75% skattur Hollande forseta, stenst ekki stjórnarskrá segir stjórnlagadómstóll Frakklands!

Ţetta er sennilega eftirtektarverđasta frétt dagsins. Telst örugglega vera umtalsvert pólitískt áfall fyrir Hollande. Á hinn bóginn, er stjórnlagadómstóllinn ekki strangt til tekiđ ađ banna ađ skatthlutfall á tekjur yfir tiltekinni upphćđ sé 75%. Heldur, taldi ađ hann skatturinn myndi bitna međ ósanngjörnum hćtti á sambúđarfólki. Hollande er ţegar búinn ađ lýsa ţví yfir, ađ lögin um hinn nýja skatt verđi endurskrifuđ.

Reuters útskýrir máliđ: French court rejects 75 pct millionaires' tax

"The Council, made up of nine judges and three former presidents, is concerned the tax would hit a married couple where one partner earned above a million euros but it would not affect a couple where each earned just under a million euros."

Međ öđrum orđum, hjón eđa sambúđarfólk, geti lent í ţessum skatti eđa ekki. Eftir ţví hvernig tekjurnar dreifast ţeirra á milli. Hvort annađ er mjög tekjuhátt eđa bćđi cirka svipađ.

Eins og fram kemur í Financial Times: French court says tax is unconstitutional

"The 75 per cent rate itself only hits about 1,500 people and will raise only a few hundred million euros."

Ţá er ákvörđunin um ţennan skatt, fyrst og fremst pólitísk. Skatturinn sem slíkur skipti franska ríkiđ afar litlu máli. Einungis lítiđ brotabrot af broti af skatttekjum ţess.

Hćtt er ţó viđ ţví ađ ţessi skattstofn sé afskaplega hreyfanlegur - t.d. hafa á síđustu mánuđum nokkrir ţekktir franskir einstaklingar flust úr landi. Síđast var ţađ yfirlýsing Gérard Depardieu hins ţekkta franska leikara, ađ hann vćri farinn til Belgíu. 

Svo segir í annarri frétt Financial Times: Entrepreneurs follow Depardieu out of France

"Olivier Dauchez, a lawyer at the Paris firm Gide Loyrette Nouel, whose clients include many top French companies, says there is a history of people leaving France for tax reasons – but today it is different.

“Before, it was people who had already made their fortune,” he said. “The striking new factor is that many of those leaving or who are thinking of leaving are those who are still creating wealth.”"

En auk ţess voru skattar á fjármagnstekjur hćkkađir, sem og skattur af söluarđi - ţegar eignir sem og hlutabréf ganga kaupum og sölum. Skv. frétt, hefur sölum fćkkađ hressilega.

French buyout bosses join flight to London

"French buyouts have more than halved this year to €6.2bn, while UK private equity deals were up 33 per cent to €19.4bn, according to data from the Centre For Management Buyout Research."

Auk ţess grunar mig, ađ svipađ geti gerst á markađi fyrir fasteignir ţá í stćrri kantinum, eignum sem hýsa starfsemi. Sem og ađrar stćrri húseignir. 

Fćrri eignir skipti um eigendur. Fyrirtćki hafa minna upp úr ţví ađ losa eignir til ađ útvega sér fjármagn.

--------------------------

Ţađ verđur áhugavert ađ sjá hver áhrifin af hinni nýju skattastefnu stjórnarinnar verđa, en skv. mćlingum óháđra ađila - - hefur veriđ undanfarna mánuđi innan Frakklands samdráttur í umsvifum atvinnulífs, sem fer mjög nćrri ţeim samdrćtti sem sömu mánuđi á sér stađ á Spáni.

 

Niđurstađa

Hollande er međ áhugaverđa tilraun í gangi. Ţ.e. ćtlar sér ađ afsanna ţá fullyrđingu, ađ ofurskattar leiđi til ţess ađ skattstofninn flýr. Hann hefur svarađ gagnrýni međ ţví ađ höfđa til föđurlandsástar ríkra. Vandinn viđ eignaríka sem og ţá sem hafa miklar launatekjur sem og fjármagnstekjur. Er ađ margt af ţessu fólki á mjög auđvelt međ ađ koma sér fyrir annars stađar. Mun auđveldar en almenni launamađurinn.

Á sama tíma tók Hollande til baka hćkkun eftirlaunaaldurs í 62 ár sem Sarkozy innleiddi.

Ég velti fyrir mér hvort áhrif stefnunnar í Frakklandi sé ekki ţegar fariđ ađ gćta - en skv. óháđum ađilum sem lesa í ţróun veltu í viđskiptum, hefur samdráttur veriđ í viđskiptalífinu innan Frakklands síđan í haust. Sem er mjög nálćgt ţví eins slćmur og á Spáni. Í reynd íviđ meiri en samdráttur yfir sama tímabil á Ítalíu.

Ţađ verđur mjög áhugavert ađ sjá hagtölur yfir lokafjórđung ársins ţegar ţćr liggja fyrir snemma á nk. ári, sennilega á bilinu febrúar til mars.

En mig grunar ađ Frakkland á nk. ári, komi ađ hliđ Ítalíu og Spáni. Sem lönd í vanda.

 

Kv.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Nauđsynlegt er ađ skrá sig inn til ađ setja inn athugasemd.

Um bloggiđ

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri fćrslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 714
  • Frá upphafi: 846644

Annađ

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 652
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband