Maltverjinn Joe Borg bjartsýnn að Ísland fái sérsamning skv. fordæmi sérsamnings er fékkst um sjávarútveg Möltu!

Augljósa ábendingin er að mjög mikill munur er á sjávarútvegi eins og hann er stundaður á Möltu og sjávarútvegi eins og hann er stundaður hér við land. Að auki, er gríðarlegur munur á magni því sem aflað er. Þannig, að mjög mikill munur er á vægi maltverks sjávarútvegs innan ESB þ.e. hverfandi vægi, og vægi ísl. sjávarútvegs, er hefur mikið vægi.

Fyrirsögn á frétt RÚV virðist vera villandi, þ.s. Borg talar einungis um möguleika á hagstæðum samningum, þ.e. talar ekki með neinum beinum hætti um undanþágur.

 

Íslendingar geta fengið undanþágur

"Joe Borg, fyrrverandi sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins, segir að ef Íslendingar færi skýr rök fyrir undanþágum frá sameiginlegri fiskveiðistefnu ESB í aðildaviðræðum við sambandið geti Íslendingar vafalítið náð hagstæðum samningum fyrir sig...Borg segist sannfærður um að framkvæmdastjórnin geri hvað hún geti með Íslendingum til að finna lausn sem brjóti ekki gegn grundvallarreglum ESB en gæti hagsmuna Íslands."

 

Staðreyndin er sú, að þó svo að við mætum Framkvæmdastjórninni við samningaborðið, þá er hún einungis milliliður á milli okkar í þessu tiltekna tilviki og aðildarríkjanna.

En, það eru aðildarríkin, sem alltaf taka lokaákvörðun um það, hvort eða hvenær einstökum köflum af 35, sem aðildarsamningurinn skiptist í, verður lokað. Þannig að það eru þau sem okkar samningamenn þurfa að sannfæra:

  • Höfðuverkurinn, er sem sagt, að sannfæra aðildarríkin 27 öll án undantekninga þ.s. neitun eins þeirra dugar til að stöðva allt, um þ.s. okkar saminganefnd vill fá fram fyrir okkar hönd.
  • Þau taka afstöðu út frá eigin hagsmunum sem aðildarríkis, og þau meta einnig, hvort verið sé að gefa fordæmi, sem þau telja sér ekki í hag að gefa.
  • Síðan, að sjálfsögðu, verða hugmyndir okkar að rúmast innan núverandi reglu- og lagabálka ESB. Það veitir töluvert takmarkað svigrúm.

 

Fyrir utan stofnríkin 6, hafa 21 aðildarríki bæst við - samtals 27 í dag. Allir þeir aðildarsamningar skapa fordæmi, sem tekið er mið af.

 

Maltneskur sjávarútvegur

Sjá upplýsingar frá FAO um sjávarútveg Möltu:

"Over 65 percent of annual landings (about 1 000 t) originates from the tuna and dolphin fish fisheries, which contribute about 56 percent in value terms (about US$ 6 million). Trawling, bottom long-lining and swordfish longlining have similar importance in terms of both weight (7–10 percent of annual landings each) and value (11–15 percent of annual value each). Trammel nets and other artisanal demersal gears account for about three percent of annual landings, whilst minor pelagic gears account for about four percent of the annual landings." 
 
Þetta segir, að landað sé einungis 1.000 tonnum árlega.

The average Maltese fishing vessel (of which there were 2 252 registered in 2004) is well under 10 m LOA, with the exception of the trawlers, which exclusively use bottom otter trawls and average 22.5 m LOA.


Ef togveiðar eru einungis milli 7-10% þá þíðir það væntanlega, að þær eru milli 70 og 100 tonn, en eins og sést eru þetta togbátar fremur en þ.s. við köllum togara.

"The social and cultural importance of the Maltese fishing industry far outweighs its negligible economic contribution, which is equivalent to about 0.1 percent of the national Gross Domestic Product (GDP)."

 

Meginþýðing fiskveiða sé menningartengt.

 

Til samanburðar var heildarafli við Ísland 1.129.621 árið 2009.

Sjá: Heildarafli á Íslandsmiðum

 

Sjá einnig reglugerð ESB um fiskveiði verndarsvæðið við Möltu:

COUNCIL REGULATION (EC) No 813 /2004 of 26.4.2004

(a) fishing within the management zone shall be limited to fishing vessels smaller than
12 metres overall length using other than towed gears;

(b) the total fishing effort of those vessels, expressed in terms of the overall fishing
capacity, shall not exceed the average level observed in 2000-2001 that corresponds to
1 950 vessels with an overall engine power and tonnage of 83 000 kW and 4 035 GT
respectively.

 

Þetta er aðalreglan - hún stenst reglur ESB þ.s. ekki er formlega um að ræða takmörkun á rétti sérhvers þegns ESB ríkis að fiska þarna. Samt er litið svo á, að útgerð á svo smáum fleyum þarna muni einungis borga sig fyrir Maltverja.

Eðlilega myndi ekki sambærileg regla virka fyrir okkur þ.s. okkar skip eru mikið stærri mörg hver og því klárt að slík regla myndi ekki tryggja rétt íslendinga öðrum fremur í reynd, eins og stærðartakmörkunin er gildir innan fiskverndar svæðisins umhverifs Möltu er talin virka.

 

Þegar ég var við nám í Lundi, skrifaði ég einmitt lokaritgerð þ.s. ég gerði sérstaka athugun á undanþágum

Niðurstaðan var að varanlegar undanþágur (eða varanlegar sérlausnir) voru og eru sjaldgæfar, en þær koma þó fyrir.

En, þegar tilvik þ.s. varanleg undanþága (sérlausn) næst fram eru skoðuð, þá virðist ljóst að vanalega er um að ræða þátt sem hefur mjög lítið efnahagslegt vægi en á sama tíma telst hafa umtalsvert menningarlegt vægi.

 

Commission Opinion on Iceland's application for membership of the European Union

( bls. 67)

Icelandic fisheries production (harvesting and aquaculture) has averaged 1.7 million tonnes in recent years. Iceland’s fisheries production represents almost a third of the combined EU-27 production (4.6 million tonnes in 2006). 

 

  • Þetta á alls ekki við um ísl. sjávarútveg, sem hefur mjög mikið vægi innan heildarpúlíu sjávarútvegs ESB - eins og sést að ofan.
  • Hann er þar að auki, ekki stundaður eins og á Möltu einkum á smábátum er róa skammt, þ.s. línur og önnur handveiðarfæri eru mest notuð.
  • Að auki, er ekki algengasta fiskveiðifleyið hér, enn að grunni það sama og notað hefur verið um aldir.

 

Mikið vægi dregur úr líkum þess, að þau rök virki að ísl. sjávarútvegur sé svo óverulegur að efnahagslegu vægi fyrir sambandið, að það sé aðildarríkjum að fullkomlega meinlausu að heimila sérstakt tillit til Íslands í sjávarútvegsmálum. Að auki minnka líkur á því, að aðildarríki meti fordæmi skapað með þeim hætti, lítilvægt fyrir eigin hagsmuni. 

Það þíðir ekki endilega, að ekkert tillit verði tekið til okkar sjávarútvegs - en, mjög ólíklegt verður að teljast að fram fáist varanleg undanþága (sérlausn).

Síðan, þurfa menn aðeins að átta sig á, að takmörkunin við Möltu er almenn þ.e. 10 m. fley. Þ.s. ekki borgar sig að veiða á 10 m bátum nema frá Möltu, þá er ólíklegt að aðrir en Maltverjar stundi þær veiðar. 

Það væri því ekki hægt að tryggja rétt okkar með sambærilegri reglu, þ.s. skipin hér eru mikið stærri og því klárt að aðrir myndu nýta sér hana.

Miðað við reynslu af aðildarsamningum virðast líkur langmestar, að aðlögun verði hin hefðbundna frestandi aðlögun, þ.s. vegna mikilvægis okkar auðlyndar fáist fram löng aðlögun þ.e. sennilega eitthvað í kringum 10 ár.

 

 

Kv.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dingli

Sæll Einar

Það ber allt að sama brunni þegar aðild Íslands að ESB er skoðuð rökrétt. Stærsti vandinn er, að aðildin er orðin að trúar og tilfinningaáráttu eins og hval eða selveiðar. OG trúaðir taka ekki rökum.

Það er svo annað mál, ef fjórflokknum verður ekki að mestu útrýmt í næstu kosningum, banka og fjármálakerfið skolað út með vítissóta og mannlegt samfélag byggt á rústunum, þá breytir það engu fyrir Íslenskan almenning hvort hann tilheyrir sýslu í EU, USA eða Kína.

Dingli, 26.9.2010 kl. 05:37

2 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Eitt Dingli - að þ.e. ekki rétt að innganga í ESB, svipti innlend stjm. þeirra völdum. Sumir virðast halda, að þá muni embættismenn ESB stjórna hér öllu. Þvert á móti, breitist hér afskaplega lítið, þ.s. við erum þegar inni í 4 frelsinu svokallaða, þegar búin að taka upp stóran hluta laga og regla ESB, farin að starfa eftir þeim.

Stóra breytingin snýr að sjávarútvegi annars vegar og landbúnaði hinsvegar, en landbúnaður og sjávarútvegur er undanskilinn EES ákvæðum.

Síðan gleyma margir, að útlendingar eignast hluti í okkar sjávarauðlind, þá minnkar það þjóðartekjur Íslendinga, þ.s. þá fellur ekki skattur af arði þeirra lengur hér á landi. 

Að auki, þó að verið geti að hægt sé að lækka matvælaverð hérna, með niðurlagningu stórs hluta okkar landbúnaðar, og flytja inn þess í stað - þá gerir það efnahags stjórnun erfiðari. Ástæðan er sú, að þá minnkar þ.s. hér er framleitt og þess í stað er það flutt inn. Þ.e. vandamál vegna þess, að innflutnings halli hefur lengi verið krónískt vandamál.

Þ.e. einföld þumalfingurs regla, að ef við flytjum meira inn en við flytjum út, þá er það örugg leið til þjóðargaldþrots - þ.e. einmitt stór hluti skulda Grikkja, Portúgala, Íra og Spánvera - að þeir voru allan umliðinn áratug með vöruskiptahalla.

Þetta er ekki trivial vandi.

Þannig, að þó maður elski ekki okkar sjávargreifa, held ég samt að hálfu verra væri að eiga við erlenda aðila, sem við hefðum enn minni tök á.

Ps. Ég minntist ekki á Evruna þ.s. þ.e. svo óskaplega langt í hana.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 26.9.2010 kl. 12:41

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Þetta umræðuefni er nú á bloggsíðu Evrópusamtakanna. Þar er gert mikið úr þessum undanþágusamningi Maltverja.

Ekki verður séð að á þeim bænum þyki ármönnum síðunnar þessi vísun til ársafla einnar trillu á Vestfjörðum skipta máli.

Það vekur bara upp ergelsi sem okkur ber að varast. 

Ekki var það heldur meginþema samtals þeirra Egils Helga og fyrrum yfirmanni sjávarútvegsmála ESB í Silfrinu í dag.

Árni Gunnarsson, 26.9.2010 kl. 17:21

4 Smámynd: Dingli

Það er einmitt þetta sem ég er að tala um. Verði völdin ekki tekin af sjálftöku elítunni, kvótinn innkallaður ALLUR STRAX, innlendum bönkum fækkað í einn (Einn stór viðskiptabanki dugir+kannski tveir minni MP t.d. og síðan verði sjálfstæðir sparisjóðir vítt og breytt um landið.) og heiðarlegt fólk taki við hagstjórninni, þá breytir engu hvar í gálganum við dinglum.

Dingli, 26.9.2010 kl. 20:32

5 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Það myndi ekki einu sinni duga til, að gera Ísland að fylki í Bandar. Þau hafa eftir allt saman unmtalsvert sjálfræði.

Né, kannski ef við gerðumst aftur amt í Danm.

--------------

En öllu gríni slepptu, þá held ég að lausn liggi í upptöku þjóðaratkvæðagreiðslu fyrirkomulags ala Sviss.

Ég er eiginlega að vonast til að Sjálfstæðismenn og Samfylking láti verða af því, að pússa sig saman á ný.

En, slík samstjórn þeirra spilltu, væri nokkurs konar fullkomin uppskrift annað af tvennu, að mjög stórum breytingum á flokkakerfi eftir 2 ár eða byltingu áður en að þeim tímamótum kemur.

Persónulega, vil ég frekar halda okkar sjálfstæði, þ.s. ég held að þetta land hafi heilmikla möguleika, ef við komum okkur út úr núverandi fari.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 27.9.2010 kl. 00:46

6 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Árni - þ.e. samt ástæða að minnast þess hve lítill sá afli er, þ.s. eins og ég útskýrði, að miðað við þá niðurstöðu er ég komst persónulega að, þegar ég kynnti mér þær undanþágur er þjóðir höfðu náð fram; þá var það eitt ferli sem ég þóttist sjá út, að auðveldar væri að fá undantekningu fyrir þá er hefur lítið efnahagslegt vægi innan samhengis ESB en fyrir þátt er hefur mikið efnahagslegt vægi innan samhengis ESB.

Það ætti að vera rökrétt, þegar haft er í huga, að verið er að semja um aðild við aðildarríkin 27 og öll þurfa að samþykkja þann aðildarsamning og staðfesta.

Almennt séð, vekja litlir þættir minni andstöðu en stórir þættir.

Þetta er einfaldlega mannlegt eðli, að við gefum frekar séns með e-h er okkur finnst skipta litlu máli, en fyrir þætti er okkur finnst skipta miklu.

 Kv.

Einar Björn Bjarnason, 27.9.2010 kl. 00:51

7 Smámynd: Þorgeir Ragnarsson

Það er hreint og beint fáránlegt hvernig reynt er að líkja Íslandi og Möltu saman af ESB-liðinu. Þessi tvö þjóðfélög eiga varla nokkurn skapaðan hlut sameiginlegan nema það að vera fámenn og smá.

Sjávarútvegur hefur nánast ekkert vægi á Möltu, hér er hann mikilvægari en allar atvinnugreinar, á Möltu eru ekki jarðhiti eða fallvötn til orkuvinnslu o.s.fr. Málflutningur aðildarsinna eru tómar blekkingar og útúrsnúningar.

Þorgeir Ragnarsson, 28.9.2010 kl. 13:04

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 758
  • Frá upphafi: 846639

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 694
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband