Er kominn tíma á innflutning á kínverskum bílum?

Íslendingar hafa lengi verið djarfir í því að flytja inn ný merki á markaðinn hér á landi. T.d. hófst innflutningur á bílum frá S-Kóreu á 9. áratugnum. Frá Japan í kringum 1966 eiginlega sama ár og Japan hóf útflutning bíla til Evrópu. Nú er glænýr bifreiðaframleiðandi frá Kína, með áætlanir um að hefja innreið á Evrópumarkað. Merki sem enginn á Íslandi hefur líklega heyrt um!

 

Tegundin heitir - - > Qoros

Þetta er fyrirtæki sem stofnað var 2007 í Sjanghæ, um er að ræða samstarf tveggja fyrirtækja þ.e. fyrirtækis er áður hét Chery Automotive Inc. sem framleiddi línu af afskaplega hráum og ódýrum bílum undir nafninu Chery, og ónefnds ísraelsks tækni-fyrirtækis. Fyrirtækið fékk nafnið "Qoros Auto Co., Ltd."

Mynd - Qoros 3 sedan

Fyrsti bíllinn var settur á markað 2013 þ.e. Qoros 3. Og sá hefur gengið í gegnum "krass próf" í Evrópu sjá: EuroNcap-Qoros 3 Sedan.

Skv. tölunum á síðu EuroNcap, virðist sá bíll hafa staðist prófið - með A+ eða hér um bil.

Þannig að hann er ákaflega öruggur í árekstri skv. því.

Hann er greinilega engin fjaðurvigt, en á síðu EuroNcap kemur fram: 1425 kg.

Hérna er  umfjöllun frá "HonestJohn" síðunni: Qoros Qoros 3

Skv. því sem þar kemur fram, mun sala á Qoros sedan hefjast á meginlandi Evrópu á þessu ári.

Hann virðist hafa tvær vélar í boði, báðar 1.6l bensín. Önnur með túrbó hin án túrbó. Sú aflminni 124 hestöfl en sú aflmeiri 154 hestöfl.

Síðan er 2015 á leiðinni smærri útgáfa, en þó á sama undirvagni:

Qoros 3 hatchback to make world debut in Geneva

Sá er afskaplega huggulegur bíll ef marka má myndir sbr:

http://images.cdn.autocar.co.uk/sites/autocar.co.uk/files/Qoros3-01.jpg Einnig þessi mynd:

http://images.cdn.autocar.co.uk/sites/autocar.co.uk/files/Qoros3-02.jpg

Sá virðist nota sömu vélar og sedaninn, í reynd virðast þeir náskyldir. Þ.e. hlaðbakurinn sé einfaldlega stytt útgáfa af sama bíl.

Einnig er fyrirhugaður - station bíll, sjá:

http://www.honestjohn.co.uk/imagecache/file/fit/730x700/media/5925235/qoros_3_station_wagon_side.jpg

Og að auki, jepplíngur. Allt á sama undirvagni sbr. "modular platform":

http://www.honestjohn.co.uk/imagecache/file/fit/730x700/media/5925285/qoros_3_cross_hybrid_hatchback_r34.jpg
Ég á von á því að í öllum tilvikum verði boðið upp á sömu 1.6cc bensínvélina í túrbó formi eða án túrbó.

Eðlilega er sá aflminni enginn sportbíll, skv. Autocar áætluð hröðun hlaðbaks með þeirri vél 11,6 í hundraðið, meðan að túrbó vélin gefi hröðun upp á 9,7 sekúndur.

Það virðist einnig töluvert lagt í innréttingar, sjá:


Þó hún líklega sé ekki að setja neinn nýjan standard - - virðist a.m.k. á mynd, að hún líti þokkalega út þó svo að hönnunin sé ekki eins nýstárleg og í nýjustu bílum t.d. frá S-Kóreu.

En sjálfsagt gildir í fyrstu tilraun, að ná öllum grunnatriðum réttum, og samsetningargæðum einnig.

Ég á ekki heldur von á því að þessir bílar setji nýjan standard í aksturseiginleikum, en miðað við útlit þeirra - þá ættu a.m.k. aksturseiginleikar að vera samkeppnisfærir.

Miðað við það hve þungur "sedaninn" er, þá er líklega nóg af hljóðeinangrandi efnum, þannig að veghljóð - vindhljóð og annað þess háttar, ætti að vera innan bærilegra marka.

Reyndar grunar mig, að þessir bílar gætu verið nánast jafn góðir - og t.d. S-kóreanskir bílar svona ca. eina kynslóð aftur. 

Framleiðandinn með því að koma þegar í stað fram með "fallega" hönnun - - vill að tegundin fái sem fyrst "gæðastimpil." Verði ekki álitin "ódýrt rusl." Eða eitthvað þess konar.

  • Enn veit ég ekki um neinn vestrænan fréttamiðil sem hefur reynsluekið Qoros 3.

Þannig akkúrat hvernig þeir eru, er enn dálítið - - óvisst.

En þ.e. a.m.k. mjög traustvekjandi, hve vel "sedaninn" kemur út úr árekstraprófi EuroNcap.

Það bendir til þess að allt "basic engineering" sé líklega á ágætum gæðastandard, sem ég túlka sem vísbendingu þess - - að undirvagnshönnun og tjúnnun, sé líklega á sambærilegum gæðum eða nærri þeim.

Svo mig grunar að það sé því ekkert að því að keyra þessa bíla. Það verði engar slæmar fréttir.

Þá er það spurning um - - verð!

En nýr framleiðandi sem ekki hefur enn neitt orðspor á markaði, verður að halda sig á Jörðinni með verð, þ.e. bjóða bílana á hagstæðum verðum miðað við gæði og búnað.

 

Niðurstaða

Nei ég er ekki með neitt umboð á Íslandi. En þessir bílar eru þeir huggulegustu sem ég hef séð frá Kína. Þessir bílar verða allir seldir í Evrópu á næstu árum. Sem þíðir að ef þarna úti er "enterpricing" íslendingur, þá gæti verið erfiðisins virði - að setja sig í samband við  Qoros Auto Co., Ltd. í Sjanghæ. Og kanna það á hvaða verði í "júönum" þessir bílar bjóðast. 

En ég bendi á að á sl. kjörtímabili, var komið á gjaldeyrisskiptasamningi milli Íslands og Kína. Þ.e. Kína tekur við ísl. krónum í skiptum fyrir júön. Sem þíðir að þ.e. ekkert sem kemur í veg fyrir að sá eða þeir íslendingar sem eru að pæla í þessu hugsanlega, kaupi bílana beint frá Kína milliliðalaust.

Tja svipað og mér skilst að Toyota á Íslandi hefur lengst af gert eða kannski alltaf, þ.e. verslað beint við framleiðandann í Japan.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Í fyrra voru fluttir inn nokkrir kínverskir bílar, stórsniðugir, fjórhjóladrifnir smábílar með sæti fyrir sex.

Ómar Ragnarsson, 18.1.2014 kl. 15:14

2 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Þeir sennilega mundu ekki komast í gegnum áreksturspróf EuroNcap, ef þeir eru eins og mig grunar, mjög frambyggðir og léttbyggðir á sama tíma - þ.s. ég sé fyrir mér er bíll sem svipar til gömlu japönsku bitaboxanna sem voru svo sniðugir bílar einu sinni en algerar dauðagildrur í árextrum, en t.d. Subaru bitaboxið var til fjórhjóladrifið og það má vel hugsa sér slíkan bíl dálitið upphækkaðan og góðan því í torfærum. En ef þeir væru nokkurn veginn eins og ég sé fyrir mér, væri ólíklegt að unnt væri að gera þá þannig úr garði að þeir gætu staðist próf EuroNcap. Ef svo er mætti ekki selja þá hér.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 18.1.2014 kl. 15:29

3 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Þetta veltur allt á verðinu.

Ég gef ekki mikið fyrir útlitið - þetta er allt orðið frekar ófrýnilegt - en maður þarf ekki að horfa á þá þegar maður er inní þeim.

Verra er að quality controlið hjá kínverjanum er svona la-la.

Ásgrímur Hartmannsson, 18.1.2014 kl. 23:03

4 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Þeir hljóta að vita hjá Qoros að einmitt það þarf að vera í lagi.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 19.1.2014 kl. 01:13

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 804
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 740
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband