30.8.2017 | 10:13
Bandaríkin að íhuga að skjóta niður næstu norðurkóreönsku eldflaugina sem yfirflýgur Japan eða Suður Kóreu
Þetta er spurning um hvað er unnt að gera - en flaugin sem N-Kórea skaut á loft þann 29/8 sl. flaug yfir Hokkædo eyju rétt fyrir sunnan borgina Sapporo -- í rúmlega 1000km. hæð. Allt í allt fór flaugin 2.700km áður en hún féll í hafið handan við Hokkædo eyju: North Korea launch increases focus on risky U.S. shootdown option.
Það virðist ljóst að með þessu eldflaugaskoti - sendir Kom Jon Un enn eina ferðina, upp réttan fingur til Donalds Trumps.
En fram að þessu, hefur einræðisherra N-Kóreu látið hótanir Bandaríkjastjórnar sem vind um eyru þjóta.
- Allar loftárásir eða hernaðarárásir af nokkru tagi, mundu án nokkurs vafa starta Kóreustríðinu að nýju.
- James Mattis hefur sjálfur kallað slíkt stríð "catastrophic."
- Á sama tíma, virðast efnahagsaðgerðir gegn N-Kóreu - ekkert gagn gera.
--En rétt að benda á, að skv. vísbendingum hefur verið veruleg aukning í hagvexti N-Kóreu síðan Kim Jon Un tók við.
--Hann virðist vera að loksins að fylgja einkaframtaks leið Kína, til að efla hagvöxt.
--En ætlar sér greinilega ekki, slaka á ógnarstjórn Kimmanna þrátt fyrir eflingu hagkerfis.
- En þ.e. punkturinn, hagkerfið raunverulega virðist vera að eflast: The truth about North Korea: it's booming.
--Bersýnilega er Kína ekki tilbúið að beita N-Kóreu þeim efnahagsþrýstingi sem líklega virkar.
--En ef Kína væri fullur þátttakandi slíkra aðgerða, væri líklega ekki hröð aukning í hagvexti í N-Kóreu eins og virðist reyndin.
Það má líta á það sem - enn stærri fingur upp réttan til Vesturlanda.
Að í N-Kóreu getur svokallað efnahagslegt flugtak verið hafið.
--En hinn ungi Kim Jon Un, sem skólaður var í Sviss í einkaskóla þar, getur hafa áttað sig á því.
--Að efnahagsleg uppbygging væri a.m.k. mikilvæg forsenda áframhaldandi valda Kim fjölskyldunnar.
Það er erfitt að finna sterkari kaldhæðni ofan í allt hitt!
Ef þ.e. raunverulega satt, að efnahagsleg flugferð er hafin í N-Kóreu.
--Samtímis og N-Kórea ítrekað réttir fram fingurinn, með eflingu kjarnorkuvopna.
--Og langdrægra eldflauga sem ítrekað er skotið á loft sl. mánuði.
U.N. condemns 'outrageous' North Korea missile launch, Pyongyang says more to come
US considering all options over North Korea missile launch
Tilraun til að skjóta niður langdræga norður kóreanska eldflaug er ekki án áhættu!
Ég hef ekki trú á því að Kim Jong Un líti á slíkt sem "act of war."
Frekar það, að það væri raunverulegur möguleiki á því að "THAAD" kerfið mundi bregðast.
Það að Bandaríkin hafa formlega tekið það eldflaugavarnakerfi í notkun. Bendir auðvitað til þess að bandarísk hernaðaryfirvöld telja að það virki. Hinn bóginn, hefur líklega aldrei kerfið verið prófað með þeim hætti - að skjóta niður eldflaug sem einhver annar en Bandaríkin sjálf eiga.
--M.ö.o. er ekki vitað hversu "realistic" prófanir hafa verið.
--Þó það hljóti að vera að margar prófanir hafi farið fram, meðan kerfið var í þróun.
--Og það hljóti að hafa sýnt getu til að skjóta niður eldflaugar í prófunum, annars væru Bandaríkin ekki að koma þeim kerfum fyrir m.a. í Japan og S-Kóreu.
- Ef Bandaríkin næst skjóta niður eldflaug á lofti, eftir að hún er komin yfir S-Kóreu eða stefnir greinilega t.d. á Japan.
- Þá væru það líklega öflug mót skilaboð.
Til þess að tryggja að flaug sé skotin niður væri unnt að skjóta nokkrum gagnflaugum í einu.
Það væri auðvitað töluverður álitshnekkir ef eldflaugavarnarkerfið mundi bregðast.
Það er þá sú áhætta sem Bandaríkin mundu þá taka.
En skilaboðin ef tilraunin mundi heppnast - væru sterk.
- Það mundi draga mjög úr hugsanlegum fælingarmætti eldflauga Kims Jon Un - ef Bandaríkin mundu sanna með eftirminnilegum hætti.
- Að þau geta skotið þær flaugar niður á lofti, ef þeim sýnist svo.
Bandaríkin mundu ekki endilega þurfa að hóta hernaðarárás í kjölfarið.
En Kim hlyti að sjá í slíkri aðgerð ef hún heppnast, þá óbeinu hótun að Bandaríkin geti án áhættu fyrir þau sjálf -- hafið hernaðarárásir á N-Kóreu í öryggi þess að geta skotið flaugarnar hans niður.
--Þannig gæti hugsanlega slík aðgerð, einmitt knúið Kim Jong Un til að semja!
--Þ.e. ef Bandaríkin geta sannað að hann geti ekki verið 100% öruggur með sig, þó hann eigi flaugar sem geta borið kjarnorkuvopn.
--Þá hefur Kim þar með, meiri ástæðu til að gefa eftir a.m.k. að hluta.
Þar sem að í því tilviki geti hann ekki verið fullkomlega öruggur þó hann ætti nokkur stykki af kjanrorkuvopnaberandi langdrægum eldflaugum - að það væri algerlega örugg fæling á hugsanlega hernaðarárás frá Bandaríkjunum.
- M.ö.o. velheppnað niðurskot á næstu flaug sem Kim Jon Un skýtur á loft yfir S-Kóreu eða í átt til Japan; gæti falið í sér virkilega öflug skilaboð.
Niðurstaða
Ég færi rök fyrir því að Bandaríkin, ef þau telja "THAAD" raunverulega virka, að þá ættu þau að taka þá ákvörðun að næsta eldflaug sem Kim Jong Un skýtur á loft í átt til Japans eða að næsta flaug sem Kim Jong Un hefur skotið á loft sem er að fljúga yfir S-Kóreönsku landsvæði; að slík flaug verði skotin niður.
Skilaboðin væru þá tvenns konar, þ.e. í annan stað til Kims Jong Un, að hann geti ekki verið algerlega öruggur um það að fæla Bandaríkin frá hernaðarárás á N-Kóreu; þrátt fyrir það ef Kim Jong Un tekst að fullþróa sínar eldflaugar, og á t.d. 10 stykki slíkar tilbúnar til flugtaks.
Og hins vegar til Bandaríkjamanna og bandamanna Bandaríkjanna, um það að Bandaríkin séu fær um að verja sig og sína, gegn svokölluðum "rogue powers."
--Það væri óneitanlega sterkt svar tel ég ef Bandaríkjamönnum mundi takast næst að skjóta slíka flaug niður.
--Ég vil meina, að ef eitthvað getur knúið Kim Jong Un til samninga, sé það slíkt andvar.
Ég held að með þessu væru Bandaríkin ekki að taka áhættu á stríði við N-Kóreu. Ég perónulega tel Kim Jong Un ekki þannig klikkaðan að hann sé "irrational" sannarlega ákaflega vondur einstaklingur sbr. morð hans á sl. ári á hálf bróður sínum í Malasíu, N-Kóreanskir flugumenn að verki.
--Ég lít því ekki svo á að líklega ómögulegt sé að fæla Kim Jong Un.
--M.ö.o. ef hann mundi sjá að hann getur ekki með 100% öryggi verið öruggur, þrátt fyrir kjarnorkuvopn.
Þá virðist mér ef eitthvað þvingar hann til að semja, þá væri það einmitt sú aðgerð að sanna fyrir honum það - að jafnvel með kjarnavopn geti hann ekki verið þess fullviss að vera algerlega öruggur.
Kv.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 11:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Bloggfærslur 30. ágúst 2017
Um bloggið
Einar Björn Bjarnason
Nýjustu færslur
- Trump, hefur viðurkennt að geta ekki greitt - 464 milljón dol...
- Skoðanakannanir líklega ofmeta fylgi Donalds Trumps -- sem er...
- 2 ár síðan Rússland hóf innrás í Úkraínu, febr. 2022: Stríðið...
- Batnandi efnahagur Bandaríkjanna gæti bætt sigurlíkur Joe Bid...
- Hæstiréttur Bandaríkjanna, varðandi mál Donalds Trumps - ætti...
- Arabaríki leggja fram friðartillögu í átökum Ísraels og Hamas...
- Yfirlit yfir stöðuna í Úkraínu: Stuttu máli sagt, gekk sókn Ú...
- Vegna mikillar umræðu um, vinsældir Donalds Trump vs. óvinsæl...
- Harðir bardagar sl. 3 vikur um borgina Avdiivka í SA-Úkraínu,...
- Er Ísrael að falla í gildru Hamas Samtakanna? Hamas samtökin ...
- Árás Hamas samtakanna frá Gaza svæðinu á Ísrael - stærsta bló...
- Staðfest gegnumbrot Úkraínmanna, á Varnarlínu Rússar No. 2 --...
- Hafa Úkraínumenn, þegar 'de facto' haft sigur á Rússum í S-Úk...
- Nýleg könnun í Bandaríkjunum - sýnir, dómsmálin ógna möguleik...
- Úkraína nær gegnum fyrstu varnarlínu Rússa - Zaporizhia svæði...
Eldri færslur
2024
2023
2022
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Bloggvinir
- eyglohardar
- bjornbjarnason
- ekg
- bjarnihardar
- helgasigrun
- hlini
- neytendatalsmadur
- bogason
- hallasigny
- ludvikjuliusson
- gvald
- thorsteinnhelgi
- thorgud
- smalinn
- addabogga
- agnarbragi
- annabjorghjartardottir
- annamargretb
- arnarholm
- arnorbld
- axelthor
- arnith2
- thjodarsalin
- formosus
- birgitta
- bjarnijonsson
- bjarnimax
- westurfari
- virtualdori
- bookiceland
- gattin
- davpal
- dingli
- doggpals
- egill
- jari
- einarborgari
- einarsmaeli
- erlaei
- ea
- fannarh
- fhg
- lillo
- gesturgudjonsson
- gillimann
- bofs
- mummij
- kallisnae
- gp
- gudmbjo
- hreinn23
- gudrunmagnea
- gmaria
- topplistinn
- skulablogg
- gustafskulason
- hallurmagg
- haddi9001
- harhar33
- hl
- diva73
- himmalingur
- hjaltisig
- keli
- fun
- johanneliasson
- jonsullenberger
- rabelai
- jonl
- jonmagnusson
- jonvalurjensson
- gudspekifelagid
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- ksh
- kristbjorg
- kristinnp
- larahanna
- leifurbjorn
- lifsrettur
- wonderwoman
- maggij
- elvira
- olafureliasson
- olinathorv
- omarragnarsson
- ottarfelix
- rafng
- raksig
- redlion
- salvor
- samstada-thjodar
- fullvalda
- fullveldi
- logos
- duddi9
- sigingi
- sjonsson
- sigurjons
- stjornlagathing
- athena
- stefanbogi
- lehamzdr
- summi
- tibsen
- vala
- valdimarjohannesson
- valgeirskagfjord
- vest1
- vignir-ari
- vilhjalmurarnason
- villidenni
- thjodarheidur
- valli57
- tbs
- thorgunnl
- thorsaari
- iceberg
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.3.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 28
- Frá upphafi: 845416
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar