Ćtli ađ Svíţjóđar Demókratarnir vinni annan kosningasigur?

Sjálfsagt hafa einhverjir ađrir en ég :) frétt af ţví ađ sćnska ríkisstjórnin sé fallin - eftir einungis 2 mánuđi viđ störf. Ţađ skilst mér ađ sé nćst styttsti tími sem ríkisstjórn hefur setiđ í Svíţjóđ. Auk ţess sé ţetta í fyrsta sinn í 50 ár, ađ forsćtisráđherra velur ađ rjúfa ţing og efna til kosninga - áđur en kjörtímabili er lokiđ.

Sweden's Prime Minister Stefan Lofven speaks during a news conference at the Chancellery in Stockholm December 2, 2014. REUTERS/Pontus Lundahl/TT News Agency

Mér finnst reyndar merkileg ţessi ákvörđun - ađ rjúfa ţing

Stefan Lofven hafđi einungis 158 sćti af 349 ţrátt fyrir stuđning flokks sćnskra grćningja. Ţađ ađ Svíţjóđar Demókratarnir fengu 13% í kosningunum í september, sem tryggđi ţeim oddastöđu milli meginfylkinga sćnskra stjórnmála. Ţannig ađ hvorug ţeirra gat náđ meirihluta.

Hefđi átt ađ leiđa til ţess ađ hverjum ţeim sem reyndi viđ stjórnarsamstarf vćri ţađ ljóst - ađ tilgangslaust vćri ađ gera tilraun til ţess ađ -> Ţvinga fram fjárlög.

Ţau gćtu einungis átt möguleika í víđtćkri sátt milli fylkinganna.

  1. Samt virđist forsćtisráđherra hafa lagt í slíka tilraun.
  2. En hćgri flokkarnir ţá komu fram međ sitt eigiđ fjárlagafrumvarp.
  • Síđan virđast Svíţjóđar Demókratarnir hafa komiđ fram međ ţá "óvenjulegu leikfléttu" ađ - lísa yfir stuđningi viđ fjárlagafrumvarp hćgri flokkanna. Sem vćntanlega ţíddi ađ ţađ hafđi ţá "ţingmeirihluta."

Ţegar ţetta hafi veriđ ljóst - virđist forsćtisráđherra hafa gert tilraun til 11-stundar samkomulag viđ hćgri flokkana, til ţess ađ fá einhverjar af áherslum ríkisstjórnarinnar inn í fjárlögin - - en viđ verđum ađ reikna međ ţví, ađ ţeir fundir hafi ekki skilađ ţeim árangri er forsćtisráđherra gat sćtt sig viđ. Svo hann valdi ţess í stađ - ţingrof.

Ég vil eiginlega meina ađ ábyrgđin hljóti ađ liggja hjá forsćtisráđherra, sem hefđi átt ađ vinna máliđ í sáttarfyrirkomulagi viđ stjórnarandstöđuflokkana frá upphafi. Og ekki lagt fram frumvarpiđ - fyrr en samkomulag vćri fyrir hendi um stuđning.

Sem hefđi auđvitađ leitt til frumvarps er vćri einhverskonar "mođsuđa."

En miđađ viđ skipan ţingsins, hefđi öllum átt ađ vera fyrirfram ljóst, ađ "mođsuđa" vćri ţađ eina í bođi.

 

Af hverju gćtu Svíţjóđar Demókratarnir grćtt?

Ég hugsa ađ ţeir geti alveg sett máliđ fram gagnvart kjósendum - sem klúđur "gömlu" flokkanna. Ţeir hafi ađ auki sýnt fram á mátt sinn og megin, međ ţví ađ eiga ţátt í ađ fella stjórnina. Ekki síst, ađ ţeir haldi sig fast viđ ţćr áherslur - sem ţeir voru kosnir á ţing til ađ framfylgja.

Ţau umkvörtunaratriđi sem Svíţjóđar Demókatarnir voru kosnir út á, séu enn í óbreyttu fari - - sú óánćgja er veitti ţeim 13% fylgi fyrir tveim mánuđum sé örugglega enn til stađar ţar af leiđandi.

Ţannig gćti hugsanlega fylgi ţeirra aukist enn frekar. Ef frekara óánćgjufylgi rennur til ţeirra, eftir klúđriđ í tengslum viđ fjárlögin.

Meginspurningin sé ţá - hver fćr á baukinn fyrir ţađ klúđur af hálfu sćnskra kjósenda? Mig grunar -eins og ég sagđi- ađ kjósendur séu líklegir til ađ kenna gömlu flokkunum um ţađ.

Ţannig ađ Svíţjóđar Demókratarnir standi ţá enn sterkari ađ vígi eftir ţingkosningarnar sem vćntanlega verđa haldnar innan nk. 2-ja mánađa.

 

Niđurstađa

Ef grunur minn reynist réttur ađ Svíţjóđar Demókratarnir grćđa enn meira fylgi. Ţá gćti alveg ný stađa risiđ upp í sćnskum stjórnmálum. Ţó ţađ mundi virđast sjálfsagt nánast helgispjöll í augum flokksmanna - ţá vćri rökrétt ađ slík stađa leiddi til - - > Hćgri/vinstri stjórnar.

Sem gćti veriđ eina mögulega meirihlutastjórnin án Svíţjóđar Demókratanna.

Síđan mundi ţađ fara eftir ţví hvernig ţađ stjórnarsamstarf mundi ganga, hvernig fylgi Svíţjóđar Demókratanna mundi ţróast ţađan í frá.

En t.d. ef ţađ vćru stöđugar deilur í stjórnarsamstarfinu - - get ég séđ fyrir mér hugsanlega enn frekari fylgisaukningu Svíţjóđar Demókrata. Á móti, ef stjórnarsamstarfiđ mundi ganga vel, gćti ţveröfug ţróun orđiđ.

Engin leiđ ađ spá fyrir um ţađ fyrirfram.

 

Kv.


Bloggfćrslur 3. desember 2014

Um bloggiđ

Einar Björn Bjarnason

Höfundur

Einar Björn Bjarnason
Einar Björn Bjarnason
Stjórnmála- og Evrópufræðingur. Áhugi á stjórnmálum, Evrópumálum, alþjóðamálum, málefnum Miðausturlanda, trúmálum, vísindum og tækni, og margt fleira.
Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Eldri fćrslur

2024

2023

2022

2021

2020

2019

2018

2017

2016

2015

2014

2013

2012

2011

2010

2009

2008

Nýjustu myndir

  • Mynd Trump Fylgi
  • Kína mynd 2
  • Kína mynd 1

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 715
  • Frá upphafi: 846645

Annađ

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 653
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband