"Groundhog Day" á Capitol Hill í Washington!

Það verður enn eitt "rerun" á dramanu um skuldaþakið á Bandaríkjaþingi á næstu dögum. Þessu má líkja við leik krakka af eldspýtum - það gæti orðið eldur af í þetta sinn. Þó ekki hafi það gerst í fyrri skiptin.

En í þetta sinn, er Obama á lokametrunum með sitt risaflumvarp, og ég meina virkilega "risafumvarp" sem kallað er “The Affordable Care Act” - þetta er sem sagt loksins komið á nokkurn veginn endanlegt form, hans stóra útspil um það, að bæta aðgang almennings að því sem kallast "velferð."

Þetta snýst sem sagt um aðgang að heilsugæslu á viðráðanlegum kjörum. En sannarlega felst í þessu umtalsverður kostnaðarauki fyrir alríkið.

Það er á það atriði sem Repúblikanar hengja sig, en ekki síst einnig á það - að með þessu stækkar ríkið, þ.e. alríkið gerir meira en áður, verður stærra að umfangi. 

Allt til verri vegar í augum hægri sinnaðra Repúblikana, sérstaklega leggur Tehreyfingin mikla áherslu á að drepa það frumvarp.

Þ.e. í þessu samhengi, sem verið getur, að núverandi deila um svokallað skuldaþak, sé hættulegri en fyrri skiptin.

En Obama og Demókratar eru jafn ákveðnir að ná heilbrigðismálafrumvarpi Obama í gegn.

  1. "Congress must pass a new budget by October 1, or trigger a partial government shutdown.
  2. A fortnight or so later, on October 17, the US Treasury says it will be near to running out of money to pay its bills."

Tíminn til stefnu er afskaplega stuttur, eða einungis fram á þriðjudag í nk. viku.

tveim vikum síðar, getur alríkið ekki lengur staðið við skuldbindingar.

Eins og flestir ættu að vita, þá hafa Demókratar og Repúblikanar meirihluta í sitt hvorri deildinni, sem leiðir fram þessa teppu - þ.s. hvor deild fellir niðurstöðu hinnar deildarinnar.

T.d. samþykkti meirihluti Repúblikana í Fulltrúadeildinni um daginn, að hengja undir frumvarp um framlengingu á skuldaþaki alríkisins, klásúlu um það að "Obama care" fengi engar fjárveitingar.

Sem að sjálfsögðu, var ekki ásættanlegt í augum meirihluta Demókrata í Öldungadeild.

----------------------------

Eins og síðustu 2 skipti. Verður líklega drama fram á lokastund.

Í ljósi reynslunnar, virðist líklegra að samið verði á endanum.

En hver veit, kannski til þess að drepa "ObamaCare" verða Repúblikanar, nægilega kærulausir um afleiðingar til þess - að láta alríkið verða tæknilega gjaldþrota.

Enginn veit í reynd hverjar afleiðingar slíks tæknilegs gjaldþrots verða - sumir segja litlar. Sumir aðrir - miklar.

 

Eins og áður má Evrópa ekki við miklu ruggi!

Sannarlega er ástandið minna viðkvæmt að sumu leiti en á sl. ári, eða árið á undan. Þ.e. ekki er paník á mörkuðum, ekki er ótti við yfirvofandi hrun evrunnar, minni svartsýni gætir í dag en árin 2 á undan. Örlítill hagvöxtur hefur mælst í fyrsta sinn í 2 ár.

  • Þ.e. einmitt punkturinn, að sá er örlítill. Eða ca. 0,2%.
  • Veikur neisti er getur auðveldlega kulnað.

Að auki er staðan viðkvæmari í sumum atriðum, þ.e. atvinnuleysi er meira en fyrir ári.

Skuldir aðildarríkja eru enn í aukningu, staðan um það verri en á sl. ári.

Síðan er pólitíska "kaosið" á Ítalíuað nálgast hættulegt stig!

Lawmakers in Silvio Berlusconi's Party Say They Will Resign if Former Premier Loses His Seat

Italy PM Letta returns to resignation threat from centre-right

  • "The Senate is due to vote next week on whether to strip Mr. Berlusconi of his seat following his conviction of tax fraud and four-year prison sentence.
  • A 2012 law bans anyone sentenced to more than two years in prison from holding or running for public office for six years. "
  • "With tensions high going into the vote, members of Mr. Berlusconi's People of Freedom party met Wednesday and indicated they would resign if Mr. Berlusconi is removed from the Senate."
  • "In an unusually stern statement, President Giorgio Napolitano accused Mr. Berlusconi's party members of undermining Italy's parliamentary system."
  • "He said if carried out, their "worrisome" threat would have the effect of pressuring him into dissolving parliament, a move that would spark a crisis in the 5-month-old, left-right hybrid government led by Premier Enrico Letta."

Svo þá liggur það fyrir:

  1. Þingmenn flokks Berlusconi hóta allir sem einn - afsögn. Ef Öldungadeild ítalska þingsins samþykkir, að svipta Berlusconi þingsæti og þar með þinghelgi.
  2. Forseti Ítalíu hefur á móti hótað - að rjúfa þing. Þannig að þingkosningar fari fram innan 5 mánaða. 

Enginn veit heldur hvernig þetta "game of chicken" fer.
----------------------------

Ástæða er samt að hafa áhyggjur af stöðu Ítalíu, en skuldir eru komnar í rúml. 130%. Þær eru virkilega risastórar þ.e. 3. hæstu ríkisskuldir í heimi. Einungis Bandaríkin og Japan skulda hærri upphæðir mælt í peningum.

Það er í reynd ekkert afl í Evrópu sem getur bjargað Ítalíu - nema Seðlabanki Evrópu.

Ef Ítalía dettur á hliðina.

Það sem gerir ástandið áhugavert - er að hafa þessi 2-drömu í gangi samtímis.

Þetta víxlverkar síðan við viðkvæmt ástandið í Evrópu.

 

Niðurstaða

Enn eina ferðina leika þingmenn á Bandaríkjaþingi sér að eldinum. Verður þetta "Groundhog Day" eða mun núverandi "rerun" enda með öðrum hætti? Sá möguleiki er sannarlega til staðar - sérstaklega í ljósi hinnar öflugu andstöðu Repúblikana við "ObamaCare" sem þeir virðast virkilega vilja drepa.

Ég þori engu um það að spá, hvort það geti verið að þingmenn Repúblikana séu það ákveðnir að drepa "ObamaCare" að þeir séu til í að spila rússnesku rúllettuna um skuldaþakið - alla leið á enda.

En ef þeir það gera, er engin leið að vita afleiðingarnar fyrirfram.

Þetta gerist á sama tíma og þ.e. drama á Ítalíu. Sem mjög vel getur endað í nýjum kosningum. Það ofan í það ástand, að skuldir Ítalíu hafa náð rúml. 130% á þessu ári.

Þær skuldir eru ekki sjálfbærar án umtalsverðs hagvaxtar.

Þá meina ég, Ítalía þarf alvöru hagvöxt - - ekki tölur á milli 0,1-0,5%. Það dugar ekki.


Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 845414

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband