Er ríkisstjórnin að taka of mikla áhættu með nýjum kjarasamningi kennara?

Fljótt á litið virðist útkoman vera - ippon. Þ.e. kennarar hafi unnið fullkominn sigur. En ef marka má yfirlýsingar sigurhrósandi talsmanns kennara. Þá er um að ræða afskaplega "hressilegar hækkanir."

Þ.s. ég velti fyrir mér varðandi áhættu ríkisstjórnar er eftirfarandi:

  1. Ríkisstjórnin þarf að ná fram stöðu þ.s. verðbólgan er sem næst markmiðum Seðlabanka, og ekki síst að hún sé sæmilegs stöðug sæmilega nærri því markmiði.
  2. Ríkisstjórnin þarf að auki að ná fram markmiðum í því að koma hömlum á vöxt útgjalda ríkisins, vegna þess að það þarf að sína fram á að ríkisstjórnin, geti komið hömlum á vöxt skulda ríkisins.
  3. Hagvöxtur er mikilvægt atriði, en hin atriðin þurfa að vera með í lestinni.

Háar launahækkanir:

  1. Geta sannarlega skapað verðbólgu.
  2. Og þær geta sannarlega ógnað markmiði ríkisstjórnarinnar, varðandi stjórnun útgjalda og því tilraunum til að skapa tiltrú á getu ríkisins, við það að hafa stjórn á uppsöfnun skulda.
  • Það þíðir, að háar launahækkanir - - geta grafið undan því höfuðmarkmiði ríkisstjórnarinnar að losa höft fyrir lok kjörtímabilsins.

Spennt og sátt með nýjan kjarasamning

Nálguðust markmið sín

Illugi Gunnarsson - Samningurinn stórt skref í rétta átt

Mér finnst viðtalið við Illuga áhugavert - en hann getur ekki neitað því að um "stórar launahækkanir er að ræða" en segist fagna því að tekist hafi að bæta kjör kennara. 

Að auki getur hann ekki neitað því að útgjöld ríkisins aukist, en bendir á móti á markmið um endurskipulagningu skólastarfsins sem hafi að hans mati náðst.

Fram kemur í máli Guðríður Arnardóttur formanns félags Framhaldsskólakennara

"Vinnufyrirkomulag kennara mun breytast, og það metið með allt öðrum hætti  - í stað fastra tíma á bakvið hvern áfanga þurfi að meta hvern áfanga fyrir sig, t.a.m eftir fjölda nemenda og umfangi áfangans."

Í máli Gunnars Björnssonar samningamanns ríkisins kemur fram:

"Samningurinn nær til októbermánaðar 2016 og felur í sér sex prósent launahækkun." - "Aðrar hækkanir eru háðar nýju vinnumati, en þær geta gert það að verkum að hækkunin nemi samtals 29 prósentum yfir samningstímann..."

-------------------------------------

Bendi á að ríkisstjórnin gerði einungis skammtímasamning við ASÍ til eins árs.

Það verði í kjölfarið ákaflega forvitnilega að fylgjast með því, hvaða áhrif kjarasamningar við kennara munu hafa á kröfugerð almennt á vinnumarkaði.

Ég skal ekki neita því að kennarar eiga skilið hærri laun, að kennarastarfið er ákaflega mikilvægt. Að samfélagið líklega "græði á því" að launa kennarastarfið vel.

En það þarf líka að ná tilteknum "skemmri tíma" markmiðum um losun hafta, þá þarf eins og ég benti á að ofan, verðbólga að vera lág og ríkið búið með aðgerðum sínum í eigin rekstrarmálum að skapa það hámarks traust sem það framast getur náð fram.

Eru þau markmið samræmanleg?  Eða þarf annað að láta undan?

Það verður því ákaflega áhugavert að fylgjast með næstu mánuðum, en það eru flr. kjarasamningar útistandandi. Síðan næsta hausti, en þá ættu samningar milli ASÍ og SA að hefjast að nýju.

 

Niðurstaða

Ef það hefst "stéttastríð" hér þ.s. hópar launamanna hver á eftir öðrum koma fram, og heimta tveggja stafa prósentu launahækkanir, þá gæti markmið ríkisstjórnarinnar um losun hafta fyrir lok kjörtímabils komist í mikla hættu. En þá gæti verðbólga farið í tveggja stafa tölu. Og útgjöld ríkis gætu farið illilega úr böndum.

Í ljósi þess hve mikilvægt þ.e. fyrir stjórnarflokkana að ná fram markmiðinu um haftalosun, hélt ég að ríkisstjórnin mundi vera til muna harðari á því markmiði sem var áður yfir líst. Að launahækkanir væru einungis upp á 2%.

En nú virðist búið að fleygja því markmiði út um gluggann? Hefur þá markmiðinu um haftalosun einnig verið fleygt?

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Ríki, sem ekki virðir siðmenntaðan alþýðu-kaupmátt verkafólks innan ríkisins, og velferð heildarsamfélagsins, er einskis vert ríki, í samfélagi siðmenntaðra ríkja!

Frekar einfalt og skiljanlegt á 21. öldinni, árið 2014.

Flokksmafíu-kúgarar geta ekki breytt staðreyndum í raunheimum. Ekki einu sinni þó reynt sé að kúga varnarlausa einstaklinga til óhæfuverka, til stuðnings ábyrgðarlausra og siðblindra bankaræningja-ofurlauna-stjóra!

Lögmanna-mafían ver bara banka/lífeyrisjóða-mafíuna, sem er brot á mannréttindum siðmenntaðra réttarríkja!

Háskóli Íslands veitir þessum lögmanna-valdamönnum valdagráðurnar og stjórnsýslu-spillingar-brautargengi, beint til tortímingar almennings. Dómstólar eru bara stimpilpúðar heimsveldismafíunnar bankarænandi!

Lögmanna-samtryggingar-mafían er hvorki alvalds-almáttug né ábyrgðarlaus á jörðinni.

Tímabært að við skiljum staðreyndir.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 5.4.2014 kl. 01:51

2 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Ánna, þ.e. ekki hægt að hafa hærri lífskjör á Íslandi en raunverulega er til peningur fyrir, algerlega burtséð frá því um hve mörg prósent laun eru almennt hækkuð. Ef peningurinn er ekki raunverulega til annað af tvennu lækkar gengið þangað til að dæmið gengur upp, eða að aftur eins og fyrir 1959 er skellt á innflutningshöftum. Launafólki hefur aldrei tekist að hækka kjör sín um tug prósenta eða meir yfir línuna hérlendis, nema það hafi gerst um svipað leiti að þjóðartekjur væru að hækka á móti ca. það mikið. Ef þjóðartekjur eru ekki að hækka eða þær hafa ekki hækkað, þannig skapast verulegt svigrúm er leyfir hækkanir. Þá skiptir engu máli um hve mörg prósent er hækkað - verðbólgan hækkar bara á móti. Eða þ.e. skellt á innflutningshöftum.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 5.4.2014 kl. 09:15

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 63
  • Sl. viku: 83
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 82
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband