Rússland og Saudi Arabía hafa greinilega gefist upp á þeirri tilraun að drepa vinnslu með svokallaðri "fracking" aðferð!

Það þíðir að visst ógnarjafnvægi er til staðar á olíumörkuðum um þessar mundir, en skv. samkomulagi Saudi Araba og Rússa - hefur verið ákveðið að framlengja ákvörðun sem tekin var nokkru fyrr um 9 mánuði; sem felur í sér minnkun heildarframleiðslu þeirra um 2-milljón tunnur á dag!

Skv. fréttum, vonast olíuráðherrar Saudi Arabíu og Rússlands - til þess að þessi minnkun leiði smám saman til samdráttar í óseldum birgðum á olíu.
--Þannig að verðlag smám saman rétti við sér úr ca. 50 dollurum í ca. 60 dollara.

  • Hinn bóginn er búist við, að aukning í "fracking" vinnslu innan Bandaríkjanna, auki heildar framboð af olíu í heiminum um -- 1% á þessu ári.
    --Sem talin er veruleg aukning!

Skv. olíumálaráðherra Nígeríu - vill OPEC þó ekki að verðið fari verulega upp fyrir 60 dollara.
--Því það mundi efla að þeirra mati "fracking" vinnslu of hratt!

  1. Það sem þetta staðfestir - eina ferðina enn.
  2. Að sá jarðskjálfti hefur orðið - að "fracking" ræður alþjóða verðlagi á olíu.
  • Fracking m.ö.o. sé tekið við sem svokallaður "swing producer."
    --Hlutverk sem Saudi Arabía hafði um árabil.

OPEC Scrambles To Raise Oil Prices Amid Renewed US Shale Boom

Saudi Arabia and Russia stuck in unlikely oil alliance

 

Ég hef heyrt fullyrðingar þær að þetta sé rangur skilningur - þ.s. framleiðslan sé mun kostnaðarminni í Rússlandi og Saudi Arabíu!

Það á hinn bóginn leiðir hjá sér þá mikilvægu staðreynd -- að gróði af olíuframleiðslu í báðum löndum; hefur verið mikilvægur þáttur í fjármögnun ríkisútgjalda!

M.ö.o. að þó bæði lönd geti tæknilega haft gróða af olíuvinnslu við enn lægri verð -- þá hafi verðfallið 2015 leitt til mikils hallarekstrar á ríkissjóðum Saudi Arabíu og Rússlands.

  1. Bæði lönd séu nú, að rembast við að koma stjórn á sín ríkisútjöld - svo ríkissjóði beggja geti rekið sig á "0" við olíuverðlag á bilinu 50 - 60 dollarar.
  2. Það skíri án vafa samkomulag beggja, þ.s. sameiginlega tilraun til að -- ná jafnvægi á verðlag við það verðbil.

M.ö.o. sú fullyrðing - að bæði löndin tæknilega geti framleitt við lægri verð.
Leiði hjá sér, þarfir ríkissjóða beggja landa - fyrir olíugróða til að fylla upp í fjárlagagatið.
Og auðvitað ekki síst -- vilja beggja að fá sem mestar tekjur fyrir sína auðlynd!

Við Íslendingar, viljum t.d. ekki selja okkar fisk ódýrt, þó tæknilega væri unnt að reka sjávarútveg við mun lægri fiskverðum en fæst fyrir fisk í dag!
Þá mundu mun lægri fiskverð skerða okkar tekjur af fiski, sem hefði auðvitað neikvæð áhrif á okkar efnahag!
Þetta sama gildi einnig fyrir Saudi Arabíu ásamt Rússlandi um olíuna, að bæði löndin vilja fá sem mest -- að þau lönd nái ekki fram hærra verði en 50-60 dollara, skerði þeirra framtíðar-olíutekjur, miðað við það sem var fyrir sumarið 2015 er verðin voru í rýflega 100 dollurum per olíufat - við það auðvitað skerðir þeirra efnahagur, og lífskjör í löndunum báðum að auki.

  • Hinn bóginn eru bandarísku einkafyrirtækin - ekki að taka nokkurn beinan þátt af sambærilegu tagi í fjármögnun ríkissjóðs Bandaríkjanna.
    --Gróðinn renni óskiptur til eigenda félaganna!
  • Meðan að í tilviki Rússlands og Saudi Arabíu - hirði ríkið hátt hlutfall olíuarðs af vinnslu sinna ríkisfyrirtækja er sjá um rekstur olíuvinnslunnar í báðum löndum.

--Þetta skili því, að þó svo að gróði bandarísku félaganna sé á þröngu verðbili.
--Þá sé sú staðreynd að þau nái að reka sig með gróða við 50 dollara +.
--Að þau hafa þetta ár aftur hafið - hraða aukningu sinnar vinnslu.

Vegna þess að mörg fyrirtæki eru um hituna í eigi einka-aðila.
Sem hvert um sig, keppist um að dæla sem mestu, til að skila eigendum sínum sem mestum gróða.
--Leiði fram þetta ástand, að um leið og vinnslan bar sig -- fór hún á flugferð aftur.

http://www.energyburrito.com/wp-content/uploads/2012/02/global-gas-shale-reserves.jpg

Helsti veikleiki bandarísku vinnslunnar er sá, að aukning vinnslu nær líklega hámarki þegar á nk. áratug, síðan fari vinnslan hægt og rólega að dala!

Birgðirnar séu einfaldlega ekki meiri en þetta!
--Einhver getur ályktað að Saudi Arabía og Rússland.
--Geti einfaldlega beðið róleg þar til vinnslan er sjálfhætt í Bandaríkjunum.

Það á hinn bóginn mundi leiða hjá sér þá staðreynd.
Að olíuleirsteinslög sem tæknilega vinnanleg eru.
--Er að finna víða um heiminn!

  • Það sé ekkert sem tæknilega hindri bandarísku fyrirtækin, að leita út fyrir landsteina.
    --Það sé afar sennilegt að þau geri einmitt það!
  1. Þá erum við ekki að tala um -- bara nk. 20 ár!
  2. Heldur getur vinnsla af þessu tagi -- borist frá einu landi til þess næsta.

--Þannig viðhaldið stöðugri aukningu vinnslu með "fracking" aðferð.
--Jafnvel þó vinnslan mundi smám saman hætta innan Bandar. sjálfra innan nk. 30 ára!

 

Niðurstaða

Eins og ég hef áður ályktað - sé tímabil ofurdýrrar olíu líklega liðið fyrir fullt og allt. Aukning í "fracking" vinnslu muni líklega nk. áratugi geta tryggt það að verðlag á olíu sveiflist ekki að ráði upp fyrir 60 dollara.
--Það sé mikið fjárhagslegt tap fyrir hefðbundnu olíuríkin.
--Veruleg lífskjaralækkun einnig fyrir þau lönd, sem eru mjög háð olíuútflutningi, sbr. Saudi Arabía og Rússland t.d.

Það kemur í ljós, hvað þau lönd geta gert til að bæta sína stöðu. Saudi Arabía kvá vera að endurskipuleggja sitt hagkerfi. Rússland á hinn bóginn - virðist enn horfa fyrst og fremst, til frekari aukningar á gas og olíuvinnslu.

  1. Hinn bóginn, sé olía og gas sennilega nk. áratugum á hægri útleið.
  2. Þ.e. lönd í vaxandi mæli leggi áherslu á endurnýjanlega orkugjafa.

--Sú þróun verði þó sennilega ekki leyftursnögg, þannig að neysla á olíu í heiminum fer ósennilega að minnka innan t.d. nk. 30 ára.
--En sú þróun á þeim 30 árum - geti samt sem áður, haft þau áhrif að minnka aukningu neyslu.

Það eitt hafi áhrif á framtíðar verð, þ.e. hamli gegn verðhækkunum.
Þau áhrif lögð ofan á sennilega útbreiðslu "fracking" um heiminn.
--Þíði án mikils vafa, að olíuverð haldist lág -- sennilega til allrar framtíðar.

Fyrir Rússland sé þetta slæmar fréttir - þíði að stöðnun kjara innan Rússlands, líklega viðhaldist það án nokkurs augljóss endapunkts.
--Það geti reynt á þolrifin í rússnesku þjóðinni, þegar stöðnun viðhelst - án sjáanlegs enda!

Það verði áhugavert að sjá hve lengi þolinmæði rússnesks almennings, gagnvart ræningaelítunni í kringum Pútín -- viðhaldist!

 

Kv.


Bloggfærslur 27. maí 2017

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 711
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 649
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband