Er ný Grikklandskrýsa í uppsiglingu?

Föstudaginn sl. þ.e. 19/8, skrifuðu fjármálaráðherrar Finnlands og Grikklands undir samkomulag, sem í dag, er orðið - umdeilt. Svo alvarlegum augum líta ímsir það, að svo geti farið, að það geti velt af stað snjóbolta, sem fyrir rest geti orðið það stór - að sjálft samkomulagið frá því síðla júlí í sumar, um aðra endurfjármögnun Grikklands, geti riðað til falls.

 

Moody's sendir frá sér mjög harðorða aðvörun: Moody’s not pleased with Greek collateral grab

"If generalized, these bilateral agreements would be credit negative for Greece and other countries now receiving or potentially in line for bailouts, since it illustrates continued differences among euro area states over the provision of support to their fellow members. The pursuit of such agreements could delay the next tranche of financial support for Greece and so precipitate a payment default."

"In this context, the tentative Finnish-Greek collateral accord raises concerns about the willingness and ability of some euro-area policymakers to implement measures that may prove necessary to preserve the stability of the European Monetary Union."

 

Um hvað snýst málið?

Already Slovenia, Slovakia, Austria and the Netherlands have said they would seek similar deals!

Finnar óttast að, þeir peningar sem þeir láni Grikklandi, verði ekki allir endurgreiddir. Hluti fjárins tapist. Svo, þeir gerðu kröfu um að hluti lánsupphæðar, verði lögð í pant sem veð. Grikkir greiða semt vexti af þeim 20% sem lögð eru í pant, þó þeir njóti ekki einnar Evru. Fyrir þá peninga, þurfa Grikkir að kaupa bréf með 3-A veðhæfi, sem eru auðinnleysanleg. Ef Grikkir - eins og margir enn spá - lenda í vandræðum með greiðslur, geta Finnar leyst fjármagnið í panti til sín.

  • Með þessu lækka Finnar sína áhættu - sem í einangrun frá öllum öðrum sjónarmiðum, getur virst góð hugmynd.
  • Vandinn kemur - þegar menn fara að íhuga hið stærra samhengi!
  • En áætlunin um endurfjármögnun Grikklands, gerði ekki ráð fyrir að löndin sem veita fjármagnið - krefjist slíkra gerninga - - en slíkur gerningur klárt minnkar það fjármagn sem Grikkir fá til umráða þ.e. í þessu tilviki um 20%.
  • Stærð endurfjármögnunarinnar, var reiknuð út frá áætlaðir fjármögnunar-þörf Grikklands út 2013.
  • Svo - ef önnur ríki fylgja fordæmi Finna, þá myndast stækkandi hola í þeirri fjármögnun - - sem fullkomlega óhjákvæmilega, mun grafa undan trúverðugleika endurfjármögnunar áætlunarinnar, þ.e. björgunar pakkans sjálfs.
  • Að auki, eins og Moody's bendir á, má ekki heldur gleyma áhrifum þessa samnings á sýn fjárfesta, á vilja aðildarríkja Evrusvæðis - til að standa straum af þeim sameiginlegu björgunaraðgerðum, sem til þarf - - svo Evrunni sjálfri verði haldið á floti.
  • En samningur af þessu tagi, myndbyrtir í augum fjárfesta akkúrat dæmi um, þann skort á úthaldi til að standa undir sameiginlegum kostnaði - - sem marga er farið að gruna að sé farið að gæta.
  • Þetta dæmi er því enn einn líkkistunaglinn - í lifandi lík sjálfrar evrunnar.
  • Að lokum - - þarf einhver að bera kostnaðinn!
  • Ekki getur Grikkland - skorið enn meir niður fyrir mismuninum. Það er klárt af nýjum tölum yfir líklegann samdrátt þessa árs - og skýrum vísbendingum um áframhaldandi samdrátt næsta ár.

Mun björgunar-áætlun Grikklands falla?
Nýlegar fréttir gefa vísbendingar, eina ferðina enn, að kreppan í Grikklandi verði verri en spár gerðu ráð fyrir. En fram að þessu, hafa allar slíkar spár brugðist!

Greece admits economy will shrink more than expected :"Evangelos Venizelos said the ministry forecasts annual output to shrink in 2011 between 4.5pc and 5.3pc of GDP."

Analysts Say Greece's Recession Will Continue in 2012 : "analysts said Greece's economy could shrink 2% or more next year"

Það má vera, að sá aukni samdráttur og því um leið útgjalda-vandi sem gríska ríkisstj. stendur frammi fyrir; sé vatn á myllu þeirra sem í einstökum aðildarlöndum, krefjist þess að þeirra land geri samskonar samkomulag við Grikkland og Finnar voru að gera.

  • Eins og sést að ofan - eru snjóboltaáhrifin þegar hafin!
  • Og deilan hefur tekið óvænta stefnu - eftir að Hollendingar hafa skipt um skoðun!

Ivan Miklos, Slovakian finance minister: "I consider it unacceptable for any country not to have collateral when other countries have it."

Greco-Finnish deal reopens bail-out debate :"The most strenuous objection came on Monday from the Netherlands, which had originally said it might also push for a collateral deal if the Finnish plan was approved." - "A Dutch veto could halt the entire bail-out, as all 17 eurozone countries must approve the both the Greek rescue and the Finnish side deal."

  • Nú hóta Hollendingar að fella allt samkomulagið - hafa sett Finnum úrslitakosti. Þetta er nýr póll í hæðina, eftir að þeir fyrst sögðust vilja samskonar díl.
  • En finnska ríkisstj. segir að þetta samkomulag, sé eina leiðin til þess - að meirihluti sé innan finnska þingsins fyrir björgunarpakkanum, fyrir Grikkland. 


Niðurstaða

Eina sem ég get ráðlagt fólki, er að fylgjast með fréttum. En á þessari stundi er engin leið að vita hvernig þetta fer. En öruggt er að mjög slæm efnahags framvinda Grikklands, grefur undan björgunaráætluninni. Það einnig, skapar aukinn ótta um þá peninga sem björgunaráætlunin gerir ráð fyrir að Grikklandi sé lánað, ofan í fyrri lán. Sá ótti - getur einmitt skapað slæmann vítahring nú þegar þessi deila er nú komin upp á yfirborðið.

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hörður Þórðarson

"Grikkir greiða semt vexti af þeim 20% sem lögð eru í pant, þó þeir njóti ekki einnar Evru."

Þetta er ekkert annað en sturlun. Það er greinilega erfitt að horfast i augu við þær staðreyndir sem blasa við í þessu máli. Mikill hluti þess fjármagns sem hefur verið lánað til grikkja hefur tapast. Þeim mun fyrr sem menn hætta að dæla fé í grikki og gera ráðstafanir til að takmarka afleiðingar tapsins, þeim mun betra.

Það getur ekki verið gott að halda áfram á þessari braut.

Hörður Þórðarson, 23.8.2011 kl. 19:55

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 711
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 649
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband