögn sem hafa verið skoðuð til þessa og skýrslan byggir á, líklega frá borgaralegum flugstjórnum, sýni að einungis 3 aðrar vélar hafi verið nálægt MH17 á þeim tíma sem hún fer niður, getur vel verið að fleiri vélar hafi verið nálægt. Ef vélar eru ekki með kveikt á ratsjársvara sjást þær illa eða ekki á slíkum ratsjám.

Erlingur Alfreð Jónsson, 9.9.2014 kl. 21:52

2 Smámynd: Erlingur Alfreð Jónsson

Ætlaði reyndar líka að minnast á að Úkraínuher hefur yfir að ráða bæði Su-27 og MIG-29 sem eru hannaðar til loftbardaga og að ná yfirráðum í lofti eru vel færar að komast í sömu hæð og MH17 og reyndar mun hærra ef því er að skipta. Skil því ekki hvernig Su-25 kemur inn í þessa umræðu því hún er fyrst og fremst ætluð til árása á skotmörk á jörðu.

Erlingur Alfreð Jónsson, 9.9.2014 kl. 22:03

3 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Erlingur, þær vélar eru ekki "torséðar" þ.e. hægt að sjá á radargögnum hvort aðrar vélar voru til staðar, í hvaða hæð, hvaða hraða, stefnu o.s.frv. - þó svo slökkt sé á transponder. 

Su-25 kemur inn í umræðuna, frá vefmiðlum stuðningsmanna uppreisnarmanna, sem hafa haldið því fram að slík vél hafi verið nærri - - alveg hugsanlegt að RT eða Russia Today hafi nefnt þann möguleika.

"Commercial" vélar eru einnig "civilian." 

Ég tek hvergi fram að skýrslan haldi því fram að vélin hafi verið skotin niður af eldflaug - - en sú sviðsmynd að hún eldflaug hafi sprungið rétt við hana passar vel við verksummerki, það kemur ágætlega fram þarna.

Þakka annars fyrir þá ábendingu, að ég hafi sett 2-vélar í stað 3.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 9.9.2014 kl. 23:29

4 identicon

Sæll Einar Björn
 
Þetta er bara ekki rétt hjá þér með, að: "Su-25 kemur inn í umræðuna, frá vefmiðlum stuðningsmanna uppreisnarmanna", þar sem að OSCE og fleiri tala um Su-25 í þessu sambandi.
 
"The debris was dotted with "shrapnel-like, almost machine gun-like holes," said OSCE spokesman Michael Bociurkiw" (http://osce.einnews.com/article__detail/215564622?lcode=xlBANnWjcZIh_XzBy9uIdg%3D%3D
 
Su-25 aircraft According to the report of German pilot and airlines expert Peter Haisenko, the MH17 Boeing 777 was not brought down by a missile. What he observed from the available photos were perforations of the cockpit:   The facts speak clear and loud and are beyond the realm of speculation: The cockpit shows traces of shelling! You can see the entry and exit holes. (http://osce.einnews.com/article__detail/216605014?lcode=xlBANnWjcZIh_XzBy9uIdg%3D%3D )
 
"One is the report of the Canadian representative of the Organization for Security and Co-operation in Europe (OSCE) that reports bullet holes in the cockpit section of the airliner. Photos are available that clearly show bullet holes in the pattern of machine gun fire on both sides of the airliner’s cockpit. The other piece of information comes from a report in the Malaysian newspaper New Straits Times (http://www.nst.com.my/node/20925&nbspthat intelligence analysts have concluded that one of the airliner’s engines was hit by a heat-seeking air-to-air missile. We know that there were Ukrainian jets armed with such weapons close to the airliner at the time that it crashed. http://www.countercurrents.org/haisenko040914.htm

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 10.9.2014 kl. 00:20

5 Smámynd: Erlingur Alfreð Jónsson

Erlingur, þær vélar eru ekki "torséðar" þ.e. hægt að sjá á radargögnum hvort aðrar vélar voru til staðar, í hvaða hæð, hvaða hraða, stefnu o.s.frv. - þó svo slökkt sé á transponder. 

Þetta er ekki alveg rétt hjá þér Einar. Primary radar sér aðeins endurkast frá hlut (flugvél) í ákveðinni fjarlægð og í ákveðinni stefnu. Sá sem horfir á skjáinn sér svo gróflega í hvaða átt þessi hlutur stefnir ef hann er á hreyfingu. Síðan fer það svo eftir hversu radarbúnaðurinn er fullkominn hvort hann geti reiknað út hraða og stefnu hlutarins frá endurkastinu og birt það á skjánum.

Transponder sendir upplýsingar til secondary surveillance radar, og er til þess ætlaður að gefa flugstjórn, (eða ratsjárstöð) upplýsingar um flughæð vélar, þegar hann er stilltur á þá stillingu (Mode C), og sendir sömuleiðis frá sér kóða sem transponder er stilltur á til að aðgreina vélina frá öðrum vélum á sama svæði (Mode A). Meiri upplýsingar gefur transponder ekki.

Vissulega er það rétt að orrustuvélar á svæðinu eru ekki torséðar en enn er verið að fara yfir radargögnin til að greina þau betur og mögulega koma meiri upplýsingar í ljós í lokaskýrslunni hvort herflugvélar hafa verið á sveimi á svæðinu á sama tíma. Nú veit ég ekkert um gæði þessara radargagna sem safnað hefur verið saman, en ef radarbúnaðurinn á svæðinu er gamall og lélegur er ekki víst að hann greini tiltölulega smáar orrustuvélar á miklum hraða svo vel sé.

Erlingur Alfreð Jónsson, 10.9.2014 kl. 03:53

6 identicon

"If we now consider the armament of a typical SU 25 we learn this: It is equipped with a double-barreled 30-mm gun, type GSh-302 / AO-17A, equipped with: a 250 round magazine of anti-tank incendiary shells and splinter-explosive shells (dum-dum), arranged in alternating order. The cockpit of the MH 017 has evidently been fired at from both sides: the entry and exit holes are found on the same fragment of it’s cockpit segment!

Now just consider what happens when a series of anti-tank incendiary shells and splinter-explosive shells hit the cockpit. These are after all designed to destroy a modern tank. The anti-tank incendiary shells partially traversed the cockpit and exited on the other side in a slightly deformed shape. (Aviation forensic experts could possibly find them on the ground presumably controlled by the Kiev Ukrainian military; the translator). After all, their impact is designed to penetrate the solid armor of a tank. Also, the splinter-explosive shells will, due to their numerous impacts too cause massive explosions inside the cockpit, since they are designed to do this. Given the rapid firing sequence of the GSh-302 cannon, it will cause a rapid succession of explosions within the cockpit area in a very short time. Remeber each of these is sufficient to destroy a tank." (Shocking Analysis of the ‘Shooting Down’ of Malaysian MH17 eftir Peter Haisenko)

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 10.9.2014 kl. 15:49

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 804
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 740
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband