Ræða mín fyrir útifund á lækjartorgi - 12/3 20010!

Kæru landar -

*hver er sannleikurinn um ástandið, eins og það er?

*ríkisstjórnin, segir okkur ítrekað að vera bjartsýn.

*En, er ástæða til bjartsýni - skoðum málið.

--------------------------------------

Hver var raunstaða landsins við áramót?

Kæru landar, ég beini spurningum að ykkur!

*Við áramót, var hagnaður af vöruskiptaverslun landsmanna, um 90 milljarðar - hve margir vita þetta?

Réttið upp hönd! Já nokkur af ykkur vita það.

*En, hve margir vita þá, að þrátt fyrir stærsta hagnað landsmanna af vöruskiptum alls lýðveldistímans, var samt sem áðiur halli, af reikningi landsmanna við útlönd, í kringum 50 milljarða?

Réttið upp hönd, sem vissu þetta! Eru það ekki fleiri? Svona réttið upp hönd!

Þá vitum við það, mjög mörg ykkar vissu það ekki.

*Lokaspurningin, - ímyndum okkur, að hvert ykkar væri sérfræðingur, starfsmaður banka, og til ykkar kæmi einstaklingur, sem svipað væri ástatt um, og Íslandi - þ.e. að tekjur duga ekki fyrir greiðslum vaxta af skuldum. Og, viðkomandi myndi biðja um lán. Hve mörg ykkar, myndu mæla með því, að veita þessum einstaklingi - sem þegar hefur ekki nægar tekjur fyrir vöxtum af þeim skuldum er hann þegar er með á bakinu - nýtt lán? Hve margir? Enginn? Virkilega svona fáir?

Kæru landar, þá vitið þið svarið við því, hvers vegna lánafyrirgreiðsla erlendis frá, er einfaldlega ekkert að ganga, hvorki fyrir ríkið - né orkufyrirtækin, er vilja fjármagna framkvæmdir, sem ríkið vill ráðast í.

Starfsmenn erlendra banka eru engir bjánar. Þeir sjá þetta eins vel, þ.s. þið sáuð áðan, ef ekki betur, að hrein brjálsemi væri, að lána frekara fé til Ísland, þegar það þegar hefur ekki nægar tekjur fyrir núverandi skuldum.

---------------------------------

*Ríkisstjórnin vill meina, að það sé Icesave að kenna, að þessi fyrirgreiðsla berist ekki. En, lausn Icesave hækkar ekki tekjur Íslands - nei það hækkar þ.s. Ísland þarf að greiða af. Eins og við nú vitum, þá lána engir okku á meðan, tekjur duga ekki fyrir greiðslum af þeim skuldum, sem við þegar erum með á bakinu. Þ.e. því alger fásinna að halda því fram, að það liðki fyrir lánafyrirgreiðslu til Íslands, að leisa Icesave.

En, bjargar það ekki öllu, að fá lánin frá norðurlöndunum og AGS? Kæru Íslendingar, eins og ég úskýrði áðan, þá er það sá vandi, að Ísland hefur nú þegar ekki nægar tekjur fyrir greiðslum af núverandi skuldum, sem hamlar gegn lánafyrirgreiðslu hingað til lands, t.d. til Landsvirkjunar?

Það ástand, batnar í engur við það eitt, að stórhækka þær skuldir sem Ísland ber, en eftir allt saman mun þurfa að greiða af þeim einnig. Þess vegna, sé ég ekki, orsakasamhengi milli að - ganga frá Icesave - að fá lánin frá AGS og Norðurlöndunum - og, að einhverjar flóðgáttir lána, opnist til Íslands.

------------------------------

*Við erum í vanda, því ekki er útlit fyrir að verði að þeim stórfelldu verklegu framkvæmdum, sem stefnt var að, setja af stað á þessu og næstu árum.

*Það - kæru Íslendingar - þíðir að plan AGS og ríkisstjórnarinnar um efnahagslega endurreisn - er hrunið.

*Og, - kæru landar - fyrst að svo er, þá verður ekki að hagvexti, ekki bara á þessu ári, heldur einnig á næsta og þarnæsta, a.m.k.

*Svarið er sára einfalt, það þarf að stokka upp spilin og hugsa allt planið um endurreisn upp á nýtt.

----------------------------

Ég skal nefna eina hugsanlega útleið.

Hún er sú, að endurskipuleggja skuldir, til lækkunar skuldabyrði, jafnvel á höfuðstól.

Slíka leið hafa aðrar þjóðir farið, t.d. Nýja Sjáland við upphaf 10. áratugarins, og farnast þeim vel í dag.

Endurskipulagning skulda, með aðstoð sérfræðinga, með það markmið að koma greiðslubyrði niður í viðráðanlegar hæðir, er sú leið sem mér líst best á.

*En, vera má, að einhverjum snillingi detti eitthvað betra í hug.

 

Ég bendi öllum á, að líta á blogg mitt, þ.s. ég byrti þessa ræðu:

einarbb.blog.is. Ég endurtek, : einarbb.blog.is.

 

Takk fyrir mig!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Farnast Nýja Sjálandi vel í dag???  Ertu ekki með öllum mjalla?

Ertu að leggja til að við leggjumst fyrir Parísarklúbbinn þarna?  Veistu yfirleitt hvað þú ert að segja?  Finnst þér ekki ábyrgðarleysi að gapa svona fram fyrir fjölda fólks, vitandi að þú hefur hvorki, þekkingu né fullvissu fyrir fullyrðingum þínum?

Ég á hreinlega ekki orð yfir þessum vaðli.

Jón Steinar Ragnarsson, 12.3.2010 kl. 22:54

2 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Jón Minn - núverandi leið, sú leið, að þiggja öll þessi lán - er leið í átt að efnahagslegum dauða.

Allt er betra, eða skárra, en það.

------------------------

Jamm, sannarlega er Nýja Sjáland í ágætum málum í dag.

------------------------

Þú verður að koma með e-h betra, en svona skvaldur.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 13.3.2010 kl. 21:07

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þú verður bara að afsaka. Þú ert bara einn versti kverúlant sem bloggheimar hafa alið.  Ég stend við orð mín. Þú verður að eiga þetta við sjálfan þig. Það er enginn sem tekur þig alvarlega hér.

Jón Steinar Ragnarsson, 15.3.2010 kl. 17:34

4 Smámynd: Einar Björn Bjarnason

Þetta svar var bara innantómt nöldur.

Kv.

Einar Björn Bjarnason, 15.3.2010 kl. 21:13

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 715
  • Frá upphafi: 846645

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 653
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband