Rétt ákvörðun líklega hjá Theresu May að efna til þingkosninga þann 8/6 nk.

Það má segja að tækifærið hafi einfaldlega verið of gott til að sleppa!
Skv. meðaltali skoðanakannana undanfarið -- ætti Íhaldsflokkurinn að bæta við sig 56 þingmönnum, Verkamannaflokkurinn að tapa 59 þingmönnum - aðrir flokkar fá ca. svipað og síðast.
--Útkoma: Íhaldsflokkurinn mundi enda með drjúgan þingmeirihluta!

https://metrouk2.files.wordpress.com/2016/07/ad_211676239-e1467473064306.jpg?quality=80&strip=all&strip=all

Polls pointed to opportunity that was too good for May to miss : "A YouGov survey for The Times this week put the Conservatives on 44 per cent, Labour on 23 per cent, the Lib Dems on 12 per cent and Ukip on 10 per cent."

Ef kosið er 8. júní nk. - mundi stjórn Íhaldsflokksins geta setið til júní 2022.
--En annars hefði þurft að kjósa í tveim árum fyrr, 2020.

  1. Það sem þetta veiti May, sé betra svigrúm til að leiða BREXIT til lykta.
  2. Auk þess að aukinn þingmeirihluti, mundi gera henni auðveldara að koma í gegnum þingið - lausnum er væru hugsanlega umdeildar meðal einstakra þingmanna Íhaldsflokksins.

--Má vera að einhverjir verði pyrraðir yfir því, að May fullyrti ítrekað - síðast í sl. mánuði, að ekki yrði efnt til nýrra þingkosninga á þessu ári.

  • Ef kosninganiðurstöður verða eitthvað í líkingu við núverandi kannanir -- verða Íhaldsmenn svo ánægðir með sigurinn.
  • Á sama tíma, og Corbyn yrði að hætta sem formaður Verkamannaflokksins í kjölfar slíks ósigurs flokks hans - sem þíddi að Verkamannaflokkurinn mundi ekki meðan flokkurinn væri á kafi í deilum um leiðtogamál geta veitt nokkra pólitíska samkeppni við Íhaldsflokkinn.
  • Að May yrði þá --> Óskoraður leiðtogi Bretlands, a.m.k. um hríð.

--Ef BREXIT mundi enda vel fyrir Bretland -- gæti hún setið lengi á eftir!
Auðvitað öfug útkoma ef Bretar á endanum mundu verða ósáttir með niðurstöðuna!

En með öflugan þingmeirihluta mundi May líklega geta notað þingið sem --> Stimpilpúða.
--Því geta komið sennilega þeirri niðurstöðu í gegnum þingið breska sem yrði.
Jafnvel þó hún endaði með einhverjum hætti - umdeild!

 

Niðurstaða

Eiginlega er það eina við málið að ég er hissa að May hafi ekki ákveðið að láta kjósa jafnvel enn fyrr. En arfaslök staða Verkamannaflokksins í könnunum hefur verið -consistent- þema nú um töluverða hríð. M.ö.o. að greinilega sé Corbyn ekki sem formaður að sannfæra kjósendur til fylgilags.

Það virðist nánast alveg öruggt að May standi mun sterkar að vígi á eftir.

 

Kv.


Bloggfærslur 19. apríl 2017

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 758
  • Frá upphafi: 846639

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 694
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband