Tyrkir fá 49 gísla leysta úr haldi Islamic State samtakanna - við aðstæður sem mér finnst grunsamlegar

Málið er að frásögn yfirvalda í Tyrklandi - virðist fremur augljóslega ótrúverðug. En því er slegið fram að gíslarnir hafi verið leystir úr haldi og "óútskýrðri leyniaðgerð þakkað" meðan að því er hafnað alfarið að nokkurt lausnargjald hafi verið greitt til "IS."

Turkey Obtains Release of Hostages Held in Iraq

Questions remain about release of Turkish hostages

Islamic State closes in on Syrian town, refugees flood into Turkey

"Prime Minister Ahmet Davutoglu of Turkey, center, in suit, welcomed freed hostages Saturday as they arrived at Esenboga Airport in Ankara on Saturday. Credit European Pressphoto Agency."

 

Af hverju ótrúverðugt?

"Turkey said its intelligence agency had led a covert operation to bring home the hostages, who included diplomats and their families, but insisted that no military actions had been taken and that no ransoms were paid."

  1. Ég á afar erfitt með að trúa því, að "IS" afhendi svo mikilvæga gísla, án þess að fá nokkurt fyrir sinn snúð á móti.
  2. Það hefur aftur á móti vakið athygli - að Tyrkir neita, þverneita - að taka þátt í hernaðaraðgerðum gegn "IS" samtökunum, nú í gangi.
  3. Að auki, neita þeir vélum á vegum NATO - að nota Tyrkneska flugvelli sem aðstöðu fyrir árásir á "IS."
  4. Til viðbótar, eins og kemur fram í fréttum helgarinnar, er "IS" hröðum skrefum að hertaka annað af svæðum Kúrda innan Sýrlands - - það smærra af þeim tveim. Skv. frétt að ofan, telur SÞ að 100.000 Kúrdar hafi nú flúið yfir landamærin til Tyrklands í sl. viku.
  • Þarna virðist verulegur mannlegur harmleikur í gangi, en Tyrkland gerir nákvæmlega ekki neitt.
  • Stærsti og öflugasti herinn á svæðinu, hreyfir sig ekki handarspönn.
  • Það stefnir nú í, að "IS" hafi "löng landamæri gagnvart Tyrklandi.

Maður hefði búist við því, að Tyrkland mundi með einhverjum hætti - vernda Kúrda Sýrlands megin, þó ekki til annars.

En að halda svæði Kúrda Sýrlandsmegin sem "buffer" milli Tyrklands og svæða undir stjórn "IS."

Það er áhugavert að mikilvægt "NATO" land - neiti öðrum NATO löndum um afnot af eigin herflugvöllum.

Þegar í gangi er aðgerð gegn "IS" - sem hlýtur að vera "öryggisógn" fyrir Tyrkland.

Syrian Kurds walk with their belongings after crossing into Turkey at the Turkish-Syrian border, near the southeastern town of Suruc in Sanliurfa province, September 20, 2014. REUTERS/Stringer

"Syrian Kurds walk with their belongings after crossing into Turkey at the Turkish-Syrian border, near the southeastern town of Suruc in Sanliurfa province, September 20, 2014. "

 

Blasir kannski verðið sem "IS" fékk fyrir gíslana við eftir allt saman?

Í formi - hlutleysis Tyrklands?

 

Niðurstaða

Auðvitað fagna ég því að Tyrkir fá gíslana afhenda. En maður veltir fyrir sér - hvort verðið sem Tyrkland greiðir fyrir þá, sé ef til vill - ekki of hátt. Ef það felst í "aðgerðaleysi Tyrkja" - fram að þessu, og kannski áfram. Að Tyrkland virðist vera að umbera "þjóðernishreinsun IS" á Kúrdum - Sýrlandsmegin landamæra. Þeirri niðurstöðu sem þá blasir við - að Tyrkland mun eiga "löng landamæri" við "íslamska ríkið." Með því, virðast Tyrkir hjálpa "IS" að styrkja sína stöðu. Efla sína fótfestu í Sýrlandi.

Maður veltir fyrir sér - hvort að Tyrkland sé með einhverja langtíma áætlun, eða hvort þarna var einungis um að ræða "popúlíska aðgerð" að gera ekkert sem mundi hætta lífi gíslanna!

 

Kv.


Bloggfærslur 21. september 2014

Um bloggið

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri færslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 714
  • Frá upphafi: 846644

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 652
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband